Fréttatíminn - 03.05.2013, Síða 36
Ný sýn
N
„Notaðu fjaraugun,“ segja afkvæmi
mín stundum þegar þau vilja að ég
sjái eitthvað. Vera kann að ég kjósi
ekki að sjá allt eða nenni því ekki en
til frasans grípi þau vegna þess að
ég hef löngum montað mig af góðri
sjón, að sjá langt frá mér – og svo
hefur raunar verið og það ber vita
skuld að þakka.
Ég, eins og aðrir sem komast á
virðulegan aldur, hef samt ekki farið
varhluta af breytingum á sjón. Það
helgast helst af því að stafir í bókum,
blöðum og á tölvuskjá urðu smám
saman loðnari. Því þurfti stöðugt að
lengja bilið frá augum að bókstöf
unum þar til lengd handleggjanna
dugði ekki lengur.
Þá var ekkert annað að gera en að
fara til augnlæknis. Sá góði maður
skoðaði, mældi og sá, eins og við
var að búast, að ég þurfti lestrar
gleraugu. Þau hef ég verið með á
nefinu síðan. Það eina sem ég hef
þurft að gera er að styrkja gleraug
un endrum og sinnum, eftir því sem
árunum fjölgar. Annars duga augun
vel og sjónin er góð hvað sem líður
lestrargleraugunum og ég sé vel frá
mér. „Fjaraugun“ eru enn á sínum
stað, sem betur fer.
Þróunin hefur verið svipuð hjá
mínum betri helmingi, enda eru við
að kalla jafnaldra, aðeins munar átta
mánuðum á okkur þótt ég sé árinu
eldri, samkvæmt almanakinu. Þó
hefur hún að undanförnu kvartað
undan því að sjá verr en áður, jafnvel
svo að hefðbundnu gleraugun dugðu
vart. Því fór hún til augnlæknis. Sá
skar úr um að hún þyrfti að fara í
augnsteinaaðgerð sem hann sagði
að væri til þess að gera lítið mál.
Eftir það sæi hún miklu betur en
fyrr, jafnvel eins og unglingur.
Henni var gefinn tími nokkuð
fram í tímann en að fyrri aðgerðinni
kom á dögunum. Augun á að lagfæra
með um það bil mánaðar millibili.
Ég gantaðist aðeins vegna þessa,
þótt auðvitað verði það að vera í
hófi þegar augun eru annars vegar,
minnti hana á að við værum að kom
ast á viðgerðaraldurinn þegar huga
þarf að endurnýjun á ýmsum líkams
pörtum.
Hún tók því með jafnaðargeði og
sagði ástandið á okkur varla vera
verra en hjá öldruðum hjónum,
það er að segja hjónum sem eru
talsvert miklu eldri en við, sem
fengu sér hafragraut í morgun
sárið nýverið. Gamla konan sagði
dreymin á svip við mann sinn, um
leið og hún fékk sér skeiðarfylli af
grautnum: „Manstu þegar við vorum
ung og borðuðum hafragrautinn
nakin?“ „Já, elskan mín, þótt langt
sé um liðið man ég það eins og það
hefði gerst í gær,“ sagði sá gamli.
„Mér hitnar allri við það eitt að
rifja þetta upp,“ bætti gamla konan
við og horfði ástúðlega yfir gler
augun á þann mann sem hún hafði
eytt ævinni með. „Það er nú bara af
því, gæskan,“ sagði bóndi hennar,
sem enn var með bærilega sjón,“ að
þú ert með annað brjóstið í hafra
grautnum og hitt í kaffibollanum!“
Það er því hlýlegt að fá að eldast
saman – en það er önnur saga.
Eins og góðum eiginmanni sæmdi
ók ég konu minni í augnaðgerðina, á
hægra auga, og sótti hana að henni
lokinni. Síðan fór ég í apótekið og
keypti augndropa sem læknirinn
ráðlagði henni að nota um hríð.
