Fréttatíminn - 03.05.2013, Blaðsíða 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka dagaOpið kl. 11 - 16 laugardaga
GERIÐ GÆÐASAMANBURÐ!
Er frá Þýskalandi
69.900
VELDU
GRILL
SEM EN
DIST
OG ÞÚ
SPARA
R
Frábært grill
fyrir íslenskar
aðstæður
16,5
KW
Þyngd 55 kg
Fjöldi gas og
kolagrilla á
frábæru verði
eru postulínsemaleraðar
Grilleining og grillgrindur
Skúa undir öllu fyrir tu
Fjáröflun ADHD samtakanna
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
S 8-15 m/S og rigning en HægAri og
úrkomulítið nA-til. Hiti 2 til 8 Stig.
HöFuðborgArSvæðið: S 5-10 m/S og
rigning. Hiti 3 til 6 Stig.
nA 10-18 m/S, og SlyDDA nv-til AnnArS
A-læg átt og Skúrir. Hiti 0 til 5 Stig.
HöFuðborgArSvæði : nA 8-13 og SkýjAð
en úrkomulítið. FroSt 1 til 5 Stig.
n 10-18 m/S, en v-læg átt A-til. SlyDDA
eðA rigning. kólnAr AFtur.
HöFuðborgArSvæði : n 8-13 m/S.
SkýjAð en úrkomulítið. Hiti 1 til 5 Stig.
Skammvin hlýindi
Vaxandi sunnan og suðvestanátt
í dag, með hlýindum og rigningu
í flestum landshlutum. Austanátt
með áframhaldandi rigningu á
laugardag, en snýst í norðaustan
hvassviðri með slydduéljum
á Vestfjörðum en
snjókomu til fjalla.
norðanátt V-lands
og kólnar á
sunnudag, en
vestanátt
og þurrt
austantil.
4
2 1
1
4
4
2 2 2
4
2
0 -1 0
2
elín björk Jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
l eiklistarnám og fjárhagur níu íslenskra námsmanna í Danmörku er í uppnámi eftir að listrænum stjórnendum og
aðalkennurum skólans þeirra var sagt upp á
miðri önn. Skólanum, Holberg, var í fram-
haldinu lokað og fylgdu nemendur listrænu
stjórnendunum yfir í annan skóla sem þeir
stofnuðu með samskonar áherslur og sá fyrri.
Lánasjóður íslenskra námsmanna vill hins
vegar ekki meina að námið sé lánshæft í nýja
skólanum, CISPA (Copenhagen International
School of Performing Arts).
„Við getum ekki klárað námið okkar,“ segir
einn íslensku nemendanna, Dagur Snær
Sævarsson, sem kallar sig Daily Snow, en
skólagjaldið er um ein milljón íslenskra króna
á ári. Hann segir þá nú vinna að því hörðum
höndum að sýna LÍN fram á að í raun sé um
að ræða sama skóla, með annarri stjórn. Á
síðasta stjórnarfundi LÍN var samþykkt,
vegna sérstakra aðstæðna, að nem-
endurnir fái lán fyrir önnina sem
nú er að líða en
síðan ekki meir.
Styrkir upp á
milljónir
Daily Snow
segir að
þar með sé
ekki öll sagan
sögð því ein
af ástæðum
þess að
aðalkennurunum var sagt upp var gagnrýni
þeirra á að bókhald skólans væri ekki opið.
Upphaflega ætluðu nemendur að athuga
hvernig þeir gætu komið stjórninni frá. „Þá
fengum við upplýsingar um að það væri ýmis-
legt óhreint í bókhaldinu þeirra. Við skoðuð-
um það betur og komumst að því að formaður
stjórnarinnar hafði, ásamt ritaranum og
einum endurskoðanda stofnað félagasamtök
þar sem hann skráði nemendur skólans sem
stjórnarmeðlimi og sótti um styrki til sveitar-
félagsins fyrir þessi fölsku félagasamtök,“
segir hann. Daily Snow varð heldur undrandi
við nánari eftirgrennslan þegar hann komst
að því að hann, ásamt öðrum íslenskum
nemanda, er á pappírum skráður stjórnar-
meðlimur í Hjólaskautaklúbbi Norðurbrúar.
