Fréttatíminn - 03.05.2013, Page 62
62 bíó Helgin 3.-5. maí 2013
Myndin gat
af sér tvær
framhalds-
myndir. Evil
Dead II leit
dagsins ljós
1987 og
Army of
Darkness
kom út
1992.
evil DeaD NafNtogaðasta hrylliNgsmyND síðustu áratuga
l eikstjórinn Sam Raimi gerði hryllings-myndina Evil Dead árið 1981 fyrir lítinn pening. Með honum í liði voru aðalleik-
arinn Bruce Campell og Robert Tapert sem
framleiddi myndina með hinum tveimur.
Evil Dead þótti býsna subbuleg á þess tíma
mælikvarða og var lengi vel á alræmdum bann-
lista yfir kvikmyndir á Íslandi. Myndin féll í
frjóan jarðveg ytra og ekki spillti fyrir að hroll-
vekjukonungurinn Stephen King jós hana
lofi. Öflugir fjárfestar gengu því til liðs við fé-
lagana og Evil Dead lagði upp í blóðuga sigur-
för um heiminn.
Myndin gat af sér tvær framhaldsmyndir.
Evil Dead II leit dagsins ljós 1987 og Army of
Darkness kom út 1992. Evil Dead II var gam-
ansamari en fyrsta myndin og Army of Dark-
ness er beinlínis gamanmynd sem segir frá
hremmingum aðalhetjunnar Ash (Campell)
þegar hann er kominn yfir í þann djöflaheim
sem óvættir hinna myndanna spruttu upp úr.
Raimi og Campell eru með áform um að
halda sögunni áfram og gera fjórðu myndina
en þeir framleiða einnig Evil Dead-endurgerð-
ina sem þeir treystu Fede Alvarez til að leik-
stýra.
Heittrúaðir aðdáendur frummyndarinnar
voru ekkert of hressir með hugmyndina um
endurgerð en Alvarez virðist hafa staðið undir
væntingum bæði þeirra og framleiðendanna
þar sem Evil Dead, árgerð 2103, hefur verið vel
tekið í Bandaríkjunum þar sem hún hefur gert
það gott í miðasölu og almennt verið vel tekið
af gagnrýnendum. Alvarez er því eðlilega byrj-
aður á handriti Evil Dead II en sú mynd verður
ekki endurgerð heldur hyggst leikstjórinn fara
með söguna í nýjar áttir.
Söguþráður Evil Dead og þar með þeirrar
subbuveislu sem boðið er upp á nú er flestum
kunnur en myndin segir frá fimm vinum sem
hafast við í afskekktum kofa úti í sveit. Þar
vekja þeir óafvitandi upp fjandsamlega skratta-
kolla úr öðrum heimi sem taka sér bólfestu í
vinunum með skelfilegum afleiðingum.
Campell lék Ash í gamla þríleiknum og eins
og allt vel skólað fólk í hryllingsfræðum endaði
hann með að missa höndina í viðureign sinni
við þá djöflamergi sem herjuðu á hann og fé-
laga hans í Evil Dead. Hann setti þá vélsög
á stubbinn og beitti henni af einurð og festu
gegn fjendum sínum. Ash og Campell eru
fjarri góðu gamni í endurgerðinni en leikar-
inn og framleiðandinn er hæstánægður með
útkomuna:
„Brellurnar eru tíu sinnum betri en nokkuð
sem við höfðum aðgang að og leikararnir eru
allir betri en við vorum 1979.“ Campbell segir
Raimi vera brjálaðan snilling og þess vegna
hafi útkoman orðið jafn klikkuð og raun ber
vitni. Og allt bendir til þess að Alvarez sé verð-
ugur sporgöngumaður.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,1, Rotten Tomatoes: 62%,
Metacritic: 57%
Á níunda áratugnum og langt fram eftir þeim tíunda þurfti ekki annað en nefna Evil Dead til þess
að hrollgjörnum unglingum rynni kalt vatn milli skins og hörunds enda myndin með þeim áhrifa-
meiri sem fram höfðu komið í þeirri deild. Evil Dead markaði upphafið á ferli leikstjórans Sam
Raimi og hins kostulega leikara Bruce Campell. Myndin hefur nú verið endurgerð með velþóknun
þeirra félaga.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Endurvinnsla á sígildum hrolli
Endurgerð Evil Dead segir sömu hrakningasögu og fyrirmyndin frá 1981 og sem fyrr lendir hópur
ungmenna í lífsháska þegar þau vekja óvart upp skrattakolla sem eru ekki af þessum heimi.
Ryan Gosling er með vinsæl-
ustu leikurum heims þessi
misserin og eftir magnaða
frammistöðu í Drive þyrstir fólk
í meiri hasar frá þessum mjög
svo prúða manni. Ofbeldisveisl-
unnar Only God Forgives, þar
sem hann og Nicolas Winding
Refn, leikstjóri Drive, sameina
krafta sína á ný er því að vonum
beðið með óþreyju.
The Place Beyond The Pines
ætti þó að virka sem ágætis
biðstöð en hér leikur Gosling
mótorhjólakappa sem rótar sér
í vandræði. Þegar hann hittir
gamla vinkonu, sem Eva Men-
des leikur og kemst að því að
hann á með henni son sem hann
vissi ekkert um, ákveður hann
að leggja fyrir sig bankarán til
þess að auðgast hratt og geta
séð fjölskyldu sinni farborða.
Þessi áætlun gengur ekki
upp sem skyldi og áður en hann
veit af er hann kominn upp á
kant við gamlan kunningja sem
Bradley Cooper leikur.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.8, Rotten
Tomatoes: 80%, Metacritic: 68%
Ryan Gosling er alltaf jafn
sætur en hefur sérstakt lag á
að koma sér í klandur.
frumsýND
The Place Beyond The Pines
IN MEMORIAM?
LAU & SUN 18:00 (L)
THE VIRGIN SPRING /
THE LAST HOUSE ON THE LEFT
SUN: 20:00 (16)
SKÓLANEMAR: 25% AFSLáTTUR GEGN FRAMVíSUN SKíRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
EFTIR
ÓMAR RAGNARSSON
Fæst í apótekum, Fjarðarkaupum og Heilsubúðinni Hafnarrði
Hentar sérlega vel fíngerðu hári
Ert þú búin
að prófa ?
BíóDómur iroN maN 3
Geggjað fjör
Robert Downey Jr. hefur verið frábær í
hlutverki Tony Stark/Iron Man en hefur
aldrei verið í jafn miklu stuði og í Iron
Man 3 enda fær hann að njóta sín mikið
utan búningsins sem gerir hann nánast
ósigrandi. Hinn sjálfumglaði Tony Stark er
bara miklu skemmtilegri en Járnkarlinn
og er ómótstæðilegur klæddur holdi
Downeys.
Þessi þriðja Iron Man-mynd er sú besta hingað til enda kannski ekki við öðru að búast
þegar handritshöfundurinn og leikstjórinn Shane Black er annars vegar. Hann hefur
skrifað nokkrar bestu spennumyndir síðustu áratuga, Leathal Weapon, The Last Boyscout
og The Long Kiss Goodnight og víða má greina bergmál þessara mynda í Iron Man 3.
Aukapersónur sögunnar fá líka loks að njóta sín. Gwyneth Paltrow er loksins annað og
meira en gluggaskraut og Don Chedale og Downey komast í góðan Leathal Weapon-fílíng
þegar þeir snúa bökum saman. Ben Kingsley er síðan bráðskemmtilegur og ábúðarmikill
í hlutverki terroristans The Mandarin. Sannkallaður senuþjófur. Þórarinn Þórarinsson