Konunni bar að hafa hægt um sig
dagana eftir sem hún gerði, hélt
sig frá birtu og notaði lepp fyrir
viðgerða augað. Dropana brúkaði
hún samkvæmt læknisráði. Allt
gekk þetta vel, sem betur fer. Eftir
aðgerðina sá hún miklu betur með
hægra auganu en óviðgerðu vinstra
auganu. Í eftirskoðun spurði hún
augnlækninn hvernig það væri að
vera með svo mismunandi sjón á
augunum. Hann sagði það ekki vera
vandamál því heilinn jafnaði það út
og nýtti betra augað. Svo væri þess
heldur ekki langt að bíða að hann
lagfærði vinstra augað. Þá sæi hún
vel með báðum augum. Magnað er
það hvað augnlæknar geta gert, ekki
síður en aðrir læknar, til að auðvelda
okkur lífið en enn magnaðra er líf
færið góða í toppstykkinu á okkur
sem, auk annars, leiðréttir nær sam
stundis missýn augnanna.
Frúin sér því til muna betur en
áður – og væntanlega enn betur
þegar aðgerðin hefur verið gerð á
báðum augum. Þessu fagnaði ég að
vonum en varð þess þó var, svona á
þriðja eða fjórða degi eftir augnað
gerðina á hægra auganu, að hún
horfði svolítið undarlega á mig. Það
gat ekki verið vegna þess að ég hefði
misst brjóstin ofan í hafragrautinn
því þau hef ég engin, auk þess sem
ég var aðeins með ristað brauð og
ávaxtasafa fyrir framan mig.
„Ansi er ennið á þér orðið
hrukkað,“ sagði konan, eftir að hafa
horft á mig dágóða stund með nýja
auganu – og raunar því gamla líka
en með mun betri sjón en áður eftir
að heilinn beindi öllum sínum krafti
í sýn nýja augans. „Ég hafði bara
ekki tekið eftir þessu fyrr,“ bætti
hún við – „eða hreinlega bara ekki
séð það.“
„Hvaða vitleysa er þetta í þér,“
sagði ég og neita því ekki að mér var
nokkuð brugðið enda taldi ég húðina
á mér slétta eins og barnsrass, þar
sem ég tek ég lýsi sem heilsuþátt
urinn í Fréttatímanum segir að geri
kraftaverk fyrir húð og hár, auk
þess sem ég borða íslenska tómata,
ræktaða í Biskupstungum, sem sami
heilsuþáttur segir að auki teygjan
leika húðarinnar og minnki líkurnar
á ótímabærum hrukkum.
Hvað ætli hún sjái þegar augn
læknirinn verður búinn að yngja í
henni bæði augun?
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
36 viðhorf Helgin 3.-5. maí 2013
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 7.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð frá 40.000
Höfðagaflar frá 5.000
Sjónvarpsskápar frá 25.000
Rúm 153cm frá 157.000
Speglar frá 5.000
Fjarstýringavasar frá 2.500
Hægindastólar frá 99.000
Tungusófar frá 75.400
Hornsófar frá 139.900
Sófasett frá 99.900
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Hornsófar - Tungusófar - Sófasett
Sófasett - Hornsófar - Tungusófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl.9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is
Nýtt
Torino
Mósel
Milano
Basel
Paris
Inntökupróf verða laugardaginn 11. maí
Enn eru laus pláss í öllum hljóðfærum
Tónlistarskólinn í Reykjavík
Við sérhæfum okkur í námi á mið- og fram-
haldsstigum í hljóðfæratónlist og öllum stigum
í söng
Frábært úrval kennara, sjá nánar á vefsíðu
skólans www.tono.is
Í haust hefst nám í klassísku slagverki
Auður Hafsteinsdóttir, fiðlukennari kemur aftur
til starfa
Nánari upplýsingar í síma 553 0625 milli
kl. 13-16 alla virka daga og á www.tono.is
•
•
•
•