Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.05.2013, Page 59

Fréttatíminn - 03.05.2013, Page 59
Útvarp Saga er uppáhalds út- varpsstöðin mín og þar vega þyngst símatíminn Línan er laus, síðdegisþáttur þeirra Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugs- sonar og svo ekki síst, hingað til, skoðanapistlar hins mjög svo kjaftagleiða verkalýðsfrömuðar frá Fáskrúðsfirði, Eiríks Stefáns- sonar. Nú er hins vegar skarð fyrir skildi. Eiríkur tilkynnti í upphafi vikunnar, froðufellandi af bræði eins og venjulega, að hann væri hættur. Eiríkur hefur árum saman reynt að hafa vit fyrir þjóðinni með slíkum munnsöfnuði og fúkyrða- flaumi að maður hefur setið hug- fanginn við hlustir. En nú hefur hann gefist upp. Kosningaúrslitin voru þess eðlis að honum féllust hendur. Eðlilega þar sem segja má að drjúgur hluti landsmanna hafi með ráðstöfun atkvæða sinna sýnt Eiríki, svo ekki verður um villst, að þeir annað hvort hlusti ekki á hann eða taki ekkert mark á honum. Kvótagreifar, „útrásargarkar“, spillingargosar og gróðapungar hljóta þó að anda léttar nú þegar þokulúðurinn Eiríkur er þagnaður. Ég deili ekki þeirri gleði og vona heitt og innilega að Arnþrúður, með allan sinn sannfæringarkraft, nái að lokka þennan óðamála hrópanda í eyðimörkinni aftur að hljóðnemanum. Á þessum síðustu og verstu tímum pólitískrar rétthugsunar og landlægrar móðgunargirni sem oftar en ekki eru uppspretta kjána- legra meiðyrðamála eru básúnu- leikarar eins og Eiríkur Stefáns- son mikilvægir menn. Hafi hann bestu þakkir fyrir að hafa þorað að tjá sig og að skemmta mér enda- laust með vaðli sínum. Maður þarf alls ekki að vera sammála Eiríki í einu og öllu til þess að hafa lýðræðislegan þroska til þess að vilja láta rödd hans hljóma. Eiríkur komdu aftur! Þórarinn Þórarinsson 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun STÖÐ 2 07:00 Strumparnir 07:25 Villingarnir 07:50 Hello Kitty 08:00 UKI 08:05 Algjör Sveppi 10:50 Victourious 11:15 Glee (16/22) 12:00 Spaugstofan (23/23) 12:25 Nágrannar 13:50 American Idol (33/37) 14:35 Týnda kynslóðin (32/34) 15:00 How I Met Your Mother 15:25 Anger Management (5/10) 15:50 2 Broke Girls (21/24) 16:15 Kalli Berndsen - í nýju ljósi 16:45 Spurningabomban (19/21) 17:35 60 mínútur 18:23 Veður 18:30 Fréttir 18:55 Stóru málin 19:30 Sjálfstætt fólk 20:05 Mr Selfridge (8/10) 20:55 The Mentalist (21/22) 21:40 The Following (14/15) 22:25 Mad Men (4/13) 23:15 60 mínútur 00:00 The Daily Show: Global Editon 00:25 Suits (4/16) 01:10 Game of Thrones (5/10) 02:05 Big Love (5/10) 03:05 Boardwalk Empire (10/12) 04:00 Breaking Bad (5/13) 04:45 The Listener (10/13) 05:25 Anger Management (5/10) 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 08:30 Fuchse Berlin - RN - Löwen 09:50 Barcelona - Bayern 11:30 Þorsteinn J. og gestir - 11:55 Real Madrid - Valladolid 13:35 Chelsea - Basel 15:15 Pepsi deildin 2013 - upphitun 16:45 Pepsi deildin 2013 Beint 19:00 NBA leikur 7 eða leikur 1 22:00 Barcelona - Betis Beint 23:40 Pepsi deildin 2013 01:30 Barcelona - Betis 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 09:00 Swansea - Man. City 10:40 Tottenham - Southampton 12:20 Liverpool - Everton Beint 14:45 Man. Utd. - Chelsea Beint 17:00 Sunnudagsmessan 18:15 Liverpool - Everton 19:55 Sunnudagsmessan 21:10 Man. Utd. - Chelsea 22:50 Sunnudagsmessan 00:05 QPR - Arsenal 01:45 Sunnudagsmessan SkjárGolf 06:40 Wells Fargo Champ.(3:4) 11:10 Inside the PGA Tour (17:47) 11:35 Wells Fargo Championship (3:4) 16:05 The Open Champ. Official 1978 17:00 Wells Fargo Championship (4:4) 22:00 US Open 2008 - Official Film 23:00 Golfing World 23:50 ESPN America 5. maí sjónvarp 59Helgin 3.-5. maí 2013  í útvarpinu pistlar Eiríks stEfánssonar Andófsmaður leggur árar í bát

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.