Fréttatíminn - 11.11.2011, Blaðsíða 84
Tíska ÁsTfangið parLifandi
fortíðar-
myndir
Heillandi endurminningasaga
Sigurðar Pálssonar
Sigur ður Pá lSSon
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Bernskubók kallast á við
Minnisbók Sigurðar sem hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007
„… ein sú albesta bók sem ég hef lesið
um uppvöxtinn og leiðina til þroska.“
F r iðr ik a Be nón ýSdó t t ir / F r ét ta Bl a ðið
2 0 0 7
bbbb
Síðdegisrokk í Hörpu
H arpa, í samvinnu við hljóm-plötubúðina 12 tónar, stendur fyrir þeirri ný-
breytni að bjóða upp á síðdegistón-
leika annan hvern föstudag þar sem
ýmsar af efnilegustu hljómsveitum
landsins spreyta sig í bland við
aðrar reyndari og þekktari. Í dag
munu Nolo og Mammút telja í og
rokka af stað klukkan 17.30 í Kalda-
lónssal Hörpu.
Tónleikaröðin hefur fengið nafn-
ið Undiraldan og er ókeypis inn.
Þarna er sem sagt rakið að mæta fá
sér bjór, ef áhugi er fyrir slíku, og
hlusta á góða tónlist. Það er meira
að segja hægt að bjóða krökkunum
með og eiga fjölskyldustund þar
sem þetta er haldið á kristilegri
tíma en rokktónleikar eru yfirleitt.
Nolo Spilar á Undiröldunni í Hörpu í
dag ásamt Mammút.
Y ou want the moves like Jagger. I've got the moves like Jagger.
I've got the mooooooves... like
Jagger,“ söng Adam Levine,
forsprakki hinna ofurvinsælu
hljómsveitar Maroon 5 á
árlegri nærfatasýningu Vic-
toria Secret. Hann varð fyrir
óvæntri truflun þegar unnusta
hans, rússneska ofurfyrirsæt-
an Anne Vyalitsyna, valsaði
framhjá honum á sýningar-
pallnum í kynþokkafullum
undirfatnaði. Levine átti bágt
með sig á pallinum og gekk
með unnustunni nokkur skref
áður en hann leyfði áhorfend-
um að njóta útsýnisins.
Þessi árlega sýning nær-
fatarisans nýtur ávallt mikillar
athygli og voru margar af
fegurstu fyrirsætum heims
á meðal sýningarstúlkna að
þessu sinni. Levine var ekki
sá eini sem tróð upp því einnig
var boðið upp rándýrt tvíeyki
sem samanstóð af þeim Kanye
West og Jay-Z.
Levine og Vyalitsyna eru ástfangin upp
fyrir haus. Nordic Photos/Getty Images
Söng fyrir kærustuna á nærfatasýningu
V ið erum að byrja að dreifa bókinni og það eina sem fólk þarf að gera til þess að
eignast hana er að ganga í SÁÁ,“
segir formaðurinn Gunnar Smári
Egilsson. „Enda stendur á bókinni
að það sé bannað að selja hana eða
afhenda öðrum en félögum í SÁÁ
þannig að það er um að gera að
ganga í samtökin.“
Hugmynd Gunnars Smára var
að setja saman skáldaþing og fá
63 skáld til þess að leggja SÁÁ
lið með ljóði og það reyndist lítið
mál. „Ég hringdi í 63 skáld og það
komu 63 ljóð þannig að það var 100
prósent samstaða í hópnum. Þetta
er mjög falleg bók og skáldunum
er raðað þannig upp að yngsta
skáldið er fremst og það elsta
aftast. Það er líka mjög gaman
þegar maður les í gegnum þetta
að þá fær maður einhverja tilfinn-
ingu fyrir því hvernig hugmyndir
og fólk breytist með aldrinum. Það
er alveg augljóst á skáldskapnum
að yngra fólkið er yngra og eldra
fólkið er eldra og horfir öðruvísi
á lífið. Þarna innanum eru svo
algerar perlur, lífsspekiperlur sem
drjúpa af sumum síðunum.“
Gunnar Smári segir að vissu-
lega skipti félagsgjöldin samtökin
miklu og í þeim þrengingum sem
nú steðja að SÁÁ muni um hvern
félaga en „það skiptir ekki síður
máli að SÁÁ er fjöldahreyfing
sem rekur starfsemina. Það voru
félagarnir sem byggðu upp SÁÁ
og starfsemina.“ Annað mikilvægt
hlutverk félaga í samtökunum
núna, að mati Gunnars Smára, er
að halda áfram réttindabaráttu
áfengis- og vímuefnasjúklinga
þar sem „það er ekki gefið að við
fáum þau réttindi og þjónustu sem
við þurfum. Þá er líka mikilvægt
að félagarnir veiti starfseminni
aðhald þannig að hún miðist alltaf
við að veita sjúklingunum sem
bestu þjónustuna. Þetta er starf-
semi í eigu sjúklinganna og það
er ákveðin snilld fólgin í því. Það
er ekki hægt að segja þetta um
margar heilbrigðisstofnanir en það
er ekkert gefið að starfsfólkið eða
ríkisvaldið eigi að eiga stofnanir.
Okkur finnst þetta mjög sniðugt
og gott fyrirkomulag, að sjúkling-
arnir eigi stofnunina. Enda skiptir
þá mestu máli að þetta sé gert vel.“
toti@frettatiminn.is
sÁÁ félagar fÁ skÁldagjöf
Lífsspekiperlur
drjúpa af síðunum
Félagsstarfsemi SÁÁ er alfarið rekin fyrir félagsgjöld og eigin tekjur samtakanna en í raun
rennur minnstur hluti teknanna til starfsemi félagsins þar sem í ár stefnir í að SÁÁ leggi um 160
milljónir króna til meðferðar- og sjúkrahússreksturs þar sem opinber framlög hrökkva skammt.
Félagsgjöldin eru samtökunum því mikilvæg og nú hefur verið brugðið á það ráð að gefa félögum
ljóðabókina Skáldagjöf en í henni eru ljóð 63 skálda sem gáfu SÁÁ ljóð til birtingar.
Gunnar Smári og SÁÁ bjóða nýja félaga velkomna með bókagjöf. Auðveldast er að ganga til liðs við sam-
tökin á vefnum saa.is eða með því að senda tölvupóst á saa@saa.is.
84 dægurmál Helgin 11.-13. nóvember 2011