Heimilisritið - 01.09.1957, Síða 52
þeir skipulagðir í eina þjóð, ef
svo mætti segja; en mesta beina
hættan stafar af því, að þeir
nota eitur skynsamlega í bar-
áttunni við stærri óvini sína,
Þetta eitur þeirra virðist mjög
líkt slöngueitri, og það er senni-
legt, að þeir framleiði það í raun
og veru sjálfir, og að stærri
maurarnir beri það í hárbeittum
kristalsnálum í árásum sínum á
menn.
Auðvitað er miklum erfið-
leikum bundið að fá nákvæmar
upplýsingar um þessa nýju
keppinauta um yfirdrottnun
jarðarinnar. Engir sjónarvottar
hafa lifað til að skýra frá fram-
ferði þeirra, að undanskildum
mönnum eins og Holroyd, sem
aðeins sáu til þeirra tilsýndar í
skjótum svio. Margar furðu-
sögur um hæfileika þeirra ganga
manna á milli við Efri-Amazon
og þær aukast stöðugt eftir því
sem ótti manna vex. Þessar litlu
verur eru ekki aðeins sagðar
nota áhöld, þekkja eld og
málma, heldur einnig nota mál
sín á milli og kunna að varð-
veita þekkingu sína á hliðstæð-
an hátt og við gerum með bók-
um. Hingað til hafa landvinn-
ingar þeirra stöðugt aukizt, og
þeir hafa felt eða rekið á flótta
hverja mannveru, sem orðið
hefur á vegi þeirra. Þeim fjölgar
afar ört, og Holroyd er ekki í
vafa um, að þeir muni að lok-
um flæma burt allt fólk úr hita-
beltislöndum Suður-Ameríku.
Og hversvegna skyldu þeir
láta sér nægja Suður-Ameríku?
En þar eru þeir nú. Eftir
nokkra áratugi verða þeir senni-
lega komnir vel á leið norður
eftir Mið-Ameríku. Áratug þar
frá verða þeir einráðir á megin-
landi Ameríku. Eg geri ráð fyrir,
að þeir nái fótfestu í Evrópu
eftir um það bil hálfa öld. *
Munciði mjóu
Iri, sem sá mjög hlaðið skip sigla eftir fljóti hrópaði: „Svei mér
þá, ef vattvð í ánni stæði örlítið hærra, myndi ekkert vera uppúr
af skipinu því arna.“
„Sjáið hérna!“ sagði írskur hermaður og sýndi gapandi áhorfend-
um háan hatt með kúlugati í. „Sjáið þetta gat. Ef þetta hefði verið
lágur hattur, hefði ég drepizt af þessu skoti!“
50
HEIMILISRITIÐ