Heimilisritið - 01.11.1951, Blaðsíða 64
BRIDGEÞRAUT
S: ÁG
H: —
T: 9753
L: D
S: D975
H: D
T: 10
L: 7
S: —
H: ÁG54
T: ÁK6
L: —
Lauf er tromp. Suður á að spila út.
Norður og Suður eiga að fá sex slagi,
hvernig sem Austur og Vestur spila.
SKÁKÞRAUT
Hvítt: KI12, Dg3, Hb^, Hb8, Bg4,
RC4, RC7, pa4, pb2, pd4, pdö.
Svart: Kc6, BÚ4, Bt>7, Rgi, pa5, pb6,
PS5> Ph3-
Hvítur mátar í öðrum leik.
HVAÐ HEFÐIR ÞÚ GERT?
Maður nokkur var eitt sinn að temja
hest, þegar það óhapp vildi til, að beizl-
ið slitnaði. Hesturinn tók óðara sprett-
inn, þegar hann var orðinn beizlislaus,
og skeytti engu tilraunum reiðmanns-
ins til að stöðva hann. Maðurinn hélt
sér af öllum mætti og vonaði það bezta.
Hesturinn stökk eftir þröngri akbraut,
og allt í einu kom bíll þjótandi á móti
þcim. Maðurinn varð að stöðva hestinn
mcð einhverju móti. Geturðu gizkað á
hvernig hann fór að því?
REIKNINGSÞRAUT.
7 kettir geta á 7 mínútum etið 7 rott-
ur. — Hváð þarf þá marga ketti til
að eta 100 rottur á 50 mínútum?
SPURNIR
Upphafsstafirnir á réttum svörum við
eftirfarandi spurningum eiga að mynda
nafn á afdrifaríkum atburði.
1. Hvaða dýr voru flutt hingað inn
frá Norðurlöndum að tilhlutun dönsku
stjómarinnar?
2. Hver er frægasta laxveiðiá í ná-
grenni Reýkjavíkur?
3. Hvað hét bróðir Grettis, sem barð-
ist með honum f Drangey?
4. Hvað hét móðir Ólafs Pá?
5. Hvað hét íslenzka leikkonan,
tengdamóðir Pouls Reumerts?
6. Eftir hvern er höggmyndin „Úti-
legumaðurinn"?
7. Hvað heitir sjávarguðinn?
8. Eftir hvern er leikritið „Munk-
arnir á Möðruvöllum“?
9. Hvað heitir einhver algengasti
kvillinn, sem gengið hefur að undan-
förnu?
10. Hvaða borg hefur verið kölluð
„borgin ódauðlega“?
Svör á bls 64.
62
HEIMILISRITIÐ