Heimilisritið - 01.09.1957, Qupperneq 9
Fjárglæframaðurlnn dæmalausi
Á ÁRUNUM fvrir og eftir
fyrri heimsstyrjöldina A'ar ó-
venjulega mikil sjálfsmorðsalda
í Bretlandi. Þessi sjálfsmorð
voru endalokin hjá fólki, sem
hafði verið steypt út í ógæfu
og örbirgð af samvizkulausum
fjárglæframanni, sem sullaði í
sig kampavíni og eyddi stórfé
af annarra manna peningum, án
þess að hirða liið minnsta um
fórnarlömb sín.
Hann hét Horatio Bottomley.
Hann var góðum gáfum gæddur
og var ótrúlega mikill mælsku-
maður, og það mátti heita, að
hann væri álitinn mesta þjóð-
hetja Breta. Hann gat stigið
upp á ræðupall og haldið svo
innblásnar ræður, að allir áheyr-
endur hans urðu hugfangnir. I
eitt skipti gat hann fengið alla
áheyrendur sína til þess að sýna
föðurlandsást sína í verki með
því að tæma veskin og budd-
urnar sínar og láta af hendi alla
skartgripi sína, svo að hægt
væri að gleðja hermennina, sem
börðust fvrir föðurlandið. Að-
dáendur hans brugðu skjótt við
og lögðu allt sitt af mörkum —
Stórsvikarinn Horatio Bottomley
(með fípnhattinn) á lcið til sinna
siðustu réttarhalda.
og enginn þeirra hafði hugmynd
um það, að Bottomley stakk
meira en helmingnum af söfn-
unarfénu í eigin vasa.
Það hefði ef til vill aldrei
komizt upp um hann, ef prent-
ari einn liefði ekki gefið út bók
um hann. Heiti bókarinnar var:
„Það, sem Bottomley gerði í
stríðinu.“ Þegar bókin var opn-
uð, kom í ljós, að allar blað-
síður í lienni voru auðar!
Bottomley þóttist vera vernd-
ari hinna smáu — en fylgismenn
HEIMILISRITIÐ