Fréttatíminn - 03.05.2013, Blaðsíða 79
F erskar kryddjurtir er auðvelt að rækta, á svölunum er hægt að
vera með þær í pottum, inn á
milli gróðurs í beðum í garð-
inum eða saman í kryddgarði.
Auður I. Ottesen, garðyrkju-
fræðingur og ritstjóri Sumar-
hússins og garðsins, notar
krydd úr eigin ræktun allt
árið. Ferskar kryddjurtir yfir
sumartímann sem hún ræktar
í eldhúsglugganum, í pottum
og upphækkuðu beði þar sem
fjölærar kryddjurtir vaxa til
endanna en einærar í miðju.
Í mars sáir Auður fyrir
fyrstu kryddjurtunum, rós-
marín, og síðan koll af kolli
fram í apríllok. „Ég er að
rækta um 20 tegundir krydd-
jurta. Basiliku nota ég í pestó
en hana rækta ég í eldhús-
glugganum, hún þolir ekki
svalt íslenskt sumar. Tegundir
sem þurfa ekki mikið pláss set
ég saman í 20-30 lítra potta og
hef við anddyrið þannig að ég
geti skotist út til að ná mér í
krydd í matinn,“ segir hún og
bendir á að í einum pottinum
hafi hún sett saman blóðberg,
sléttblaða og hrukkótta stein-
selju og sítrónumelisu. „Salvía,
kóríander, Oregano og dill eru
líka fínar í samplöntun. Ég
kýs að vera með rósmarín og
majóran í sérpottum og pipar-
myntuna, sem skríður líkt og
skriðsóley, er ég með í beði og
skessujurtin sem er frekjan
í kryddjurtahópnum fær sér-
stakt pláss og næringarríkan
jarðveg.
Vetraforðann ræktar hún
svo í upphækkuðum rækt-
unarkassa sem smíðaður var
fyrir hana í vinnuhæð. „Það er
algert æði að geta staðið upp-
réttur þegar maður er að fást
við plönturnar. Kassinn er 90
sm hár og breiddin á beðinu
60 sm. Dýptin á moldinni er
30 sm en hún hvílir á grind
sem smíðuð er inn í kassann
og jarðvegsdúkur hindrar að
moldin skolist burt. Ég hef
ræktað í þessum kassa í mörg
ár með góðum árangri í bland,
lauk og krydd,“ segir Auður
sem sannarlega er með græna
fingur.
Helgin 3.-5. maí 2013 garðar og grill 7
Kryddjurtir Auðveld ræKtun
Eigið krydd allt árið
Auður I.
Ottesen,
garð-
yrkju-
fræð-
ingur og
ritstjóri
Sumar-
hússins
og
garðsins,
notar
krydd
úr eigin
ræktun
allt árið.
Auður I. Ottesen, ritstjóri Sumarhússins og garðsins, ræktar allt sitt krydd sjálf.
Blóðberg,
rósmarín,
stítrónu melisa
og hrokkin
og sléttblaða
steinselja eru
allt kryddjurtir
sem þrífast
vel í pottum á
svölunum eða
veröndinni.