Fréttatíminn - 03.05.2013, Síða 6
Dagskráratriði óskast
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun í
Reykjavík. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Hægt er að sækja um flutning atriða, uppákomur og viðburði á vefnum
www.17juni.is en umsóknum má einnig skila í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5,
101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 10. maí.
Upplýsingar í síma 411 5502 eða á 17juni@hitthusid.is
17. júní í Reykjavík
Sýningum lýkur í vor!
Miðasala 551 1200 | midasala@leikhusid.is
Dagbókarfærslur Meintar hugrenningar sigMunDar Davíðs í spéspegli á vef fréttatíMans
SMS frá Össuri – 15% skuldaniðurfærsla max – og broskall!
Kæra dagbók. Og góður Guð. Þú
sem vilt ekki blessa Ísland. Ef það
er þín hugmynd að ég geri hér ein-
hver stórvirki þá veit ég sannarlega
ekki hvort ég er rétti maðurinn.
Ég velti fyrir mér hvort það sé ekki
einhver önnur leið. Ég er búinn að
tala við alla formennina og ég held
að enginn þeirra vilji í raun fara í
ríkisstjórn. Nema Bjarni. Gall-
inn er að það vill enginn fara með
honum í stjórn. Allir hinir sjá að sá
sem fer í ríkisstjórn verður grýttur
í haust.“
Þannig byrjaði dagbók Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Framsóknarflokksins, á
vef Fréttatímans í gær, dagbók sem
birtist daglega á vefnum, fretta-
timinn.is. Rétt er að ítreka, eins og
gert er á vef Fréttatímans, að dag-
bókin er ekki skrifuð af Sigmundi
Davíð sjálfum heldur er hún spé-
spegill, skrifuð til að gera lífið
skemmtilegra. Formaður Fram-
sóknarflokksins er í miðri hringiðu
stjórnmálanna.
Fylgjast má með nýrri dag-
bókarfærslu dag hvern á vefnum:
frettatiminn.is
27. apríl „Æ, ég er orðinn syfjaður.
157 ólesin skilaboð og 26 missed call.
Helmingurinn fá pabba. Ég þori eiginlega
ekki að svara honum. Hann ætlar örugg-
lega að reyna að stjórna í gegnum mig.
Hann er minn Bush eldri.“
28. apríl „Kæra dagbók, þú getur ekki
ímyndað þér hvað það eru margir fram-
sóknarmenn í heiminum. Og ég held að
þeir hafi allir hringt í mig í dag.“
29. apríl
„En ég held að Bjarni sé jafn dasaður og
ég eftir Bessastaði. Við erum það líklega
öll. Mig langar mest til að setja á mig hár-
kollu og gerviskegg og fara á Iron Man. En
það er eins og að vera eftirlýstur að sigra
kosningar. Farsíminn er ökklabandið. Nýtt
SMS frá Össuri: 15% niðurfærsla skulda
max og þjóðaratkvæði um ESB 2014? Og
broskall! Svoldið desperate, kallinn.“
30. apríl „Svo er það Birgitta. Ég skil
hana ekki. Ég var aldrei á Hlemmi. Ég er
eins og hóll. Birgitta og Jón Gnarr eru
ský. Gnarr er klósigar, eitthvað sem er á
jaðri gufuhvolfsins. Birgitta er þoka sem
breytist reglulega í regnský. Á ég að reyna
að skilja þetta fólk? Ber mér skylda til
þess?“
1. maí „Gummi Steingríms
hefur engan sérstakan
áhuga á að fara í stjórn –
alla vega ekki með mér...
Mætti á fundinn eins og
einhver hipster og með
hinn formanninn með sér.
Heiða er ágæt. En það er
hálfkjánalegt að hafa tvo
formenn í sex manna flokki.“
Heildarlaun kvenna hjá
Hafnarfjarðarbæ eru
6,1% lægri en heildar-
laun karla að teknu tilliti
til starfsgreinar, aldurs,
starfsaldurs og fjölda yfir-
vinnustunda.
Það er svipaður munur og
mældist 2007. Ef kennarar
eru ekki meðtaldir mælist
kynbundinn launamunur
hjá bænum nú 9%, sem er
0,4% hækkun frá 2007.
Sé eingöngu litið til dag-
vinnulauna er munurinn
2,1% en 3,1% hjá öðrum en
kennurum en í hópi kenn-
ara er munurinn minnstur.
Mestur munur er á heildar-
launum ófaglærðra karla
og kvenna en á dagvinnu-
launum karla og kvenna í
hópi sérfræðinga.
Guðrún Ágústa Guðmunds-
dóttir bæjarstjóri segir
stöðuna ólíðandi. „Við
munum fara í markvissar
aðgerðir til að útrýma
þessum launamun," segir
hún í yfirlýsingu.
6,1% kynbundinn launamunur í Hafnarfirði
Þ etta er gert einu sinni á ári hér á landi. Þá kemur sænski skurð-læknirinn Gunnar Kratz frá Linköping. Hann er væntanlegur hingað nú í maí,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir.
Fimm Íslendingar munu gangast undir kynleiðréttingu í þessum
mánuði. Svíinn Gunnar Kratz framkvæmir aðgerðirnar en hefur ís-
lenska lækna á lýtalækningadeild Landspítala háskólasjúkrahúss sér
til halds og trausts. Óttar vildi ekkert segja um af hvoru kyni þeir væru
sem gangast munu undir kynleiðréttingaraðgerðir nú. Hann
er einn af þeim sem framkvæma mat á þeim sem
gangast undir kynleiðréttingu. „Það eru mjög
margir aðilar sem koma að því mati en ég er
einn af þeim, já,“ segir Óttar.
Aðeins ein kynleiðréttingaraðgerð var
framkvæmd hér á landi í fyrra. Óttar
segir að samtals hafi fjórtán aðgerðir
verið framkvæmdar hér á landi og hefur
Gunnar Kratz framkvæmt þær flestar.
Samtals hafa 20 Íslendingar gengist
undir kynleiðréttingu. „Þetta hefur
verið uppsafnaður vandi. Það voru engar
aðgerðir framkvæmdar frá 2001 til 2009.
Þess vegna eru þetta svona margar að-
gerðir nú,“ segir Óttar.
Aðspurður segist Óttar ekki bjartsýnn
á að íslenskir læknar muni framkvæma
kynleiðréttingaraðgerðir hér á landi í bráð.
„Þetta eru svo fáar aðgerðir á hverju ári. Tvær
til þrjár aðgerðir á ári er bara of lítið. Menn
verða bara að gera miklu fleiri að-
gerðir til að halda sér í æfingu.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
heilbrigðisMál sænskur skurðlæknir á leið til lanDsins
Fimm kynleiðréttingar
framkvæmdar hér í maí
Fimm kynleiðréttingaraðgerðir verða framkvæmdar á Landsspítala háskólasjúkrahúsi í þessum mánuði. Aðeins ein slík var
framkvæmd í fyrra. Ljósmynd/Nordicphotos/Getty
Sænski skurðlæknirinn Gunnar
Kratz mun framkvæma fimm
kynleiðréttingaraðgerðir hér
á landi í mánuðinum. Að þeim
loknum munu 25 Íslendingar
hafa gengist undir kynleið-
réttingu. Aðeins var ein slík
aðgerð framkvæmd hér á
landi í fyrra.
Óttar Guðmunds-
son geðlæknir.
Þetta hefur
verið uppsafn-
aður vandi. ... Þess
vegna eru þetta
svona margar
aðgerðir nú.
6 fréttir Helgin 3.-5. maí 2013