Fréttatíminn - 03.05.2013, Síða 20
Bækur Astrid Lindgren eru komnar á innkaupalistann
Mjallhvít á villigötum
E itt það skemmtilegasta í heiminum er að lesa. Lestur opnar okkur dulda heima, kynnir okkur fyrir persónum
og aðstæðum sem við myndum annars
aldrei vita af. Ég hef alltaf notið þess
að lesa og finnst mér mikilvægt að
halda bókum að þriggja ára dóttur
minni. Og einhvern veginn fékk ég
þá flugu í höfuðið að það væri góð
hugmynd að skrá hana í Disney-
klúbbinn og fá heimsenda bók í
hverjum mánuði.
Fyrsta bókin kom í vikunni. Ég leit
hratt á hana og fagnaði því að hafa
strax fengið Mjallhvíti. Ekki besta
fyrirmyndin en mér þykir samt vænt
um Mjallhvíti og söguna um hana
þurfa allir að þekkja til að teljast
gildir í almennri umræðu. Það er
bara svona eins og að vita að einu
sinni bjuggu risaeðlur á jörðinni.
Grundvallaratriði.
Á mig runnu tvær grímur þegar við
dóttirin byrjuðum að lesa nýju bókina. Ég
hafði jú séð að hún hét „Mjallhvít heim-
sækir dvergana sjö“ en taldi það bara vera
einhvern nútímatitil á klassíska sögu. Svo
var ekki. Bókin fjallar um sjö dverga sem
eiga von á Mjallhvíti nokkurri í heimsókn
ásamt prinsi sínum. Þeir ákveða að gefa
henni demant þegar hún kemur en til allrar
óhamingju týna þeir honum. Sem betur fer
finna þeir demantinn aftur. Í lok bókarinnar
kemur síðan þessi Mjallhvít, þau borða öll
saman og eru rosa kát. Endir.
Dóttir mín fékk um daginn skó að gjöf frá
ömmu sinni. Á skónum er mynd af Mjallhvíti
með epli og ég sé fram á að þurfa að kaupa
nýja bók til að það sé nú á hreinu í hennar
huga að Mjallhvít er ekki bara einhver gella
sem nokkrir dvergar bjóða í kvöldmat.
Ég kenni útgefendum Disney-bókanna
auðvitað ekki um þetta. Ég hefði auðvitað
átt að kynna mér betur hvað er boðið uppá
í þessum klúbbi og eflaust eru margir mjög
sáttir við að fá svona bækur.
Eftir að hafa deilt óánægju minni á
Facebook fékk ég nokkrar ráðleggingar.
Sérstaklega var ég hvött til að kaupa bækur
Astrid Lindgren en sem kunnugt er skrifaði
hún margar perlur. Lína langsokkur, Emil
í Kattholti, Ronja ræningjadóttir og Bróðir
minn ljónshjarta eru þeirra á meðal. Sumar
bóka hennar henta dóttur minni vissulega
betur þegar hún verður aðeins eldri en ég
held að ég kjósi þær frekar en framhalds-
Disneysögur sem eiga ekkert skylt við þær
upphaflegu.
Ég veit líka að mig langar að ala dóttur
mína upp við að lesa alvöru sögur sem eru
vel skrifaðar og með góðum fyrirmyndum,
börnum sem láta ekki segja sér of mikið
fyrir verkum og reyna á þolrif samfélagsins.
Það er líka gefið út mikið af barnabókum
eftir íslenska höfunda. Ekki nógu mikið
samt því það er eins og barnabókmenntir
njóti ekki þeirrar virðingar sem þær eiga
skilið. Góðar barnabækur eiga þátt í að ala
upp lesendur framtíðarinnar og barnabóka-
skrif eiga ekki að vera aukabúgrein.
Vissulega eru til sérstök verðlaun fyrir
íslenskar barnabækur en í hvert sinn sem
tilkynnt er um tilnefningar til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna sakna ég þess að
þar er ekki flokkur með barnabókum. Þessi
pistill endar því á þeirri tillögu minni að
barnabókahöfundar verði gjaldgengir til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna.
Ég sé fram á að þurfa að kaupa nýja bók til að það sé nú á hreinu í hennar huga að
Mjallhvít er ekki bara einhver gella sem nokkrir dvergar bjóða í kvöldmat.
Skráning og nánari upplýsingar
á hjoladivinnuna.is
Keppt er um:
• Flesta þátttökudaga - vinnustaðakeppni
• Flesta kílómetra - liðakeppni
ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS KYNNIR:
Samstarfsaðilar
Aðalstyrktaraðili
Vertu með!
Vinnustaðakeppni
8.-28. maí
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
sjónarhóll
105
ár eru síðan íþróttafé-
lagið Fram var stofnað.
Vikan í tölum
1.000.000.000
króna og rétt rúmlega það borgaði bandaríska
hugbúnaðarfyrirtækið Jive Software fyrir
íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Clara ehf.
Stofnendur Clöru eru Gunnar Hólmsteinn Guð-
mundsson, 27 ára, og Jón Eðvald Vignisson, 28
ára. Fyrirtækið er fimm ára gamalt.
20
milljónir króna
verða til úthlut-
unar á ári hverju
í nýjum Útflutn-
ingssjóði íslenskrar tónlistar.
2
ár í röð hefur Helena Sverris-
dóttir, landsliðskona í
körfuknattleik,
orðið meistari
í Slóvakíu
með liði sínu
Good Angels
Kosice.
25,6
milljarða afgangur var á vöru-
skiptum við útlönd fyrstu þrjá
mánuði ársins.
Og syngja Maí
stjörnuna...
Allir mega segja það
sem þeir vilja.
Árni Páll Árnason,
formaður Sam-
fylkingarinnar, stendur
vörð um málfrelsið og
leyfir meira að segja
Ólínu Þorvarðardóttur og
Merði Árnasyni að tjá sig.
En það er alltaf á
tali!
Við erum í síma-
skránni.
Heiða Kristín
Helgadóttir,
stjórnarformaður
Bjartrar framtíðar, er
alltaf til í að tala við
fulltrúa annarra flokka
um stjórnarmyndun.
Við erum öll fram
sóknarmenn!
Ég fagna þessum sigri
og finnst hann mikil-
vægur bæði fyrir
flokkinn og þjóðina.
Guðni Ágústs-
son, fyrrverandi
formaður Fram-
sóknarflokksins,
er í sigurvímu eftir
kosningasigurinn.
A, D, E, F, G á eftir
kemur B
Ætli ég taki þetta
ekki bara í stafrófs-
röð.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson,
formaður Fram-
sóknarflokksins,
fundar með
flokksformönnum í
réttri röð.
Vikan sEm Var
20 fréttir Helgin 1.-3. október 2010Helgin 3.-5. maí 3 vikunnar