Fréttatíminn - 03.05.2013, Side 28
Upplýsingar um okkur og
skráning crossfitreykjavik.is
SUMARTILBOÐ
Grunnnámskeið í maí 15.000 kr.
með júní 20.000 kr.
út sumarið 30.000 kr.
morguntímar kl. 6.30
hádegistímar 12.30
kvöldtímar kl. 19.00
auk 19 WOD-tíma alla virka daga
“Árangurinn er alveg ótrúlegur á ekki lengri
tíma. Ég léttist, styrktist og hef öðlast kraft
sem ég hef ekki haft í áraraðir fyrir utan hvað
þetta er skemmtilegt, hvetjandi og
aldrei eins”. - Geir Leó
É
g hef nokkrum sinnum lent í
ástarsorg og það hefur alltaf
verið ofboðslega erfitt,“ segir
Sólrún Ósk Lárusdóttir,
sálfræðingur hjá Geðhjálp.
„Ég lenti í minni fyrstu ástarsorg 14 ára.
Fyrsti kærastinn minn sagði mér upp og
ég réði ekkert við þær tilfinningar sem
fylgdu. Ég man að ég grét allan sólar-
hringinn í viku. Tárin láku niður kinn-
arnar þegar ég vaknaði og þannig bar
ég út Moggann, fór í skólann og borðaði
kvöldmat, segir Sólrún. Við þetta tæki-
færi skrifaði ein besta vinkona hennar
miða sem hún heldur enn mikið upp á.
Yfirskriftin var „Ráðleggingar við ástar-
sorg“ og voru ráðin í níu liðum. „Þrátt
fyrir að vera ungar að árum vorum við
vel lesnar í hinum ýmsu unglingablöðum
og sjálfshjálparbókmenntum og mörg af
þessum ráðum voru bara ansi góð,“ segir
hún.
Sólrún kemur til dyranna eins og hún
er klædd. Hún hefur róandi nærveru og
hlýlegt augnarráð, og augljóst er að hún
hefur valið sér réttan starfsvettvang.
Alvöru sorg
Hún hélt fyrirlestur um ástarsorg
nýverið í fyrirlestraröð sem Samtökin
Regnbogabörn stóðu fyrir. „Ég fékk fyrst
fræðilegan áhuga á ástarsorg þegar ég
sá að til okkar hjá Geðhjálp leitaði fjöldi
fólks með alvarlegan vanda sem við nán-
ari athugun átti upptök sín í ástarsorg,“
segir hún. „Það fyrsta sem mér finnst
skipta máli þegar fjallað er um ástarsorg
er að skilja að ástarsorg er alvöru sorg.
Ástarsorg er ekki eitthvað krúttlegt
fyrirbæri sem finnst bara hjá unglingum
sem engjast yfir því að uppáhalds popp-
stjarnan þeirra sé ekki lengur á lausu,“
Ástar-
sorg getur
verið lífs-
hættuleg
Til að hughreysta fólk sem er nýhætt
í sambandi er stundum sagt að það
hafi nú enginn dáið úr ástarsorg.
Staðreyndin er hins vegar að margir
hafa einmitt veslast upp andlega eftir
erfiðan skilnað og sumir jafnvel framið
sjálfsvíg. Sólrún Ósk Lárusdóttir, sál-
fræðingur hjá Geðhjálp, hefur í starfi
sínu kynnst fjölda fólks sem hefur átt
erfitt með að vinna úr ástarsorg. Hún
kann þónokkur ráð til að sigrast á
sorginni enda hefur hún sjálf upplifað
ástarsorg eins og flestir sem komnir
eru af unglingsaldri.
Það er
nauðsynlegt
að gera
sér grein
fyrir að
tilfinning-
arnar eru
eðlilegar,
allir syrgja
á sinn hátt
og það er
engin ein
rétt leið.
segir Sólrún og bendir á það að slíta sam-
bandi sé einn mesti streituvaldur sem við
upplifum á lífsleiðinni og að það getur
verið mikið áfall.
„Hjá sumum verður depurðin og lífs-
leiðinn viðvarandi og þróast út í þung-
lyndi. Hjá öðrum þróast líkamlegu ein-
kennin út í kvíða. Viðbrögð við svikum
geta þróast út í almenna tortryggni og
þráhyggju. Sumir missa algjörlega trúna
á sjálfa sig og festast í því að hugsa um
hvað þeir hljóti að vera ómögulegir úr
því að viðkomandi vildi ekki halda sam-
bandinu áfram,“ segir Sólrún. Afleið-
ingarnar geta því verið meiri en margur
heldur í fyrstu. „Stundum er sagt, sér-
staklega við þessa unglinga sem eru í
krúttlegu ástarsorginni, að það hafi eng-
inn dáið úr ástarsorg. En þetta er bara
ekki satt! Það hefur fullt af fólki dáið úr
ástarsorg. Sumir hafa tekið eigið líf eða
líf annarra vegna þess að þeir sjá ekki þá
stundina fram úr svartnættinu.“ Sólrún
leggur áherslu á að fólk leiti sér hjálpar ef
það hefur verið fast í viðjum ástarsorgar
í einn eða tvo mánuði án þess að vinna
bug á henni. Það sé engin skömm að
leita til sálfræðings, læknis eða annarra
sérfræðinga og stundum bara hreinlega
nauðsynlegt.
Margar birtingarmyndir
Hún leggur áherslu á að ástarsorg sé
einmitt sorg. „Sorg er skilgreind sem við-
brögð við missi og ástarsorg er vissu-
lega missir og henni fylgir sorgarferli
og úrvinnsla eins og í annarri sorg. Það
að missa maka vegna andláts getur líka
verið ástarsorg en dauðsfalli fylgja oftast
öðruvísi viðbrögð. Það er almennt viður-
Framhald á næstu opnu
Sólrún Ósk Lárusdóttir,
sálfræðingur hjá Geðhjálp,
ráðleggur fólki í ástarsorg að
næra ekki ástarfíknina með
því að skoða Facebook-síðu
síns fyrrverandi í tíma og
ótíma. Ljósmynd/Hari
28 úttekt Helgin 3.-5. maí 2013