Fréttatíminn - 03.05.2013, Side 2
Pétur
Gunnarsson
petur@
frettatiminn.is
Endurnýting Ljósgjafi í stað rusLs
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti á Bessa-
stöðum að hann hefði falið Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni,
formanni Framsóknarflokksins, umboð til myndunar nýrrar
ríkisstjórnar. Ljósmynd/Hari
stjórnmáL sigmundur davíð gunnLaugsson fékk umboð forsEta ísLands tiL að mynda ríkissjórn
Formenn ræða um nýja ríkisstjórn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hittust síðdegis í gær til að ræða
hugsanlegt samstarf í nýrri ríkisstjórn.
Þetta var annar fundur þeirra en Sigmundur Davíð fer
með umboð til að mynda ríkisstjórn frá forseta Íslands.
Hann hefur einnig átt fundi með formönnum annarra
flokka og segja þeir fundina með Sigmundi Davíð hafa
verið ágæta en óformlega; þeir marki ekki upphaf eigin-
legra stjórnarmyndunarviðræðna. Í fréttatilkynningu
frá Framsóknarflokknum í gær kom fram að fundirnir
hafi allir verið innihaldsríkir en að ekkert hafi verið
ákveðið með framhaldið.
Sigmundur Davíð ákvað að stilla hinum formönnunum
upp í stafrófsröð til viðræðna. Bjarni Benediktsson vildi
ekki una því: „Ég mun ekki hefja neinar stjórnarmynd-
unarviðræður á meðan verið er að ræða við aðra,“ sagði
Bjarni og hitti ekki Sigmund Davíð fyrr en fundum hans
við alla hina formennina var lokið.
Ýmsar hugmyndir hafa verið viðraðar um næstu ríkis-
stjórn. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hefur nefnt
að Framsókn geti myndað minnihlutastjórn með hlut-
leysi allra flokka nema Sjálfstæðisflokks.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknar-
flokksins, vill hins vegar að Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur nái saman um meirihlutastjórn. „Ég trúi
að Sigmundur Davíð myndi í framhaldinu stjórn með
Sjálfstæðisflokknum um sterk málefni og hér fari hjól at-
vinnulífsins að snúast, heimilunum verði bjargað, brott-
fluttir Íslendingar flytji heim,“ sagði Guðni á Stöð 2.
Aldrei fleiri
sprengjumál
Aldrei hafa fleiri
sprengjumál verið skráð
hjá sérsveit embættis
lögreglustjóra en á síðasta
ári, eða 20. Tvö stærstu
sprengjumál ársins voru
annars vegar sprengja
á Hverfisgötu og hins
vegar rörasprengja, gas-
kútar og blýkúlur sem
fundust við húsleit. Þá var
í fyrsta skipti lagt hald á
sprengiefni í húsnæði MC-
samtakanna hér á landi en
um var að ræða tæplega
eitt kíló af dínamíti.
Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu ríkislögreglustjóra.
Sérsveitin sinnti 3.593
verkefnum á síðasta ári.
Almenn löggæsluverkefni
voru 3.104 og umferðar-
verkefni 489. Sérsveitar-
verkefni þar sem þjálfun
og búnaður sveitarinnar
var nýttur voru 249, þar af
voru sérsveitarmenn vopn-
aðir í 72 tilfellum. -eh
Krónan styrkist en verð lækkar ekki
Krónan hefur þó styrkst frá um 8% frá því í byrjun mars
en samt hækkar verðlagið sífellt. „Af hverju lækkar ekki
verðbólga þegar krónan styrkist? Hver tekur hagnaðinn
til sín?“ spurði Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður
Rafiðnaðarsambands Íslands, í ræðu sinni á baráttufundi
vegna 1. maí í Reykjavík. „Kaupmenn nýta sér sveiflur
krónunnar til þess eins að hækka vöruverð, um leið og
krónan gefur hið minnsta eftir, jafnvel samdægurs,“ bætti
hann við. Kristján sagði að leita þurfi leiða til að festa gengi
krónunnar og ná fram stöðugleika og lágri verðbólgu. Til
lengri tíma litið þurfi hins vegar að skipta um gjaldmiðil til
að tryggja hag heimilanna.
Hjónin Árni Jón Sigfússon arkitekt og Annetta
Scheving grafískur hönnuður hafa hannað fallegar
ljósakrónur úr hráefni sem flestir henda í ruslið.
