Fréttatíminn - 11.11.2011, Blaðsíða 36
E
ftir nokkurra ára raunir, misheppnaðar tækni- og
glasafrjóvganir, í von um barn mætti Ingibjörg
Ólafsdóttir með hnút í maga í vinnu sína á Reykja-
lundi um miðjan júní 2010. Hún vissi að þennan dag
fengi hún hugsanlega símtal um að barn biði þeirra
Valdimars Hjaltasonar, eiginmanns hennar, í Kína. Starfsmenn
Íslenskrar ættleiðingar sátu alla nóttina og leituðu barna með
skilgreindar sérþarfir á listum kínverskra stjórnvalda eftir for-
skrift væntanlegra foreldra.
„Svo var hringt,“ segir hún. „Yfirmaður minn sagði að hann
hefði viljað skutla mér heim um leið og ég fékk fréttirnar, en
hann sá bara undir iljarnar á mér þar sem ég hljóp í gegnum
trjálendið beinustu leið heim. Ég gat ekki beðið eftir því að
greina manninum mínum frá fréttunum,“ segir hún þar sem
við sitjum við eldhúsborðið á heimili þeirra í Mosfellsbæ. Sonur
þeirra Eysteinn Orri sötrar heitt kakó við hlið hennar. Hann
varð þriggja ára í byrjun maí. Ingibjörg lýsir því þegar hún vissi
fyrst af Eysteini.
„Á fimm vikna fresti eða svo skoðar Íslensk ættleiðing upp-
færðan lista yfir kínversk börn með sérþarfir. Ekki er hægt að
búast við að barn finnist strax við fyrstu skoðun fyrir væntan-
lega foreldra, en þannig var það í okkar tilfelli. Kristinn [fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar] hringdi í mig í vinnuna
um klukkan ellefu og sagði mér frá upplýsingum um barn sem
við gætum skoðað. Spennan og tilhlökkunin var mikil. Þegar
við sáum gögnin ákváðum við strax að barnið yrði okkar.“
Drengur beið þeirra í Kína
Fullkominn strákur, eins og Ingibjörg segir, beið þeirra í Kína.
„Við fengum mynd af honum og gengum með hana á okkur og
sýndum öllum. Þetta gerðist allt svo hratt hjá okkur. Umsókn
okkar fór út í mars 2010, við fengum forsamþykki fyrir því að
ættleiða barn með sérþarfir hér heima í lok maí og myndina
af drengnum 22. júní sama ár. Ég fann að nánasta fólkið okkar
óttaðist – eðlilega kannski – að ættleiðingin gengi ekki í gegn
og að við yrðum fyrir vonbrigðum eins gerst hafði áður.“
Litli drengurinn var tveggja ára þegar þau fengu vitneskju
um hann. Hann hafði verið vistaður á munaðarleysingjaheimili
í borginni Jinan í Shandong-héraði. Það er í klukkustundar
flugleið frá Peking, höfuðborg landsins. Hann hafði fundist
hálfs árs gamall fyrir utan stofnun í borginni. „Í Kína geta for-
eldrar ekki gefið börn sín til ættleiðingar. Þau finnast því flest
þar sem mannmergðin er mikil; á torgum eða fyrir utan félags-
málastofnanir, vilji foreldrar þeirra að börnunum verði búin góð
ævi,“ segir Ingibjörg.
„Á barnaheimilinu var aðbúnaðurinn eins góður og mögu-
legt er á svona stað. Þau voru fimm í herbergi og það virtist
hafa verið hugsað vel um þau,“ segir Ingibjörg sem skoðaði
heimilið með Valdimar og Eysteini tveimur dögum eftir að hafa
fengið hann í hendur. „Heimsóknin var gífurlega erfið. En jafn-
framt er mjög dýrmætt að hafa haft tækifæri til þess að heim-
sækja það og sjá hvernig hann bjó. Á heimilinu voru börn allt
upp í átján ára aldur, en þá býðst þeim að fara í háskóla. Ég get
ekki metið hvort þau sæki í slíkt nám eða hafi fengið þá örvun
sem þarf eða stuðning til þess,“ segir hún.
„Í þessari heimsókn virtist Eysteinn ekki vilja sjá eða heyra
af börnunum eða fóstrunum sem þar voru. Hann kúrði sig
upp að okkur, en pabbi hans var með hann í poka framan á
sér. Hann hélt mjög fast í pabba sinn,“ segir hún áður en hún
lýsir tilfinningarússíbananum þegar hún fékk Eystein fyrst í
hendurnar.
