Fréttatíminn - 11.11.2011, Blaðsíða 42
Höfðatorg mesta
skipulagsslysið
Höfðatorg er mesta skipulagsslysið á
höfuðborgarsvæðinu, að því er fram
kemur í könnun sem gerð var á meðal
arkitekta og skipulagsfræðinga. Þar eru
Höfðatorg, Háskólinn í Reykjavík, fyrir-
huguð stækkun Landspítala og Grand
Hótel talin mestu skipulagsmistök á
höfuðborgarsvæðinu. Færsla Hring-
brautar sem og Smáralind og umhverfi
hennar eru einnig nefnd. Á meðal
þess sem þátttakendur í könnuninni
skrifuðu um Höfðatorg var að það væri „í
mælikvarða sem mátast ekki af skynsemi
inn í umhverfið, kaldur og fráhrindandi
arkitektúr, sviptivindar, óaðlaðandi um-
hverfi, grátt kalt og gróðursnautt.“
Ríki og borg
lána Hörpu
Ríkið og Reykjavíkurborg munu lána
Austurhöfn, eiganda Hörpu, 730 milljónir
króna. Austurhöfn er í eigu íslenska
ríkisins og Reykjavíkurborgar. Ríkið á
54 prósent og mun lána 394 milljónir
króna. Borgin á 46 prósent og mun lána
336 milljónir króna. Til viðbótar við lánið
nema framlög ríkis og borgar vegna
Hörpu 960 milljónum króna á ári. Lánið
á að endurgreiðast þegar Austurhöfn
hefur tryggt sér endurfjármögnun.
Heildarkostnaður vegna Hörpu og
tengdra verkefna er áætlaður tæplega 28
milljarðar króna.
Drjúg björgunarlaun
fyrir Ölmu
Tugir, jafnvel hundruð milljóna króna
í björgunarlaun gætu komið í hlut
útgerðar Hoffells og skipverja, fyrir að
draga flutningaskipið Ölmu frá Hornafirði
til Fáskrúðsfjarðar um síðustu helgi.
Verðmæti skipsins og farmsins um borð
er talið vera vel á annan milljarð króna.
Bæjaryfirvöld á Hornafirði ætla einnig að
gera kröfu um björgunarlaun, fyrir hlut
hafnsögumanna í björgun skipsins.
Jóhanna fundaði með
leiðtogum ESB
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
hitti leiðtoga Evrópusambandsins að máli
í Brussel í vikunni. Hún átti fund með
Hermanni van Rompuy, forseta leiðtogar-
áðs Evrópusambandsins og Jose Manuel
Barosso, forseta framkvæmdastjórnar
þess. Aðildarviðræður Íslands bar á
góma auk þess sem rætt var um þann
viðsnúning sem orðið hefur í efnahags-
málum á Íslandi á síðustu þremur árum.
Slæm vika
fyrir Árna Johnsen alþingismann
Góð vika
fyrir Þorstein Guðmundsson leikara og handritshöfund
15,3
Milljarðar sem erlendar
eignir lífeyrissjóðanna
minnkuðu um í september á
þessu ári.
6.100
Miðaverð aðra leiðina á
milli London og Íslands
samkvæmt kynningu EasyJet
sem hyggst bjóða upp á flug
til og frá Íslandi frá og með
næsta sumri.
22 %
Hlutfall sem eignir lánastofn-
anna hafa minnkað um frá
árinu 2008 fram á mitt ár
2011 samkvæmt ársskýrslu
Fjármálaeftirlitsins sem birt
var á dögunum.
186.000.000
Mánaðarlaunin í krónum
talið sem enska knatt-
spyrnukappanum David
Beckham standa til boða hjá
mexíkóska liðinu Xoloitzcu-
intles Tijuana.
