Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 2
VÍS á markað
í næsta mánuði
Stjórn Klakka, eiganda að VÍS, Vátrygg-
ingarfélags Íslands, hefur ákveðið að bjóða
til sölu í útboðsferli, 60 prósent af hlutafé
í VÍS. Er í framhaldi af því stefnt að skrán-
ingu hlutafjár félagsins í Kauphöll Íslands
í apríl. Salan á þeim 60 prósent hlut sem
verður seldur nú verður gerð í í þremur
skrefum. 10 prósent hlutafjár í félaginu
verða seld gegn tilboðum sem verða á
bilinu 0,1-50 milljónir króna, 30% verða
seld gegn tilboðum yfir 50 milljónir og 10
prósent verða seld í fjórum 2,5 prósent
einingum til hæstbjóðanda. Þess utan
verður 10 prósent ráðstafað eftir þörfum
í hvern af þessum þremur áföngum eftir
eftirspurn. Ársuppgjör félagsins 2012 var
mjög gott. Kauphallarskráning félagsins
þykir jákvæð fyrir íslenskan hlutabréfa-
markað. - jh
Rýkur úr greiðslukort-
um útlendinga
Gríðarleg aukning varð á kortaveltu
erlendra ferðamanna hér á landi í
febrúar miðað við sama mánuð í fyrra.
Samkvæmt tölum Seðlabankans nam
kortavelta útlendinga hérlendis um 4,9
milljörðum króna í mánuðinum. Á sama
tíma í fyrra nam kortavelta erlendra aðila
hér á landi rúmlega 3,2 milljörðum króna.
Veltan jókst um 50% að nafnvirði á milli
ára í febrúar. Aukningin helst í hendur
við fjölgun erlendra ferðamanna á sama
tíma. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu
fóru 40.000 erlendir gestir frá landinu
um Leifsstöð í febrúar síðastliðnum
samanborið við 27.900 á sama tíma í
fyrra. Kortavelta Íslendinga í útlöndum
nam um 5,4 milljörðum króna í febrúar,
jókst um tæp 6% að nafnvirði á milli
ára. - jh
F rú Hlíf Böðvarsdóttir skipar 22. sætið á framboðslista Bjartrar framtíðar í norðurkjördæmi Reykjavíkur og er án
efa elsti frambjóðandinn í komandi kosn-
ingum en hún verður orðinn 104 ára þegar
gengið verður til kosninga. Á sama fram-
boðslista en öllu ofar, í 8. sæti, er svo Hjalti
Vigfússon, forseti nemendafélags Mennta-
skólans í Hamrahlíð. Hann er fæddur 1993
þannig að árin sem skilja frambjóðendurna
að eru 84.
Hlíf er amma Guðmundar Steingríms-
sonar, formanns Bjartrar framtíðar, móðir
Eddu móður Guðmundar. Hún segist ekki
síst hafa tekið sætið til þess að sýna barna-
barninu stuðning sinn í verki. „Ég held
mikið upp á hann Guðmund enda á hann
ekkert nema gott til,“ segir Hlíf sem hefur
fulla trú á drengnum. „Hann hefur líka skap
í sér. Ég varð vör við það þegar ég passaði
hann í gamla daga.“
Hlíf er í fullu fjöri og fylgist vel með
pólitíkinni, eins og hún hefur alltaf gert.
„Ég hef alltaf heyrt mikið talað um póli-
tík,“ segir Hlíf sem var lengi í hringiðunni
miðri sem tengdamóðir Steingríms Her-
mannssonar sem var einhver mest áberandi
stjórn málaleiðtogi landsins um langt árabil.
„Þetta er afskaplega ólíkt því sem var,“ segir
Hlíf um stjórnmálin í dag. „Þetta er allt
öðruvísi en veröldin er líka allt öðruvísi,“
segir frúin sem hefur lifað tvær heims-
styrjaldir og var búin að eignast börnin sín
þrjú við lýðveldistökuna 1944. Og hún telur
framtíðina bjarta. „Ég vona bara að þessi
flokkur eigi eftir að hafa einhver áhrif og
þetta gengur nokkuð vel bara.“
Hjalti segist aldrei hafa ætlað sér að koma
nærri pólitík en menntamál brenni svo heitt
á sér að hann hafi gengið til liðs við Bjarta
framtíð þegar hann fann hversu mikill
samhljómur er með skoðunum hans í þeim
efnum og hjá flokkinum.
„Ég var samt alltaf mjög skotinn í þessu
framboði Bjartrar framtíðar, alveg frá
byrjun þegar Guðmundur Steingrímsson
og Heiða Kristín Helgadóttir komu fyrst
fram með þetta,“ segir Hjalti og leggur
mikla áherslu á að ungt fólk láti til sín taka
í pólitíkinni. „Við erum hópur sem verður
alltaf undir vegna þess að við erum ekki
nógu virk. Þetta gildir líka um að mæta á
kjörstað en kjörsókn ungs fólks er mikið
áhyggjuefni.“
Þegar talið berst að hinum mikla aldurs-
mun frambjóðendanna segir Hlíf að vissu-
lega séu þar „nokkur ár“ en Hjalti segist
telja að allir, óháð aldri og kyni, eigi að finna
hljómgrunn hjá Bjartri framtíð ef fólk vilji
breyta því hvernig hugsað og talað er um
stjórnmál.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Húsnæðismál leigumarkaðurinn tvöFaldast á landsvísu
Tvöfalt fleiri leigja nú en fyrir átta árum
Leigusamningar á landinu öllu eru
tvöfalt fleiri en fyrir átta árum. Mest er
aukningin á Suðurnesjum þar sem fjöldi
leigusamninga hefur áttfaldast á tíma-
bilinu. „Þessar tölur segja okkur fyrst
og fremst að þörfin fyrir leiguhúsnæði
er mjög mikil og að framboðið er ekki að
anna eftirspurn,“ segir Elín Björg Jóns-
dóttir, formaður BSRB. „Þar
fyrir utan eru fjölmargir sem
leigja án þess að samningar
séu þinglýstir þannig að
líklega er aukningin enn
meiri en þessar tölur
segja til um,“ segir hún.
