Fréttatíminn - 30.08.2013, Síða 17
Guðrúnartún 10 | 105 Reykjavík | Sími 440 9000 | advania@advania.is | www.advania.is
Amazon
MIT Sloan School’s Center
for Digital Business
Borgarstjórinn
í Reykjavík
Umbreyting með nýsköpun
Michael Schrage
Steve Midgley
Jón Gnarr
Nýsköpun með
tölvuskýjum
nýsköpun og upplýsingaöryggi
Snjallar lausnir,
24.900kr.
Ef þú skráir þig fyrir 31. ágúst.
Almennt verð: 34.900 kr.
Skráðu
þig núna!
Dagskrá og skráning
Kíktu á vefinn og skoðaðu dagskrána.
Skráning á advania.is/haustradstefna
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-2
3
2
6
Haustráðstefna Advania
Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 6. september
á Nordica Hilton hóteli. Hún allar meðal annars um
snjallar lausnir, nýsköpun og upplýsingaöryggi.
Við bjóðum órar fyrirlestralínur sem innihalda flest
það sem skiptir máli í upplýsingatækni og stjórnun
nútímafyrirtækja:
· Stafræn útgáfa og framtíðin í upplýsingatækni
· Reynslusögur og stjórnun
· Big data, viðskiptagreind og gagnavinnsla
· Skýjalausnir og hagnýting snjalltækja
Velkomin á
Advania
6. september 2013
Sigríður Halldórs-
dóttir með dóttur
sinni Urði Ásu í
sólinni í Barcelóna en
þar hefur fjölskyldan
búið síðasta árið.
Stefnan að Landinn verði
betri en nokkru sinni fyrr
um allar trissur í leit að góðu efni
og svo berast okkur líka margar
góðar ábendingar frá áhorfendum,
til dæmis með tölvupósti eða í
gegnum Facebook-síðu þáttarins.
En svo reynir auðvitað mikið á að
við umsjónarmenn þáttarins séum
hugmyndaríkir.”
Við vinnslu á efni Landans
skiptir veðurspáin miklu máli og
segir Sigríður vefinn vedur.is vera
mikinn áhrifavald í sínu lífi. „Við
ferðumst um landið vítt og breitt
og söfnum efni og því skiptir máli
hvernig veðurspáin er. Það skiptir
engu máli hversu mikið maður
skipuleggur eða undirbýr sig fyrir
tökur. Vedur.is kveður upp sinn
dóm og ef hann hentar manni ekki
verður maður bara að bíta í það. Þá
snýr maður sér bara að einhverju
öðru í bili. Vinnuvikan er yfirleitt
þannig að við fundum öll saman
á mánudögum og ákveðum hvað
við ætlum að vinna í þeirri viku
og skipuleggjum helst langt fram
í tímann. Svo er stokkið af stað ef
veður leyfir og unnið frá morgni
til kvölds.“ Stundum taka ferð-
irnar nokkra daga og fór Sigríður
í þriggja daga ferð um hálendið á
dögunum.
Í ferðunum fer myndatökumað-
ur alltaf með fréttamanni og segir
Sigríður að þeir eigi stærstan
hluta í hverju innslagi. „Mynda-
tökumennirnir okkar eru eiginlega myndatöku-
menn í æðra veldi, ásamt því að vera líka klipparar
og framleiðslustjórar. Við fréttamennirnir gerum
innslögin en svo sjá þeir um töfrana.“
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á hópnum
sem stendur að Landanum en þau Ragnhildur
Thorlacius og Leifur Hauksson er farin til annarra
starfa, Ragnhildur á fréttastofu RÚV og Leifur
hefur nú umsjón með útvarpsþættinum Sjónmáli á
Rás eitt. Í þeirra stað eru komin Guðmundur Páls-
son, stundum kenndur við Baggalút, og Kristín
Sigurðardóttir sem áður var fréttamaður á Frétta-
stofu RÚV. „Ég bind miklar vonir við þennan nýja
hóp þó ég sakni mikið þeirra Ragnhildar og Leifs,“
segir Sigríður og bætir við að metnaðurinn sé mik-
ill og að stefnan í vetur sé að Landinn verði betri en
nokkru sinni fyrr.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Sigríður Halldórsdóttir og sam-
starfsfólk hennar stefna að því í
vetur að Landinn verði betri en
nokkru sinni fyrr. Ljósmynd/Hari.
viðtal 17 Helgin 30. ágúst-1. september 2013