Fréttatíminn - 03.05.2013, Blaðsíða 68
Í takt við tÍmann Guðrún Sóley GeStSdóttir
Gæðastundir að fara út að hlaupa með pabba
Guðrún Sóley Gestsdóttir er 25 ára Vesturbæingur sem er að ljúka námi í bókmenntafræði við HÍ. Hún er ritstjóri Stúdentablaðsins og hefur starfað
um hríð á Morgunblaðinu en færir sig um set í sumar og hefur störf á Ríkisútvarpinu.
Staðalbúnaður
Ég kaupi voða lítið af fötum á Ís-
landi en þegar ég geri það er það á
fatamörkuðum og í búðum eins og
Zöru, Topshop, Geysi og GK. Eins
og allir Íslendingar er ég eins og
kálfur að vori þegar ég kemst í búðir
í útlöndum. Ég trompast alveg þegar
ég kem inn í Cos, þar missi ég alla
sjálfsstjórn. Uppáhalds merkið mitt
er Acne, það er rosalega fallegt. Svo
er það náttúrlega bara H&M. Ég
einskorða mig ekki við neinn stíl,
ég kaupi bara það sem ég er í skapi
fyrir þá stundina. Ég legg eigin-
lega skammarlega litla hugsun í það
hvernig ég klæði mig en ég reyni þó
að láta þægindi ganga fyrir. Samt
geng ég alltaf í háhæluðum skóm til
að fela smæð mína. Allar vinkonur
mínar eru hávaxnar eins og súper-
módel og ég hef vanið mig á að ganga
á stultum til að halda í við þær.
Hugbúnaður
Það er eiginlega stórviðburður ef ég
hætti mér út á galeiðuna. Ætli það
sé ekki svona tvisvar á ári. Ég nenni
bara ekki þessu djammi, það er ósjar-
merandi að standa í röð og stappi. Ég
sæki hamingjuna annað. Samt er ég
rosa mikið fyrir að dansa en þar sem
það er aldrei pláss til þess á skemmti-
stöðum fæ ég útrás í að kenna dans í
Háskóladansinum. Eitt það skemmti-
legasta sem ég geri er að leyfa mér að
fara út að borða með vinum mínum
eða á kaffihús. Á Kaffitári í Banka-
stræti fæ ég rosa gott kaffi en þar
sem ég eyði flestum mínum stundum
á Háskólatorgi sæki ég næringu mest
í Hámu og Stúdentakjallarann. Ef ég
hætti mér út af háskólasvæðinu er
gott að borða á Austurlandahraðlest-
inni, Saffran eða á einhverjum góðum
sushi-stað. Mér finnst fátt leiðinlegra
en að hlaupa á hlaupabretti eins og
hamstur en útihlaup höfða til mín. Ég
er enginn Kári Steinn en ég nýt þess
að hlaupa um Reykjavík og hlusta
á góða tónlist. Við pabbi hlaupum
mikið saman, það eru gæðastundir
hjá okkur. Hann er 72 ára en er miklu
betri hlaupari en ég. Ég horfi eigin-
lega aldrei á sjónvarp en er með blæti
fyrir bresku gríni og uppistandi.
Uppáhaldsþættirnir núna eru A Bit
of Fry & Laurie sem eldast svo vel
að það er kraftaverki líkast. Uppá-
halds uppistandarinn minn er Dylan
Moran, hann er eiginlega leiðtogi lífs
míns.
Vélbúnaður
Eins og margir er ég með nefið ofan
í símanum og tölvunni til skiptis. Ég
á Macbook Pro tölvu og iPhone og
nota myndavélina í símanum ofsalega
mikið. Ég er miskunnarlaus í notkun
minni á samfélagsmiðlum; Insta-
gram, Snapchat og Facebook, ég er
algerlega háð þessu stússi og nota
það sem afsökun til að gera eitt-
hvað annað en læra og vinna.
Aukabúnaður
Ég hef rosa gaman af því að
elda. Það fer svolítið eftir árs-
tíðum hvað ég elda en það
er allt frá léttum réttum og
grilli á sumrin upp í nauta-
lund. Ég les mikið af uppskrift-
arbókum og matarbloggum.
Besta bloggið er Evalaufeykj-
aran.com. Ég á fullt af áhuga-
málum, dansinn, ræðumennsku
og skrif, bækur og tónlist svo fátt
eitt sé nefnt. Ég fór á Aldrei fór
ég suður um páskana og það var
með skemmtilegri ferðum. Það er
svo ótrúlega fallegt á Ísafirði. Ég er
einmitt ættuð þaðan. Í sumar er ég að
fara til Amsterdam og London og svo
langar mig líka að ferðast innanlands.
Uppáhalds borgin er alltaf Barcelona
eftir að ég bjó þar eftir menntaskóla
og var í háskóla. Ég setti mér það
takmark að fara þangað árlega en
það hefur ekki alveg tekist. En ég hef
mikið dálæti á Barcelona og ætla mér
að búa þar aftur.
Guðrún Sóley gengur alltaf á háum
hælum til að fela smæð sína. Hún segist
missa alla sjálfsstjórn þegar hún kemur
inn í tískuverslanirnar Cos. Ljósmynd/Hari
Smáralind | www.mkm.is | 571-0003
Finndu okkur á facebook :)
Við eigum mikið úrval af tískufatnaði
fyrir verðandi mæður og konur með
barn á brjósti.
Við bjóðum einnig upp á glæsilegar
flíkur sem henta konum sem ekki eiga
von á barni. Það geta því allar konur
fundið eitthvað við sitt hæfi hjá okkur.
Skoðið úrvalið í vefversluninni okkar á
w w w . m k m . i s
Við sendum frítt hvert á land
sem er og keyrum vörur heim á
höfuðborgarsvæðinu.
Ég er ein af þeim sem
vakna stundum mjög
úrill þrátt fyrir að hafa
sofið mína átta tíma.
Um hríð hefur verið
hægt að kaupa rán-
dýrar vekjaraklukkur
sem skynja svefn-
mynstrið og vekja
þig þegar þú sefur
léttum svefni. For-
ritari nokkur komst að
því að öll tæknin sem
þarf til að fylgjast með
svefnmynstri væri til
staðar í iPhone-símum
og hannaði app sem
kostar smáaura.
Notandi stillir sím-
ann þannig að hann
hafi 30 mínútna bil til
að vekja sig, til dæmis
milli sjö og hálfátta.
Síminn er síðan lagð-
ur við koddann áður
en farið er að sofa og
appið mælir svefn-
stig og gæði svefnsins
með því að skrá niður
hreyfingar í svefni.
Því miður gengur því
ekki að nota appið á
dýnum sem eru mjög
harðar.
Satt að segja þá hélt
ég að þetta væri tómt
rugl, svona eins og allt
sem hljómar of gott
til að vera satt. Mér
til mikillar undrunar
vakna ég hins vegar
alltaf spræk þegar
ég man að kveikja á
appinu. Svefnpurrkur:
Þetta er app fyrir
ykkur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
appafenGur
Sleep Cycle
68 dægurmál Helgin 3.-5. maí 2013