Elín bendir á að í könnun sem BSRB
lét Capacent framkvæma fyrir sig á síð-
asta ári hafi komið glöggt fram að mikill
fjöldi fólks getur vel hugsað sér að færa
sig úr eigin húsnæði yfir á leigumarkað-
inn. Af svarendum í könnuninni bjuggu
aðeins um 11 prósent í leiguhúsnæði en
27 prósent sögðust vel geta hugsað sér
að vera á leigumarkaðnum. Hluti þeirra
sem var í eigin húsnæði gat því vel hugs-
að sér að fara í leiguhúsnæði.
„Það hefur verið stefna BSRB um ára-
bil að efla leigumarkaðinn hér á landi og
búa þannig um að það sé raunverulegur
og varanlegur möguleiki að búa í leigu-
húsnæði. Þetta á að vera óháð félagslega
húsnæðiskerfinu því þörfin fyrir leigu-
húsnæði nær langt út fyrir þann hóp,“
segir Elín. BSRB vill líka auka jafnræði
á milli búsetuforma og á því er raunar
tekið í tillögum að nýju húsnæðisbóta-
kerfi sem hefur þó ekki enn komist til
framkvæmda. „Þar er gert ráð fyrir að
húsnæðisbætur verið þær sömu óháð því
hvort fólk leigi eða eigi sitt hús-
næði. Slík breyting myndi fela í
sér aukinn stuðning við leigj-
endur sem gæti aukið enn frekar
þann fjölda sem gæti hugsað sér
að vera á leigumarkaði í stað þess
að eiga sitt húsnæði,“ segir hún.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði
Ár Mán. Höfuðb.sv. Suðurnes Vesturl. Vestfirðir Norðurl. Austurl. Suðurl. Alls
2005 jan. 344 12 17 5 53 2 28 461
2013 jan. 634 102 50 10 99 16 52 963
Aukning 84% 750% 194% 100% 87% 700% 86% 109%
Elín Björg Jónsdóttir,
formaður BSRB.
stjórnmál Björt Framtíð Brúar kynslóðaBilið
Þetta er
allt öðru-
vísi en
veröldin
er líka allt
öðruvísi.
Elsti frambjóðandinn
84 árum eldri en sá yngsti
Hlíf Böðvarsdóttir og Hjalti Vigfússon eiga bæði sæti á framboðslista Bjartrar framtíðar í
Reykjavíkurkjördæmi norður. Hjalti er í 8. sæti en Hlíf rekur lestina í heiðurssætinu og er númer
22. Sætin sem skilja þau að eru því fjórtán sem er harla lítið miðað við árafjöldann á milli þeirra.
Hlíf er fædd 1909 en Hjalti 1993 þannig að 84 ár skilja þau að en bæði telja sig eiga erindi við
Bjarta framtíð.
Ein 84 ár skilja þau Hlíf Böðvarsdóttur og Hjalta Vigfússon en bæði skipa sæti á framboðslista Bjartrar framtíðar. Hlíf ekki síst
til þess að sýna barnabarni sínu stuðning og Hjalti til þess að reyna að hafa áhrif á þróun menntamála. Ljósmynd/Hari
Vonast eftir endurupp-
töku Geirfinnsmálsins
Gert er ráð fyrir að starfshópur
innanríkisráðherra um Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið svo-
kallaða skili skýrslu sinni í næstu
viku. Á næstu dögum verður
skýrslan kynnt fyrir
þeim sem dæmdir
voru í málinu og að-
standendum þeirra
sem látnir eru. „Ég
trúi því að nafn föður
míns verði hreinsað
og vonast til
þ es s að
skýrsla
starfs-
hópins
verði lið-
ur í þeirri
vegferð
ásamt
þv í að
hún upplýsi um einhver af þeim
fjölmörgu mannréttindabrotum
sem framin voru á föður mínum
og öðrum sakborningum,“ segir
Hafþór Sævarsson, sonur Sævars
Ciesielski. Sævar var einn sex
sakborninga sem dæmdir voru
fyrir aðild að málinu.
„Ég vil að sannleikurinn í
þessu máli komi fram í dagsljós-
ið,“ segir Hafþór. „Ég trúi á sak-
leysi föður míns og veit að fólk,
allavega í seinni tíð, gerir sér fulla
grein fyrir því að pabbi átti enga
aðild að þessum mannshvörfum.“
Hafþór er 23 ára laganemi og
hefur tekið við keflinu af föður
sínum, sem lést árið 2011. „Óska-
niðurstaða skýrslunnar yrði sú að
grundvöllur sé fyrir því að málið
verði tekið upp að nýju,“ segir
Hafþór. -sda
2 fréttir Helgin 15.-17. mars 2013