Fréttatíminn - 11.11.2011, Síða 79
Helgin 11.-13. nóvember 2011
Leikdómur kjartan eða BoLLi?
Sú sem unni mest
Falleg sýning í Þjóðleikhúsinu sem líður fyrir handritið.
L eiksýningin Kjartan eða Bolli? er gestaleikur í Kúl-unni í Þjóðleikhúsinu, sýn-
ing ætluð elstu bekkjum grunnskóla
og fullorðnum sem miðlað er með
brúðum, texta, myndlist og skugga-
leikhúsi. Viðfangsefnið er hinn
dramatíski ástarþríhyrningur milli
fóstbræðranna Kjartans og Bolla
og skörungsins Guðrúnar Ósvíf-
ursdóttur. Sýningin er fróðleg og
fjölbreytt og það er gaman að rifja
upp þessa frásögn – og þarft fyrir
marga sem lásu Laxdælu á skóla-
skyldualdri.
Leikur og brúðustjórnun eru í
styrkum í höndum Helgu Arnalds
og Hallveigar Thorlacius. Brúðurn-
ar, og raunar leikhúslausnirnar all-
ar, eru augnayndi og gaman að sjá
hvernig ýmis konar tækni er nýtt í
þágu sögunnar. Handritið er hins
vegar veikur hlekkur, nútímaramm-
inn sem sniðinn er utan um söguna
er haldlítill og mjög endasleppur,
áherslurnar á köflum skrýtnar og
lítið lagt út af innihaldi sögunnar
eða þýðingu atburðanna – sem ég
held að ungmenni hefðu bæði gagn
og gaman af.
Efniviðurinn er ríkulegur, tækn-
in, handbragðið og túlkunin fjöl-
breytt en tilgangurinn ekki nógu
ljós.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
kjartan eða Bolli?
Leikgerð Hallveigar Thorlacius byggð á Laxdælu
Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson
Sögusvuntan / Tíu fingur
Viggosson.com er öflugur uppboðsvefur fyrir
listmuni hvort sem þú ert að kaupa eða selja.
Kíktu inn á vefinn okkar og skoðaðu úrvalið.
Viggosson.com | Sóltúni 1 | 105 Reykjavík | Símar 571 1318 og 869 5804
Náttúruleg útgeislun
Án parabena
Án tilbúinna ilmefna
Án litarefna
Burt ś Bees Radiance línan inniheldur Royal Jelly sem er talið eitt
næringarríkasta efni jarðarinnar, Radiance línan er full af næringu
og andoxunarefnum ásamt fjölda náttúrulegra innihaldsefna sem
öll hafa þann eiginleika að draga úr fínum línum og laða fram
náttúrulegan ljóma húðarinnar.
Fæst í apótekum
náttúran og ég
Getur þú
styrkt barn?
www.soleyogfelagar.is