„Þetta bjó stjórnarformaðurinn til,” segir
Daily Snow. Hann hefur undir höndum gögn
sem sýna að styrkir til fjögurra fölsku félag-
anna nema allt að fjórum milljónum íslenskra
króna á fimm síðustu ársfjórðungum. Nem-
endur vinna að því að afla frekari gagna en
félögin voru alls sjö.
opna bókhaldið
Það var í framhaldi af þessu sem nemendurn-
ir kærðu stjórnarmenn í Holberg, skólanum
var formlega lokað og stjórnarformaðurinn
réði sér lögmann. „Við erum núna að leita
okkur að lögmanni sem getur tekið þetta að
sér,“ segir Daily Snow sem óttast að þurfa að
endurgreiða styrkina þar sem hann skrifaði
undir pappíra sem hann taldi vera vegna
félagaaðildar við skólann en í raun var hann
að skrifa undir að hann stýrði Hjólaskauta-
klúbbnum.
Nemendur CISPA standa nú í ströngu að
klára önnina og setja upp leikrit. Íslend-
ingarnir hafa hins vegar ekki gefist upp
við að sýna fram á lánshæfi skólans.
Daily Snow gagnrýnir hins vegar að
þeir fái ekki upplýsingar frá LÍN um
ástæður þess að Holberg uppfyllti
skilyrðin og hvað hann hafði fram
yfir CISPA. Báðir skólarnir eru
einkaskólar og því litlar upplýsing-
ar um þá að sækja til danskra yfir-
valda. Daily Snow segir nemendur
ekki geta farið í sambærilegt nám
í öðrum skóla. „Holberg var eini
alhliða leiklistarskólinn í Danmörku
sem er á skrá hjá LÍN. Þetta er því mjög
slæmt,“ segir hann. Þá bendir Daily Snow á
að CISPA ætlar að hafa opið bókhald og hefur
hann, sem fulltrúi nemenda, verið kjörinn í
stjórnina.
Framkvæmdastjóri LÍN vildi ekki tjá sig
um málið þegar eftir því var leitað og vísaði til
þess að nemendurnir hefðu undir höndum öll
svör frá LÍN.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
MenntaMál Íslenskir leiklistarneMar sjá ekki FraM á að geta lokið náMi
Hann
skráði
nemendur
skólans
sem stjórn-
armeðlimi
og sótti
um styrki
til sveitar-
félagsins
fyrir þessi
fölsku
félagasam-
tök.
Dregnir inn í svindl
og fá ekki námslán
níu íslenskir leiklistarnemar í Danmörku sjá ekki fram á að geta lokið náminu eftir að skólanum
var skyndilega lokað. nýr skóli hefur verið stofnaður með sömu formerkjum en lín samþykkir
námið ekki sem lánshæft. Stjórnarmenn gamla skólans hafa orðið uppvísir að því að stofna fölsk
félög með nöfnum nemendanna og fá opinbera styrki út á félögin. íslenskur nemandi kom af
fjöllum þegar hann komst að því að hann væri stjórnarmaður í Hjólakautafélagi norðurbrúar.
mt. Daily
Snow í
hlutverki
mammons
í nemenda-
sýningunni
komedien om
enhver sem
CiSPA setur
upp í vor.
mynd/CiSPA
Hófleg bjartsýni á
framtíðarhorfur
Væntingavísitala Capacent
gallup sýnir litla breytingu á
væntingum íslenskra neytenda
á efnahags- og atvinnulíf
þjóðarinnar á milli mars og
apríl. Væntingavísitalan lækk-
aði um rúm 2 stig á tímabilinu.
