Heimilisritið - 01.11.1951, Side 56

Heimilisritið - 01.11.1951, Side 56
sagði roskni Englendingurinn á- kafur. „Skipið, sem flutti hana hingað fórst í Biskayaflóanum — ég held að það hafi verið ná- lægt 1870. En sem betur fór varð henni bjargað.“ Mennirnir tveir horfðu alvar- legir út um gluggann og kink- uðu kolli hæglátlega. „Hún skemmdist á stríðsár- unum,“ hélt Englendingurinn áfram, eins og hann ætti erfitt með að yfirgefa þetta umræðu- efni. En hann mundi ekki eft- ir neinu fleira í þessu sam- bandi og þagði litla stund. Skömmu síðar hélt hann á- fram: „Þetta er Charing Cross brúin. Sú næsta — þessi hvíta þama — er Waterloo brúin. Og þarna hinum megin —“ „Waterloo brúin?“ Karlmenn- irnir tveir gripu báðir fram í fyrir honum samtímis. Það var skyndilega komið líf í sviplaus andlitin og augun ljómuðu. Annar þeirra benti út um gluggann og sagði ákafur við konuna: „Waterloo brúin! Manstu —“ Hinn sneri sér að roskna manninum og sagði: „Það var Vivien Leigh, sem lék aðal- hlutverkið í kvikmyndinni „Waterloo-brúin“.“ Hann vatt sér ákafur til í sætinu og leit aftur á brúna. Roskni maðurinn sagði: „Ó — jæja — var það? Þetta er nýja brúin, auðvitað. Sú gamla var rifin, þegar þessi var byggð.“ Án þess að líta af brúnni, sagði konan við karlmennina tvo: „Og Robert Tayler. Vivien Leigh og Robert Taylor.“ Roskni maðurinn þagði langa stund, til þess að trufla ekki hugleiðingar þeirra um brúna. Svo tók hann aftur til máls, svolítið daprari í bragði: Og þarna sjáið þið heimskautafar Scotts, Discovery —“ Annar karlmannanna sneri sér að roskna Englendingnum með geislandi augum: „Já — hún var stórkostleg, hún Vivien Leigh! Og þarna er Waterloo brúin.“ ENDIR Æ, Æ! Skattayfirvöldin fengu útfyllta skattaskýrslu frá piparsveini nokkrum vélritaða. Þar gaf hann upp að hann hefði eitt barn á framfæri sínu. Skattstofan endursendi skýrsluna með eftirfarandi atliugasemd: „Þetta hljótá að vera mistök hjá ritara yðar.“ Skýrslan kom óðara aftur og á spássíuna var skrifað: „Nei, við vorum sannarlega bæði um það.“ 54 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.