Heimilisritið - 01.09.1957, Síða 44

Heimilisritið - 01.09.1957, Síða 44
ina. Umhveríis ljóskerið í siglu- trénu sveimuðu mölflugur. Gerillo hreyfði sig í myrkrinu og andvarpaði. ,,Hvað getur maður gert?“ tautaði hann og sat síðan kyrr eins og áður. Holroyd var vakinn af hug- leiðingum sínum við suð í mý- flugum. II. NÆSTA morgun heyrði Hol- royd, að þeir væru innan við fjörutíu kílómetra frá Badama, og áhugi hans á fljótsbökkunum óx. Hann kom upp við hvert tækifæri til að athuga um- hverfið. Hann gat ekki séð nein merki um mannadvöl, nema rústir af gömlu húsi, þar sem tré uxu út um gluggagættirnar. Það var um nónbil, er þeir komu að yfirgefna fljótabátn- um. Hann virtist í fyrstu ekki vera mannlaus, bæði seglin voru uppi og blöktu í golunni, og maður sást sitjandi á framþilj- unum. Annar maður virtist sof- andi á grúfu á langri brú, sem höfð er á miðju þessara stóru báta. En það kom brátt í ljós, að hann var stjórnlaus með öllu. Gerillo athugaði bátinn gegn- um sjónaukann og varð einkum starsýnt á dökkt andlit manns- ins, sem virtist sitjandi. Það var eins og hann væri rjóður í framan og vantaði nefið, og því lengur sem skipstjóri horfði á hann, því ver geðjaðist honum að útliti hans, og því síður gat hann hætt að horfa. En hann gerði það að lokum og kallaði á Holroyd. Svo veif- aði hann til fljótabátsins. Hann veifaði og kallaði, en bátinn rak framhjá. Santa Rosa stóð skírum stöfum á honum. Um leið og hann lenti í kjöl- fari skipsins, ruggaði hann ofur- lítið, og allt í einu valt sitjandi maðurinn um koll. Hatturinn fór af honum, og höfuðið var ekki fallegt á að líta; svo valt skrokkurinn út að skjólborðinu, sem skyggði á hann. Holroyd var kominn hálfa leið upp káetustigann. „Sástu þetta?“ spurði skipstjóri. „Dauður!“ sagði Holroyd. „Já. Þú ættir að senda bát að honum. Það er eitthvað bogið við þetta.“ „Sástu — sástu andlitið á honum?“ „Hvernig var það?“ „Það var — ojh! — ég á engin orð.“ Og skipstjóri sneri baki við Holroyd og varð allt í einu önnum kafinn og rögg- samur stjórnandi. Fallbyssubátnum var snúið við, svo hann skreið samhliða 42 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.