Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 54
Helgin 15.-17. mars 201354 tíska
Belladonna á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Nýjar vörur
í hverri viku
Stærðir 40-58
Ferming 2013
Í tilefni af Hönnunarmars efnir Rauði krossinn til
söfnunar á gamalli hönnunarvöru. Þannig gefst
fólki tækifæri til að gefa gömlum dýrgripum nýtt líf
með því að gefa þá í Rauða krossinn.
Tekið er á móti hönnunarvörunum í búðinni
9LíF í húsnæði ATMO á Laugavegi og í nýjum
söfnunargámum Rauða krossins sem finna má víða
um borgina. Samkvæmt aðstandendum átaksins
skipar fataverkefni Rauða krossins æ mikilvægari
þátt í fjáröflun félagsins með hverju ári. Með því að
gefa fatnað til söfnunarinnar styður þú við bakið á
neyðaraðstoð bæði hér á landi og erlendis.
Í notuðum fatnaði leynast mikil verðmæti sem
nýtist Rauða krossinum hvort heldur sem er við út-
hlutun til bágstaddra, sölu í Rauðakrossbúðunum,
eða til sölu erlendis. Það sem ekki nýtist beint sem
fatnaður er selt í endurvinnslu.
9 líf gamallar hönnunar
66°NORÐUR og fatahönnuðurinn Mundi kynna „Snow Blind“, nýja
fatalínu sem frumsýnd verður á Reykjavík Fashion Festival á morgun,
laugardag. Þessi nýja fatalína tvinnar saman hugarheim Munda og
tækniþekkingu 66°NORÐUR. Afrakstur samstarfsins er útivistarfatn-
aður sem er engu öðru líkur en viðeigandi við öll tækifæri, að því er fram
kemur í tilkynningu.
„Snið, mynstur og litir eru afkvæmi und-
irvitundar Munda og unnin undir áhrifum
frá hugmyndum hans um heiminn eftir
heimsendi. Einnig er unnið með nokkra af
vinsælustu stílgerðum 66°NORÐUR sem
Mundi gefur nýtt útlit með framúrstefnu-
legum mynstrum. Útfærslan byggir á ára-
tuga reynslu og þekkingu 66°NORÐUR við
hönnun á fatnaði fyrir krefjandi aðstæður.
Engu er til sparað hvað varðar efnisval og
má nefna að einangrunin í jökkunum er
úr Primaloft efninu sem gerir flíkurnar
mjög hlýjar en um leið mjög léttar og efni
í nokkrum flíkum hrinda frá sér vatni og
vindum," segir þar.
Framúrstefnuleg fatalína
Fatalínan er framúrstefnuleg og saman-
stendur af hlýjum einangrandi jökkum,
peysum og buxum. Einnig fylgihlutum eins
og vettlingum, húfum og töskum. „Það er
skemmtilegur og öðruvísi framtíðar- og
hátækniblær yfir línunni og gott dæmi um
það eru sjálflýsandi rennilásar sem eru á
nokkrum flíkum sem við höfum verið að
leika okkur með“, segir Mundi, sem hefur
á skömmum tíma skipað sér á stall sem
einn fremsti fatahönnuður landsins. Mundi
er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir í hverju því sem hann tekur sér
fyrir hendur. 66°NORÐUR var stofnað árið 1926 og er elsti framleiðandi
útivistarfatnaðar á Íslandi. Frá því félagið hóf framleiðslu á sjófatnaði
fyrir 86 árum hefur það lagt mikla áherslu á gæði og bestu aðferðir sem
völ er á hverju sinni.
„Snow Blind“ línan verður frumsýnd á RFF 16. mars og er væntanleg í
verslanir næsta haust.
Tíska Ný faTalíNa 66°NORÐUR Og faTahöNNUÐaRiNs MUNda kyNNT
Snjóblinda á
Reykjavik Fashion Festival
Skemmtilegur og öðruvísi framtíðar- og hátækniblær yfir línunni
og gott dæmi um það eru sjálflýsandi rennilásar, segir Mundi.
Fatalínan er framúrstefnuleg
og samanstendur af hlýjum
einangrandi jökkum, peysum
og buxum.
Nú fáanleg í
Lyfjaveri Suðurlandsbraut
á 25% kynningarafslætti
út mars
Þú nnur okkur á Facebook
undir “Fatabúðin”
Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050
Ný sending af sængurfatnaði
Mikið úrval til fermingargjafa
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Vor/sumar
2013
10%
afsláttur af
öllum vörum
föstudag og
laugardag
Músaskór
fyrir börn
OPIÐ:
MÁN - FÖST
10 - 18
LAUGARD.
10 - 14
GLÆSILEGUR,
VEL FYLLTUR
Teg. 1566 - í B,C skálum
á kr. 5.800,-
Laugavegi 178 Sími 551-3366 www.misty.is
Ný vorsending
frá Masai
20% auka afsláttur
af útsöluslá