Heimilisritið - 01.06.1953, Qupperneq 54
sagði hún kumpánlega. Ef hún
hélt áfram að tala, gæti hún ef
vill dvalið um fyrir honum, unn-
ið tíma.
Hér stóð hún alein og óvopn-
uð frammi fyrir morðingja, sem
einskis sveifst og sem vissi, að ef
hann dræpi hana ekki, yrði hann
sjálfur hengdur. Hún hafði ekk-
ert vopn, enga verju nema hyggju-
vit sitt. Ef hann réðist á hana,
væri úti um hana. Henni lá við
sturlun af að standa svona og tala
eins og um lífið væri að tefla,
sem og raunar var, meðan hjálp-
arvana barn lá rétt hjá henni í
þann veginn að gefa upp andann.
Og þó var það undir þessum
kringumstæðum hið eina, sem
hún gat gert.
Leila var mjög vinsæl í
skemmtanalífinu. Hún átti mjög
auðvelt með að halda uppi sam-
ræðum í samkæmum.
,,Það bjuggu hermenn hérna í
húsinu, eins og þér vitið," mas-
aði hún. ,,Þeir eru farnir, en her-
inn hefur það víst ennþá á leigu,
held ég. Það er nú meiri útgang-
urinn hér á öllu. Fólk, sem væri
á götunni, myndi ekki einu sinni
fást til að búa hér. Mér þætti
gaman að vita, hvort það væru í
raun og veru draugar hérna.“
,,Ekki gott að segja. Við sá-
um að minnsta kosti enga . . .“
hann þagnaði snögglega, en það
var um seinan. Hann hafði kom-
ið upp um sig. Látið uppskátt,
að hann hefði verið hér ásamt
barninu, meðan það var enn á
lífi. Hjartað í Leilu hamaðist.
Hún lét sem hún hefði ekki tek-
ið eftir því, sem á bak orða hans
lá, en honucn var sjálfum Ijóst,
að hann hafði hlaupið á sig.
Hann sagði andstuttur.
,,Þér sáuð allt saman, er það
ekki?“
,,Hvað eigið þér við ?“
,,Þér vitið, að ég myrti hana,
ekki rétt ? Nú jæja — víst gerði
ég það.“
Hún fann ekki annað svar en:
,,/E, nei! En hvers vegna gerð-
uð þér það ?“
,,Ég veit það ekki. Ég hef gert
slíkt fyrr og ég er hræddur um,
að ég geri það oftar. Gladys Barr-
ell var ekki nema sex ára. Munið
þér öll lætin út af henni ?“
,-Já.“
,,Jæja, það er þannig mjög
þýðingarmikil persóna, sem þér
standið frammi fyrir, eins og þér
skiljið. Eg er sá, sem leitað er að
um allt England. Jú, það er ég,
sem gerði það. Og morð þeirra
Daysie Bright og Queenie Love
hef ég líka á samvizkunni. Þér
verðið sú næsta. Því yður neyðist
ég líka til að afgreiða, ekki satt ?
Annars segið þér sko til mín.“
,,Það er annar bíll rétt á hæl-
52
HEIMILISRITIÐ