Fyrstu kynni erfið
„Kínverski fararstjórinn hringdi í okkur upp á hótelherbergi
og sagði að þau væru á leiðinni upp. Svo bankaði hún. Eysteinn
vildi náttúrulega ekkert með okkur hafa. Þessi stund er hrika-
lega erfið fyrir þessi litlu grey. Hann öskraði úr sér lungun í
einhverjar mínútur og sjálf grét ég tregafullum tárum, bæði af
gleði en einnig meðaumkun því þetta er gífurlegt sjokk fyrir
litlu skinnin sem vita ekki á þessari stundu hvað þau eru að fá,
bara missa.“ Ingibjörg segir þau hjónin hafa talið sig nægilega
undirbúin fyrir þetta augnablik enda setið námskeið Íslenskr-
ar ættleiðingar áður en þau fóru út og rætt við foreldra með
reynslu af ættleiðingum.
Fengu
fullkom-
inn dreng
Hjónin Ingibjörg og Valdimar ættleiddu tveggja og
hálfs árs dreng frá Kína fyrir rúmu ári og nefndu hann
Eystein Orra. Drengurinn var á lista yfir börn með
sérþarfir til ættleiðingar. Hann er fullkominn, segir
Ingibjörg í samtali við Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir.
Þau hafa þegar ákveðið að ættleiða annað barn af
listanum en 34 börn með sérþarfir hafa verið ættleidd
til landsins síðustu fjögur ár.
„En það er ekki hægt að undirbúa sig
fullkomlega fyrir slíka stund. Hún var
hrikalega erfið. En Eysteinn var fljótur að
tengjast okkur, strax þennan fyrsta dag,“
segir hún. Það má líka sjá á myndböndum
sem sýna drenginn kubba á hótelherberg-
inu þennan fyrsta dag fjölskyldunnar, enda
rétt tveggja og hálfs árs gamall.
„Hann var fyrsta klukkutímann í algjöru
sjokki. En við gáfum honum að drekka og
hann jafnaði sig. Við fengum klukkustund
með honum og þurftum þá að fara í mynda-
töku. Það gekk fínt, en þegar við komum
aftur upp á hótelherbergi, klæddum við
hann í léttari föt, því hann var allur sveittur
og þá fór hann að hlæja. Hann var glaður og
náði að sofna um kvöldið og svaf í tólf tíma.
Við sváfum hins vegar ekki mikið, enda
hafði adrenalínið flætt um æðarnar þennan
dag,“ segir hún
Sex vikna leikskólaaðlögun
„Gengið hefur vonum framar að tengjast Ey-
steini. Miklu betur en maður þorði að vona.
Stundum afneita ættleidd börn öðru for-
eldrinu fyrst um sinn. Við vorum svo heppin
að það varð ekki. Hann varð strax mjög
háður okkur og passar upp á okkur. Hann
hefur treyst á okkur og ekki sótt til annarra
eftir hjálp. En auðvitað er það ferli sem við
vinnum í í mörg ár. Við sjáum það nú þegar
hann fer á leikskóla að það er stutt í van-
traustið. Hann óttast að við sækjum sig ekki.
Hann var það stálpaður þegar við sóttum
hann og við skynjum að hann man ýmis-
legt. Við sjáum að leikskólinn minnir hann á
barnaheimilið. Við þurftum því að segja hon-
um að hann ætti ekki að sofa á leikskólanum,
engin börn svæfu þar og að mamma og pabbi
kæmu alltaf að sækja hann í lok dags.“ Þetta
fékk Eysteinn Orri að heyra dag hvern í þær
sex vikur sem aðlögunin stóð yfir.
„Síðar komst ég að því að hann vildi vita
allt um leikskólakennarana og vissi jafnvel
hvernig bílum þær óku. Hann vildi vita allt
áður en hann gat treyst umhverfinu og því að
við kæmum að sækja hann.“
Ingibjörg og Valdimar hafa verið saman
í níu ár. „Það var mikill léttir að ákveða
að ættleiða barn, því þá vissum við að við
myndum eignast barn, spurningin væri að-
eins hvenær, en ekki hvort,“ segir hún. Þau
hafa nú ákveðið að ættleiða aftur barn með
sérþarfir frá Kína. Biðin er þeim auðveldari
nú en áður, þótt Ingibjörg segi það sérstaka
tilhugsun að barnið sem þau fái vonandi í
hendur á næsta ári sé að öllum líkindum
þegar fætt.
„Í Kína geta for-
eldrar ekki gefið
börn sín til ættleið-
ingar. Þau finnast
því flest þar sem
mannmergðin er
mikil; á torgum eða
fyrir utan félags-
málastofnanir, vilji
foreldrar þeirra að
börnunum verði
búin góð ævi.“
Ingibjörg og Valdimar með
gullið sitt, Eystein Orra.
Mynd/Hari
Framhald á næsu opnu
36 viðtal Helgin 11.-13. nóvember 2011