Heimilisritið - 01.09.1957, Side 37
Hjónaband hans og Doris
Duke stóð ekki nema í eitt ár,
en Rubi stóð eftir sem ríkur
maður með tvær milljónir doll-
ara á bankabók. Hann kastaði
sér nú út í ný ævintýri og sást
ekki nema endrum og eins í
sendiráðinu, en þá var hann
orðinn sendiherra að tign. En
árið 1953 missti Trujillo þolin-
mæðina og rak fyrrverandi
tengdason sinn úr embætti fyrir
fullt og allt.
UM ÞÆR mundir biðlaði
hann mjög kröftuglega til ung-
versku leikkonunnar Zsa Zsa
Gabor, sem hefur haft álíka féril
sem kvenmaður og hann sem
kvennabósi. En það er eins og
hún sé eina konan, sem hefur
haft hann á valdi sínu til þessa.
Hann vildi giftast, en hún neit-
aði. Hann elti hana fram og til
baka yfir Atlantzhafið og bað
hennar hvað eftir annað. Zsa
Zsa hafnaði boðinu jafnt oft, og
að lokum gaf hann henni glóð-
arauga og giftist Barböru Hutt-
on — „Óhamingjusömustu konu
í heimi.“ Það varð honum þó
nokkur raunabót, að hann fékk
sendiherrastöðu sína aftur. —
Hjónabandið stóð í 53 daga.
(Zsa Zsa hafði sagt á blaða-
mannafundi, að það myndi í
hæsta lagi endast í sex mánuði).
Þá stóð Rubi aftur uppi með
eina og hálfa milljón dollara til
viðbótar og nú gat hann haldið
áfram að eyða og spenna — og
elta Zsa Zsa á röndum á nýjan
leik. Það tók hann næstum tvö
ár að næla í þá peninga, og í
það skiptið var það Rubi, sem
sat eftir með sárt ennið.
Eftir ofsaheitt ævintýri með
Ava Gardner í fyrrasumar, til-
kynnti Rubi í október, að hann
væri trúlöfaður hinni ungu
frönsku leikkonu Odile Rodin,
og þau gengu í hjónabanda fvrir
skömmu síðan. Þau eyddu
hveitibrauðsdöarunum á einu
sveitasetri Barböru Huttons —
og eru mjög hamingjusöm. *
Frúin og innbrotsþjófurinn
Þegar sölumaður nokkur kom heim úr ferðalagi, sagði kona hans
honum frá því, að innbrotsþjófur hefði brotizt inn í hús þeirra, með-
an hann var fjarverandi.
„Náði hann í nokkuð?“ spurði sölumaðurinn kvíðafullur.
„Ég cr nú hrædd um það,“ sagði kona hans. „1 myrkrinu hélt
ég, að hann væri þú.“
HEIMILISRITIÐ
35