Einnota plastílát eru efniviðurinn, ílát sem fylla
heilu tunnurnar á flestum vinnustöðum. Eftir að
búið er að nota plastmálin eru þau þvegin og fest
saman á ákveðinn hátt þannig að það myndast
stór kúla. Ljós er útbúið innan í kúlunni. Þessar
ljósakrónur nefna hjónin Ljósmál, að því er fram
kemur í fréttabréfi Hringrásar. „Þessi hugmyndaglöðu hjón,“ segir þar, „lærðu í
Stuttgart í Þýskalandi þar sem endurvinnsla og endurnýting er mikið stunduð. Eftir
námið höfðu þau tamið sér ákveðið hugarfar. Árni hafði orð á því hve vandað og dýrt
efni væri notað í umbúðir og því synd að henda þeim beint í ruslið. Hann minntist á
að fyrsta skrefið í áttina að hreinna umhverfi og endurbættri endurvinnslu væri að
minnka flækjustig umbúða og einfalda, þannig að auðveldara sé að endurvinna þær.“
Ljósakrónur úr einnota plastmálum
Hjónin Árni Jón Sigfússon
arkitekt og Annetta Scheving,
grafískur hönnuður. Mynd Hringrás
Sigruðu í frumkvöðlakeppni kvenna
MIA sigraði í frumkvöðlakeppni kvenna sem Íslandsbanki,
Félag kvenna í atvinnurekstri og Opni háskólinn í Reykjavík
stóðu fyrir. Bylgja Bára Bragadóttir og Álfheiður Eva Óla-
dóttir standa að baki hugmyndinni sem felst í framleiðslu á
fljótandi sápum og froðusápum. Bylgja og Álfheiður hlutu
að launum tveggja milljóna króna styrk frá Íslandsbanka.
Þetta er annað árið í röð sem frumkvöðlakeppnin er haldin.
Hún hófst með námskeiði í gerð viðskiptaáætlana í janúar.
Alls sóttu 70 konur með 55 viðskiptahugmyndir um að sitja
námskeiðið en 35 sæti voru í boði. Út úr námskeiðinu komu
26 viðskiptaáætlanir sem dómnefnd fór yfir. Fimm áætlanir
voru valdar til að taka þátt í frumkvöðlasamkeppninni
þar sem konurnar fengu ráðgjöf til að þróa áætlunina enn
frekar.
Skoða tökustaði á
Íslandi fyrir Star Wars
Ekkert lát er áhuga stórlaxa í Hollywood að taka upp kvikmyndir á Íslandi. Leikstjórinn J.J.
Abrams er spenntur fyrir því að taka upp fyrir næstu Star Wars-mynd hér á landi. Sagafilm hefur
skoðað hugsanlega tökustaði fyrir hann.
bíó j.j. abrams áhugasamur um kvikmyndatökur hér á Landi
Þ eir eru ekki á landinu, það er allt sem ég segi,“ segir Árni Björn Helgason, framkvæmdastjóri er-
lendrar framleiðslu hjá Sagafilm.
Undanfarið hefur teymi á vegum Saga-
film kannað jarðveginn fyrir hugsanlegur
tökur á nýrri Star Wars mynd á Íslandi.
Hafa þessar þreifingar farið afar leynt en
þær fóru fram á Suðurlandi. Ekki liggur
fyrir hvaða tökustaðir voru skoðaðir og
engar upplýsingar fást um þetta hjá Saga-
film. Verkefnið er þó svo skammt á veg
komið að ólíklegt verður að telja að leik-
stjórinn, J.J. Abrams, eða aðrir stórlaxar
hafi enn komið til landsins. Þó er vitað
að Abrams hefur áhuga á að taka upp á
Íslandi. Hann stefndi að því að taka upp
fyrstu Star Trek-myndina hér fyrir nokkr-
um árum en það datt upp fyrir. Í fyrra
kom tökumaður á hans vegum hingað og
tók bakgrunnsmyndir fyrir Star Trek 2
sem væntanleg er í kvikmyndahús síðar í
þessum mánuði. Ekki er vitað hvort þær
rata á hvíta tjaldið.
Það er skammt stórra högga á milli
hjá Árna Birni en hann greindi nýlega
frá því í viðtali við Fréttatímann að hann
hafi kannað tökustaði með leikstjóranum
Christopher Nolan hér um páskana. Árni
Björn verst allra fregna af hugsanlegum
Star Wars-tökum hér. „Ég veit ekki hver
var að segja þér þetta. Ég var að „skáta“
fyrir rússneska mynd um daginn.“
Umrædd Star Wars-mynd er sú fyrsta
í nýjum þríleik. Í fyrra festi Disney kaup
á Lucasfilm og hreppti þar með réttinn
að gerð Star Wars-mynda. Áætlað er að
fyrsta myndin verði frumsýnd árið 2015.
Tvö ár eiga svo að líða þar til sú næsta
verður frumsýnd og önnur tvö þar til þrí-
leikurinn klárast. Á milli á svo að frum-
sýna sjálfstæðar myndir. Gangi þetta eftir
fá Star Wars-aðdáendur eina mynd á ári í
fimm ár.
Þríleikurinn er beint framhald af fyrsta
þríleiknum, gömlu góðu Star Wars-mynd-
unum. Talið er líklegt að Harrison Ford,
Mark Hamill og Carrie Fisher snúi aftur í
hlutverk sín.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Vélmennin R2D2 og C-3PO hafa verið í öllum sex Star Wars-myndunum til þessa og munu mæta til leiks í þeirri næstu. Svona
gætu þau tekið sig út á Jökulsárlóni ef af því verður að tökur á fyrstu myndinni fari fram hér á landi. Samsett mynd/Hari
Talið er
líklegt að
Harrison
Ford, Mark
Hamill
og Carrie
Fisher snúi
aftur í hlut-
verk sín.
2 fréttir Helgin 3.-5. maí 2013