Heimilisritið - 01.06.1953, Qupperneq 33
Ijósum loga, því að hún þykist
nú viss um að Mario elski aðra
konu. Te Deum heyrist leikið
þegar tjaldið fellur.
II. þáttur
Salur í Farmese höllinni. Scar-
pia hefur sent Tosca bréf um, að
hann hafi tíðindi að segja af
Mario. Mario hefur verið tekinn
höndum, en Angelotti hefur kom-
izt undan. Komið er inn með list-
málarann unga, en þegar hann
neitar að skýra frá dvalarstað
Angelottis, er farið með hann til
píningaklefans. Tosca kemur inn,
og reynir þá Scarpia að veiða upp
úr henni, hvar Angelotti leynist.
Verið er að pína Mario til sagna
í píningarklefanum við hlið sals-
ins. Tosca verður ofraun að heyra
kvalaóp hans og segir frá leynd-
armáhnu. Komið er með Mario
inn, og þó að hann sé sárþjáður,
ávítar hann Tosca fyrir að hafa
skyrt frá felustað Angelottis. Síð-
an er hann dreginn burtu til
fangelsisins. Scarpia gerir nú
Tosca kosti: Scarpia: ,,Ötíinir
mínir ásaþa mig um mútuþœgni“.
Hann býðst til að þyrma elskhuga
hennar, ef hún vilji verða sín.
Tosca: ,,Ast og tónlist eru mitt
líj“. Að lokum fellst hún á tilboð
hans. Scarpia segir henni, að til
þess að Mario geti komizt undan,
verði að fara fram uppgerðaraf-
taka hans. Síðan ritar hann vega-
bréf, sem á að tryggja undan-
komu hennar og elskhuga hennar
frá Róm. Þegar hann hefur lok-
ið við að skrifa vegabréfið, rekur
Tosca hann í gegn með leiftur-
snöggri hnífstungu. Scarpia hníg-
ur niður og deyr. Tosca setur
kerti við höfuð hans og krossmark
á brjóst hans og fer síðan.
III. þáttur
Stallur á San Angelo kastalan-
um í dögun. Þangað er Mario
færður til aftökunnar. Hann rit-
ar síðasta bréf sitt til Tosca.
Mario: ,,HiminhtíoljiÓ stjörnum
strá<$“. Skyndilega kemur Tosca
inn á sviðið og segir Mario, að
aftökuathöfnin verði einungis til
málamynda og að henni lokinni
geti þau komizt úr landi með
vegabréfinu. Bæði eru fagnandi
glöð. Ttíísöngur: ,,Beisþja dau&-
ans“. Hermennirnir koma. Mario
stendur fyrir framan þá og þeir
hleypa af. Þegar þeir eru farnir,
sér Tosca með hryllingi, að brögð
Scarpia hafa náð tilgangi sínum
— aftakan var raunveruleg. Her-
menn hafa nú fengið vitneskju
um, að Scarpia hafi verið myrt-
ur, og koma nú til að handtaka
Tosca. Hún kemst undan með
því að fleygja sér út í opinn dauð-
ann fram af brjóstvirki kastal-
ans. *
JÚNÍ, 1953
31