Fréttatíminn - 30.08.2013, Side 20
Þá opnuð-
ust augu
þeirra í
hljómsveit-
inni þegar
þeir sáu að
gamli gat
sungið.
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
V ið viðruðum okkur aðeins í stórborginni og svo vorum við að spila þarna, Reið-
mennirnir. Við tókum eitt risa gigg
á mótinu sjálfu og fyrst við vorum
komnir út tókum við tvö önnur
gigg. Annað var á klúbbi sem heitir
White Trash Fast Food, það er svona
skemmtileg rokkbúlla,“ segir Helgi
Björnsson tónlistarmaður með
meiru. Helgi er nýkominn af Heims-
leikum íslenska hestsins í Berlín þar
sem hann tróð upp með Reiðmönn-
um vindanna.
Sérhæfðir „swing“-arar
frá Berlín
Berlínarferðin var kannski kær-
komið frí fyrir Helga því framundan
er stífur undirbúningur fyrir stór-
tónleika sem hann stendur fyrir í
Eldborgarsal Hörpu 11. október.
Þar ætlar Helgi að syngja lög Hauks
Morthens við undirleik þýsku hljóm-
sveitarinnar Capital Dance Orc-
hestra. Sveitin leikur einmitt undir
á plötunni Helgi syngur Hauk sem
kemur út í október. Helgi kynnt-
ist hljómsveitinni þegar hann var
búsettur í Berlín.
„Þetta er mjög skemmtilegt band
sem hefur verið lengi starfandi í
Þýskalandi og hefur spilað með
mörgum stórstjörnum þar í landi.
Þeir byrjuðu sem „swing band“ og
hafa sérhæft sig í „swing“-tónlist frá
fjórða, fimmta og sjötta áratugnum.
Það er rosa stór „swing“-sena í
Berlín og hefur verið undanfarin
ár. Menn leita í ræturnar þegar þeir
leita að „identity“ í Þýskalandi. Fyr-
ir stríð var gullöld í þessum bransa
og svo kemur Hitler og skiptingin
eftir það,“ segir Helgi.
Þjóðverjarnir hrifnir af
íslensku lögunum
Kynni tókust með Helga og með-
limum Capital Dance Orchestra
þegar hann fékk þá til að spila á
opnun Admiralspalast-leikhússins
sem hann rak í Berlín. „Meðeigend-
ur mínir vildu endilega að ég syngi
með sveitinni. Þeim í hljómsveitinni
leist nú í fyrstu ekkert sérstaklega
á það. Hugsuðu sjálfsagt með sér
að ég væri „einn af þessum“. Sjálfur
var ég ekkert að ýta á eftir þessu en
lét til leiðast þegar meðeigendur-
nir sóttu það fast og fór á æfingu.
Þá opnuðust augu þeirra í hljóm-
sveitinni þegar þeir sáu að gamli gat
sungið. Þeir voru yfir sig hrifnir og
vildu fá mig til að taka þátt í „Stars
on Swing“ sem margar stórstjörnur
í Þýskalandi hafa tekið þátt með
þeim í. Það gafst ekki tími í það en
svo kom þessi hugmynd um að taka
lög Hauks upp.“
Helgi segir að meðlimir Capital
Dance Orchestra séu spenntir að
spreyta sig á lögum Hauks Mort-
hens. „Þarna er mikið af lögum
sem þeir þekkja ekki, Brúnaljósin
brúnu, Frostrósir, Ég er farmaður
og svo framvegis. Þessi íslensku lög
hafa ekki ferðast viða. Þeir eru mjög
hrifnir af þessari músík og sem mér
fannst skemmtilegt. Maður fyllist
óneitanlega þjóðarstolti.“
Það er allt orðið svo „grand“ hjá
þér, þú tekur varla upp hljóðnema án
þess að það sé í Hörpunni lengur.
„Nei, það er nú ekki alveg rétt. Ég
var til dæmis í Möðrudal á Fjöllum
um daginn og tróð upp í fjárhús-
unum. Ég var með einn lampa til að
lýsa og hann var alltaf að detta út,
þetta var eiginlega blikkljós. Þannig
að það er allt frá því og upp í Hörpu,
allt þarna á milli. Það er bara þannig
að þegar maður er kominn með
svona stórt band, þetta er svo dýrt,
þá verður að gera þetta almenni-
lega. Þetta verður mjög grand og
skemmtilegt.“
Tekur því fagnandi að verða afi
Auk yfirvofandi tónleikahalds
hefur Helgi nýverið leikið í tveimur
kvikmyndum. Annars vegar er það
Hross í oss, kvikmynd Benedikts
Erlingssonar, sem frumsýnd var
í vikunni. Hins vegar er það París
norðursins sem Hafsteinn Gunnar
Treður upp í fjárhúsum og í Hörpu
Það er sjaldnast
lognmolla í kringum
Helga Björnsson. Í
vikunni var frum-
sýnd kvikmyndin
Hross í oss sem
hann leikur í og
hann hefur nýlokið
við að leika aðal-
hlutverki í París
norðursins. Næst á
dagskrá er undir-
búningur fyrir
stórtónleika í Hörpu
í október þar sem
Helgi syngur lög
Hauks Morthens við
undirleik stórsveitar
frá Þýskalandi.
Meðfram þessu öllu
þarf hann að venjast
þeirri tilhugsun að
hann er að verða afi.
Sigurðsson leikstýrir eftir handriti
Huldars Breiðfjörð.
Helgi segir að myndin hafi verið tek-
in upp á Flateyri í sumar og tökuliðið
hafi verið þar í sex eða sjö vikur. „Það
var mjög skemmtilegur andi þarna sem
vonandi skilar sér upp á hvíta tjaldið.
Það er frábær húmor í þessu, mikið
af kátbroslegum aðstæðum sem við
lendum oft í sjálf,“ segir hann.
„Þetta er frábært handrit og mjög
skemmtilegt. Myndin fjallar um feðga.
Sonurinn flýr úr Reykjavík eftir skilnað
og smá sveiflu og reynir að koma lífinu
á réttan kjöl fyrir vestan. Þá hringir
pabbinn sem er búinn að vera úti í Tæ-
landi í siglingum og boðar komu sína í
þetta þorp. Þeir hafa ekki verið í sam-
bandi en hann vill taka upp þráðinn að
nýju. Og úr verður skemmtileg sápa.“
Er ekki kurteisi að spyrja hvort aðal-
hlutverkið þú leikur?
„Liggur það ekki ljóst fyrir að ég
leikinn soninn?“ segir Helgi og skellir
upp úr. „Nei, ég leik víst pabbann sem
kemur heim og er eitthvað farinn að
meyrna.“
Talandi um það að vera farinn að
meyrna. Ertu ekki að fara að verða afi?
„Jújú. Ég hef nú ekkert að gera með
„prjójekt“ en ég tek því hins vegar
fagnandi.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Helgi Björnsson treður upp með The Capital
Dance Orchestra í Eldborgarsal Hörpu í október.
Þar syngur hann lög Hauks Morthens. Gestir á
tónleikunum verða Björgvin Halldórsson, Sigríður
Thorlacius og Bogomil Font. Ljósmynd/Hari
20 viðtal Helgin 30. ágúst-1. september 2013