Þýsk upphefð
Hinn bangsalegi Þorsteinn Guðmundsson, einn viðkunnalegasti
leikari þjóðarinnar, fékk glæsilegt þýskt prik í kladdann í vik-
unni en mynd hans, Okkar eigin Ósló, hefur verið valin opnunar-
mynd á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Mannheim-Heidelberg í
Þýskalandi. Þorsteinn leikur annað aðalhlutverk myndarinnar
og skrifaði auk þess handritið. Myndin
er í aðalkeppni hátíðarinnar ásamt
nítján öðrum kvikmyndum en alls
höfðu hátíðarhaldararanir úr sjö
hundruð verkum að velja. Okkar
eigin Ósló var frumsýnd á Ís-
landi fyrr á þessu ári og
er leikstjóri hennar
Reynir Lyngdal
sem nýtur að
sjálfsögðu hinnar
þýsku upphefðar
einnig sem og
Þorsteinn gerir.
Grátt leikinn á þingi og í Skálholti
Sá framkvæmdaglaði þingmaður Árni Johnsen hefur ekki átt sjö
dagana sæla. Fyrst var hann sakaður af Ólínu Þorvarðardóttur um
að hafa sofið undir ræðu hennar á Alþingi – sem Árni aftók með
öllu að hann hefði gert –
og svo tók Húsafriðunar-
nefnd ríkisins sig til og
beitti skyndifriðun á
Skálholtsskóla, Skálholts-
kirkju og nánasta um-
hverfi. Fyrir vikið verður
að stöðva framkvæmdir
við endurbyggingu
Þorláksbúðar, sem er
Árna sérstakt hjartans
mál enda formaður
Þorláksbúðarfélagsins.
Árni reyndi að sýnast
óbugaður í fréttum sjón-
varps en var augsýnilega
hart keyrður.
106
vikan í tölum
Reyfarakennt skákeinvígi
Sjálfsagt hefur ekki farið fram hjá
mörgum að tveir glæpasagnahöf-
undar nota skákeinvígi aldarinnar
í Reykjavík árið 1972 sem baksvið
bóka sinna þetta árið. Arnaldur
Indriðason hverfur aftur í tímann í
Einvíginu og slíkt hið sama Óttar M.
Norðfjörð í Lygaranum. Bókunum
var stillt upp sem andstæðupari í
Kiljunni þar sem rýnar þáttarins,
Páll Baldvin Baldvinsson og Kolbrún
Bergþórsdóttir, hrósuðu Arnaldi en
tóku Óttar engum vettlingatökum.
Fjaðrir rithöfunda á Facebook ýfð-
ust við þetta meðal annars vegna
þess að Páll Baldvin afskrifaði
reyfara sem bókmenntir.
Guðmundur Andri Thorsson
Dostojevskí var í rauninni alvöru-
höfundur og hefði ekkert þurft að
hafa þessa glæpi í sögum sínum.
Ágúst Borgþór Sverrisson
Óttalegt bull um bók Óttars í
Kiljunni. Rosalega var ég heppinn
að sleppa við Kollu og Pál Baldvin
í vor.
Rúnar Helgi Vignisson
Páll Baldvin sagðist vera búinn að
fá nóg af að fjalla um glæpasögur í
Kiljunni. Tímamótayfirlýsing.
lausnin á eineltisvandanum
Einelti hefur verið áberandi í um-
ræðunni og ríki og borg ákváðu
í vikunni stilla saman strengi
ogskera upp herör gegn þessu
samfélagsmeini. Gerendur sæta
oft færis í frímínútum en hugmynd
uppeldisfrömuðarins Margrétar
Pálu Ólafsdóttur um að leggja niður
frímínútur féllu í grýttan jarðveg á
Facebook.
Villi Goði
ja einmitt, leggjum niður frímín-
útur og þá hættir einelti. Frábær
lausn. Bönnum líka fólki að fara á
djammið og þá kannski náum við
að útrýma nauðgunum og slags-
málum. Pössum að börnin okkar
verði ekki fyrir neinu áreiti frá
lífinu yfirhöfuð og þá kemur aldrei
neitt fyrir. Bönnum og bönnum og
bönnum og lokum og læsum.
