Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.11.2011, Qupperneq 36

Fréttatíminn - 11.11.2011, Qupperneq 36
E ftir nokkurra ára raunir, misheppnaðar tækni- og glasafrjóvganir, í von um barn mætti Ingibjörg Ólafsdóttir með hnút í maga í vinnu sína á Reykja- lundi um miðjan júní 2010. Hún vissi að þennan dag fengi hún hugsanlega símtal um að barn biði þeirra Valdimars Hjaltasonar, eiginmanns hennar, í Kína. Starfsmenn Íslenskrar ættleiðingar sátu alla nóttina og leituðu barna með skilgreindar sérþarfir á listum kínverskra stjórnvalda eftir for- skrift væntanlegra foreldra. „Svo var hringt,“ segir hún. „Yfirmaður minn sagði að hann hefði viljað skutla mér heim um leið og ég fékk fréttirnar, en hann sá bara undir iljarnar á mér þar sem ég hljóp í gegnum trjálendið beinustu leið heim. Ég gat ekki beðið eftir því að greina manninum mínum frá fréttunum,“ segir hún þar sem við sitjum við eldhúsborðið á heimili þeirra í Mosfellsbæ. Sonur þeirra Eysteinn Orri sötrar heitt kakó við hlið hennar. Hann varð þriggja ára í byrjun maí. Ingibjörg lýsir því þegar hún vissi fyrst af Eysteini. „Á fimm vikna fresti eða svo skoðar Íslensk ættleiðing upp- færðan lista yfir kínversk börn með sérþarfir. Ekki er hægt að búast við að barn finnist strax við fyrstu skoðun fyrir væntan- lega foreldra, en þannig var það í okkar tilfelli. Kristinn [fram- kvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar] hringdi í mig í vinnuna um klukkan ellefu og sagði mér frá upplýsingum um barn sem við gætum skoðað. Spennan og tilhlökkunin var mikil. Þegar við sáum gögnin ákváðum við strax að barnið yrði okkar.“ Drengur beið þeirra í Kína Fullkominn strákur, eins og Ingibjörg segir, beið þeirra í Kína. „Við fengum mynd af honum og gengum með hana á okkur og sýndum öllum. Þetta gerðist allt svo hratt hjá okkur. Umsókn okkar fór út í mars 2010, við fengum forsamþykki fyrir því að ættleiða barn með sérþarfir hér heima í lok maí og myndina af drengnum 22. júní sama ár. Ég fann að nánasta fólkið okkar óttaðist – eðlilega kannski – að ættleiðingin gengi ekki í gegn og að við yrðum fyrir vonbrigðum eins gerst hafði áður.“ Litli drengurinn var tveggja ára þegar þau fengu vitneskju um hann. Hann hafði verið vistaður á munaðarleysingjaheimili í borginni Jinan í Shandong-héraði. Það er í klukkustundar flugleið frá Peking, höfuðborg landsins. Hann hafði fundist hálfs árs gamall fyrir utan stofnun í borginni. „Í Kína geta for- eldrar ekki gefið börn sín til ættleiðingar. Þau finnast því flest þar sem mannmergðin er mikil; á torgum eða fyrir utan félags- málastofnanir, vilji foreldrar þeirra að börnunum verði búin góð ævi,“ segir Ingibjörg. „Á barnaheimilinu var aðbúnaðurinn eins góður og mögu- legt er á svona stað. Þau voru fimm í herbergi og það virtist hafa verið hugsað vel um þau,“ segir Ingibjörg sem skoðaði heimilið með Valdimar og Eysteini tveimur dögum eftir að hafa fengið hann í hendur. „Heimsóknin var gífurlega erfið. En jafn- framt er mjög dýrmætt að hafa haft tækifæri til þess að heim- sækja það og sjá hvernig hann bjó. Á heimilinu voru börn allt upp í átján ára aldur, en þá býðst þeim að fara í háskóla. Ég get ekki metið hvort þau sæki í slíkt nám eða hafi fengið þá örvun sem þarf eða stuðning til þess,“ segir hún. „Í þessari heimsókn virtist Eysteinn ekki vilja sjá eða heyra af börnunum eða fóstrunum sem þar voru. Hann kúrði sig upp að okkur, en pabbi hans var með hann í poka framan á sér. Hann hélt mjög fast í pabba sinn,“ segir hún áður en hún lýsir tilfinningarússíbananum þegar hún fékk Eystein fyrst í hendurnar. Fyrstu kynni erfið „Kínverski fararstjórinn hringdi í okkur upp á hótelherbergi og sagði að þau væru á leiðinni upp. Svo bankaði hún. Eysteinn vildi náttúrulega ekkert með okkur hafa. Þessi stund er hrika- lega erfið fyrir þessi litlu grey. Hann öskraði úr sér lungun í einhverjar mínútur og sjálf grét ég tregafullum tárum, bæði af gleði en einnig meðaumkun því þetta er gífurlegt sjokk fyrir litlu skinnin sem vita ekki á þessari stundu hvað þau eru að fá, bara missa.