Hún mælist nú 87 stig en var
89 stig í mars. Capacent gallup
tekur fram að mælingin hafi
verið framkvæmd í fyrri hluta
mánaðarins, fyrir lokasprettinn
í nýafstaðinni kosningabaráttu
fyrir alþingiskosningar – og þau
kosningaloforð sem þá voru
gefin sem að öðru jöfnu ætti
að auka væntingar um bjartari
framtíð. Þrátt fyrir lækkunina
er þetta þriðja hæsta gildi
vísitölunnar frá því í apríl árið
2008. íslenskir neytendur eru
talsvert bjartsýnni nú á efna-
hags- og atvinnulíf þjóðarinnar
en þeir voru á sama tíma í fyrra.
í apríl í fyrra nam væntinga-
vísitalan 71 stigi. Vísitalan er
þó enn undir 100 stigum en þá
eru fleiri neytendur svartsýnir
en bjartsýnir. Væntingavístalan
mældist síðast yfir 100 stigum í
febrúar árið 2008. - jh
Vöruskiptaaf-
gangur 9,3 millj-
arðar í mars
Afgangur af vöruskiptum við
útlönd í mars var 9,3 milljarðar
króna, að því er fram kemur
hjá Hagstofu íslands. Það er
nær tvöfalt meiri afgangur en
í sama mánuði í fyrra, reiknað
á sama gengi. munurinn liggur
í talsvert minni innflutningi
í síðastliðnum mars en fyrir
ári. Útflutningur í mars nam
50,9 milljörðum króna en
innflutningur 41,6 milljörðum.
Útflutningurinn var í meginat-
riðum í takti við undanfarna
mánuði en innflutningur var
með minna móti. Það skýrist
að hluta af litlum innflutningi
hrá- og rekstrarvara og litlum
sem engum innflutningi skipa
og flugvéla. Á fyrsta fjórðungi
ársins var 25,6 milljarða króna
afgangur af vöruskiptum við
útlönd. Það er umtalsverð
aukning frá sama tíma í fyrra,
þegar 18,2 milljarða afgangur
var af vöruskiptum. Vöruskipti
við útlönd skiluðu 75,5 milljarða
króna afgangi á árinu 2012,
4,4% af vergri landsfram-
leiðslu. -jh
kuldamet
í maí
36 ára gamalt
kuldamet í
maímánuði féll í
fyrrinótt þegar
frost mældist 17,6
stig á gríms-
stöðum á Fjöllum.
Það er 0,2 stigum
kaldara en áður
hafði mest sést á
mælum hérlendis
í maímánuði.
engu að síður býst
veðurklúbburinn
á dvalarheimilinu
Dalbæ á Dalvík
við því að sumarið
verði gott, þegar
það loksins kemur.
Dalvíkingarnir
telja hins vegar að
það fari ekki að
vora almennilega
fyrr en eftir
hvítasunnuna sem
er 20. maí. Veður-
klúbburinn gefur
reglulega frá sér
veðurspár. Þær
rætast stundum
en stundum ekki.
í byrjun þessa mánaðar hófu ADHD sam-
tökin fjáröflun með sölu á armböndum.
Samtökin vilja líka vekja athygli á starfi
sínu og stöðu þeirra sem eru með ADHD.
Seld verða gúmmíarmbönd með áletrun
ADHD samtakanna og á þeim má einnig
finna mynd af gimsteini sem á að vísa til
þess jákvæða, góða og fallega sem býr í
öllum, eins og segir í tilkynningu frá sam-
tökunum. í ár fagna ADHD samtökin 25 ára
afmæli sínu og er sala armbandanna einn
liður af mörgum sem efnt verður til vegna afmælisins. Sala armbandanna hófst í gær
þegar Ólafur ragnar grímsson, forseti íslands, keypti fyrsta armbandið.
Ólafur ragnar grímsson, forseti íslands,
keypti fyrsta armbandið í fjáröflun ADHD
samtakanna.
4 fréttir Helgin 3.-5. maí 2013