Fréttatíminn - 03.05.2013, Blaðsíða 32
Laugavegi 80 S: 561 1330
www.s igurboginn . is
afsláttur
af öllum
síðbuxum
15%
helgartilboð
NÝJAR VÖRUR FRÁ
HOUSEDOCTOR
Gerum hús að heimili
TEKK COMPANY og HABITAT
Kauptúni | Sími 564 4400
www.habitat.is | Vefverslun á www.tekk.is
Opið mán.–lau. kl. 11-18 og sun. kl. 13-18
K
atrín Sylvía Símonardóttir er einstæð
móðir sem lét drauminn rætast eftir að
hún missti vinnuna í bankahruninu. Hún
hafði lengi leitað að hinum fullkomna
sundfatnaði fyrir konur með línur,
sundfatnaði sem leyfði henni að upplifa sig kynþokka-
fulla, auk þess að vera þægileg. Þegar leitin bar engan
árangur ákvað hún að taka málin í eigin hendur og
búa sundfötin til sjálf. Í vikunni kom fyrsta sending í
hús hjá fyrirtæki Katrínar Sylvíu, Kasy.
„Það eru þrjú ár síðan ég ákvað að stökkva út í
djúpu laugina og fara út í þennan bransa,“ segir Katr-
ín. Sundlínan hennar samanstendur af fimm flíkum
sem hægt er að breyta eftir því hvaða aðstæðum
konan er í. „Þegar ég fer á sólarströnd langar mig að
geta farið frá því að vera mjög fáklædd í sólbaði í að
vera meira hulin þegar ég leik við barnið mitt. Með
þessari hönnun þarf ég ekki að skipta um föt heldur
breyti bara flíkinni,“ segir hún.
Sölusýning í Miami
Eftir að Katrín var komin með hugmyndina í koll-
inn ákvað hún að skrá sig í viðskiptasmiðju Klaks,
nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, sem meðal
annars er ætluð frumkvöðlum með viðskiptahug-
myndir. Í framhaldinu fékk hún lán hjá Svanna, lána-
tryggingasjóði kvenna, til að koma framleiðslunni
af stað og fyrir markaðsetningu. Á síðasta ári fór að
draga til tíðinda þegar Kasy komst á topp 10 í frum-
kvöðlakeppni Innovit, Gullegginu. Katrín er síðan ein
þeirra sem í ár fengu styrk til atvinnumála kvenna frá
velferðarráðuneytinu. Hún fékk 1,25 milljón króna til
að markaðssetja Kasy sundfatnaðinn erlendis. „Ég er
að fara á sölusýningu í Miami í sumar þannig að nú er
allt að gerast,“ segir Katrín. „Ég stefni á bandaríska
markaðinn þar sem hann er mjög stór og yfir 68%
kvenna þar eru yfir kjörþyngd,“ segir hún.
Vörumerkið Kasy var formlega sett á laggirnar á
síðasta ári. Til að byrja með verða sundfötin bara til í
svörtu en Katrín vonast til að strax á næsta ári verði
hægt að fjölga litunum. Fötin fást í stærðum 12-26,
miðað við bresk númer og segist hún alltaf hafa stefnt
á stærri stærðir. „Mér fannst bara vanta sundföt fyrir
konur með línur sem vilja vera sætar og sexí. Síðan
er líka sterkara að koma nýr inn á markað sem er lítið
sinnt,,“ segir hún.
Vinkonurnar voru tilraunadýr
Allt framleiðsluferlið er búið að taka tvö ár og bæði
Katrín og vinkonur hennar hafa prófað sundfatnaðinn
á meðan hann var í þróun. „Já, þær hafa verið tilrauna-
dýrin mín og komið með hugmyndir að því sem mætti
betur fara,“ segir hún. Katrín hefur sjálf verið dugleg
að synda í Kasy-sundfötunum. „Sumir hafa horft
hissa á mig í sundlaugunum þegar ég er að smella við
sundfötin eða taka af. Þeir sem þora að spyrja hvað
í ósköpunum ég sé að gera eru almennt mjög hrifnir
og spyrja hvar ég hafi fengið sundfötin,“ segir Katrín
glettin.
Hún er þegar búin að semja við tískuvöruversl-
unina Belladonnu og undirfataverslunina HB búðina
um að selja sundfatnað Kasy. Þá verður hægt að
panta þau á vefsíðunni kasy.is. „Ég er afskaplega
ánægð. Á þessum langa þróunartíma hef ég oft hugs-
að um að hætta og ég er orðin frekar þreytt á því að
borða núðlusúpu,“ segir hún hlæjandi. „Það er samt
ástríðan sem hefur haldið mér gangandi og trúin á
vöruna. Ég hvet alla sem hafa hugmyndir til að láta
drauma sína rætast. Þetta er erfitt og hlutirnir gerast
hægar en maður heldur. En þetta er sannarlega þess
virði,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Mér
fannst
bara
vanta
sundföt
fyrir kon-
ur með
línur sem
vilja vera
sætar og
sexí.
Hannaði sjálf draumasundfötin
Íslensk sundföt fyrir konur með línur
eru komar á markaðinn. Sundfötin eru
afrakstur frumkvöðlavinnu Katrínar
Sylvíu Símonardóttur sem var orðin
þreytt á að leita endalaust að sundfötum
sem hún væri ánægð með. Hún fer með
sundfatalínuna á sölusýningu í Banda-
ríkjunum í sumar og setur markið hátt.
Sundfatalínan samanstendur af fimm flíkum sem hægt er að blanda saman á ólíka vegu, brjóstahaldara, sundbuxum, kjól, toppi og pilsi. Ljósmynd/Kasy.is
Katrín Sylvía Símonardóttir er konan á bak við Kasy-sundfatalínuna. Fyrsta sending kom í hús
fyrr í þessari viku. Ljósmynd/Hari
32 viðtal Helgin 3.-5. maí 2013