“ Ingibjörg segir þau hjónin hafa talið sig nægilega undirbúin fyrir þetta augnablik enda setið námskeið Íslenskr- ar ættleiðingar áður en þau fóru út og rætt við foreldra með reynslu af ættleiðingum. Fengu fullkom- inn dreng Hjónin Ingibjörg og Valdimar ættleiddu tveggja og hálfs árs dreng frá Kína fyrir rúmu ári og nefndu hann Eystein Orra. Drengurinn var á lista yfir börn með sérþarfir til ættleiðingar. Hann er fullkominn, segir Ingibjörg í samtali við Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir. Þau hafa þegar ákveðið að ættleiða annað barn af listanum en 34 börn með sérþarfir hafa verið ættleidd til landsins síðustu fjögur ár. „En það er ekki hægt að undirbúa sig fullkomlega fyrir slíka stund. Hún var hrikalega erfið. En Eysteinn var fljótur að tengjast okkur, strax þennan fyrsta dag,“ segir hún. Það má líka sjá á myndböndum sem sýna drenginn kubba á hótelherberg- inu þennan fyrsta dag fjölskyldunnar, enda rétt tveggja og hálfs árs gamall. „Hann var fyrsta klukkutímann í algjöru sjokki. En við gáfum honum að drekka og hann jafnaði sig. Við fengum klukkustund með honum og þurftum þá að fara í mynda- töku. Það gekk fínt, en þegar við komum aftur upp á hótelherbergi, klæddum við hann í léttari föt, því hann var allur sveittur og þá fór hann að hlæja. Hann var glaður og náði að sofna um kvöldið og svaf í tólf tíma. Við sváfum hins vegar ekki mikið, enda hafði adrenalínið flætt um æðarnar þennan dag,“ segir hún Sex vikna leikskólaaðlögun „Gengið hefur vonum framar að tengjast Ey- steini. Miklu betur en maður þorði að vona. Stundum afneita ættleidd börn öðru for- eldrinu fyrst um sinn. Við vorum svo heppin að það varð ekki. Hann varð strax mjög háður okkur og passar upp á okkur. Hann hefur treyst á okkur og ekki sótt til annarra eftir hjálp. En auðvitað er það ferli sem við vinnum í í mörg ár. Við sjáum það nú þegar hann fer á leikskóla að það er stutt í van- traustið. Hann óttast að við sækjum sig ekki. Hann var það stálpaður þegar við sóttum hann og við skynjum að hann man ýmis- legt. Við sjáum að leikskólinn minnir hann á barnaheimilið. Við þurftum því að segja hon- um að hann ætti ekki að sofa á leikskólanum, engin börn svæfu þar og að mamma og pabbi kæmu alltaf að sækja hann í lok dags.“ Þetta fékk Eysteinn Orri að heyra dag hvern í þær sex vikur sem aðlögunin stóð yfir. „Síðar komst ég að því að hann vildi vita allt um leikskólakennarana og vissi jafnvel hvernig bílum þær óku. Hann vildi vita allt áður en hann gat treyst umhverfinu og því að við kæmum að sækja hann.“ Ingibjörg og Valdimar hafa verið saman í níu ár. „Það var mikill léttir að ákveða að ættleiða barn, því þá vissum við að við myndum eignast barn, spurningin væri að- eins hvenær, en ekki hvort,“ segir hún. Þau hafa nú ákveðið að ættleiða aftur barn með sérþarfir frá Kína. Biðin er þeim auðveldari nú en áður, þótt Ingibjörg segi það sérstaka tilhugsun að barnið sem þau fái vonandi í hendur á næsta ári sé að öllum líkindum þegar fætt. „Í Kína geta for- eldrar ekki gefið börn sín til ættleið- ingar. Þau finnast því flest þar sem mannmergðin er mikil; á torgum eða fyrir utan félags- málastofnanir, vilji foreldrar þeirra að börnunum verði búin góð ævi.“ Ingibjörg og Valdimar með gullið sitt, Eystein Orra. Mynd/Hari Framhald á næsu opnu 36 viðtal Helgin 11.-13. nóvember 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.