Andri Þór Sturluson
Í frímínútunum eignaðist ég nánast
alla mína vini. Troddu þessu Mar-
grét og fylgstu bara betur með
börnunum. Ef frímínútur stuðla að
einelti þá stuðlar afnám þeirra að
félagslega þroskaheftum börnum.
Það eru ekki frímínúturnar sem
eru vandamálið, það er sú stað-
reynd að frekjudollum er leyft að
komast upp með hvað sem er sem
er vandamálið. Margrét Pála: Vill
leggja niður frímínútur - Stuðla að
einelti og eru mesti háskatíminn
skólagöngunni.
Framsókn fríkar út
Þingmenn Framsóknarflokksins
fóru á límíngunum vegna greinar
sem Eiríkur Bergmann Einarsson
skrifaði í Fréttatímann í síðustu
viku. Þar sagði hann Framsóknar-
flokkinn í seinni tíð hafa daðrað við
þjóðernisstefnuna. Framsóknar-
fólkið taldi Eirík vera að bendla þau
við fasisma og sögðust í yfirlýsingu
ekki geta setið undir „ósönnum
aðdróttunum um þjóðernisöfgar og
útlendingahatur.“ Síðasta útspilið
úr herbúðum framsóknar er krafa
Vigdísar Hauksdóttur um að Eiríkur
verði rekinn úr starfi sínu á Bifröst.
Flokkurinn naut ekki mikillar sam-
úðar á Facebook í vikunni.
Sjon Sigurdsson
Umfjöllun Eiríks er málefnaleg og
vel studd. Sannleikanum verður
hver sárreiðastur. Framsóknar-
flokkurinn leitar hér á þau fúlumið
sem íslenskir stjórnmálaflokkar
hafa sem betur fer haft gæfu til
að forðast. Þar til núna að hinn
siðferðislega skaddaði Framsóknar-
flokkur notar þessi lægstu brögð
almennrar ummræðu til að draga
athyglina frá því hverskonar þrota-
bú hann er orðinn. Þ.e. brunarústir
sjálftökumanna með sem hafa að
leiðtoga mann sem alinn var upp í
miðju þeirrar klíku sem eyðilagði
þennan fyrrum flokk húmanískra og
hófsamra gilda. Það eina sem grein
Eiríks hefur með ESB að gera er að
hann afhjúpar hvernig Framsóknar-
flokkurinn ætlaði að gera fordóma
og þjóðernishyggju að tæki sínu í
baráttu sinni gegn aðild en stendur
nú uppi með útbíaðar brækurnar á
hælunum.
Elías Halldór Ágústsson
Þessar grófu atlögur að akademísku
frelsi eru eiginlega bara sönnun á
því sem hann var að segja ...
Eirikur Bergmann
Þá þarf maður líklega að fara að
pakka saman ;-)
HeituStu kolin á
Iðnaðarmenn
voru í gær í óða
önn að ganga frá
síðustu tækjum og
tólum í nýrri líkams-
ræktarstöð, Reebok
Fitness, sem opnar
í Holtagörðum í dag
föstudag. Ljósmynd/Hari
Fjöldi heimilda sem embætti sérstaks
saksóknara hefur fengið til símhlerana frá
stofnun embættisins.
42 fréttir vikunnar Helgin 11.-13. nóvember 2011
Bókaútgáfan Hólar
FRÁSAGNIR ÚR AUSTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
Viðmælendur eru hjónin
Álfheiður Magnúsdóttir
og Gísli Arason,
Ingibjörg Zophaníasdóttir,
feðgarnir Sigurður og Einar
í Hofsnesi
og Þorvaldur Þorgeirsson
"Fyrir áhugafólk um land og sögu er
bókin Á afskekktum stað hvalreki."
Sigurður Bogi Sævarsson,
Morgunblaðið 28.10. 2011
holabok.is/holar@holabok.is