Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 62
62 bíó Helgin 15.-17. mars 2013
Noomi Ra-
pace leikur
Beatrice,
nágranna
Victors,
sem hefur
fylgst með
morðingj-
anum og
veit allt
um þau
myrkra-
verk sem
hann
fremur.
Noomi Rapace Í hefNdaRhug
d anski leikstjórinn Niels Arden Oplev gerði glæpasögu Stiegs heitins Lars-sons frábær skil í Karlar sem hata kon-
ur. Myndin er sú langbesta í Millenium-þrí-
leiknum og sjálfur David Fincher náði ekki
einu sinni að toppa Oplev í bandaríski end-
urgerðinni The Girl with the Dragon Tattoo.
Dead Man Down er frumraun Oplevs í Holly-
wood og honum hefur greinilega þótt vissara
að hafa Noomi Rapace sér við hlið enda var
það ekki síst leikkonunni og magnaðri túlkun
hennar á einfaranum og tölvuhakkaranum Lis-
beth Salander sem gerði Karlar sem hafa kon-
ur jafn góða og raun bar vitni.
Í Dead Man Down leikur Colin Farrell morð-
ingjann Victor sem sinnir subbulegum verkum
fyrir glæpaforingjann Alphonse sem Terrence
Howard leikur.
Victor á harma að hefna vegna dauða fjöl-
skyldu sinnar og hann bíður átekta í hefndar-
hug sem hann ætlar sér að fá útrás fyrir fyrr
eða síðar. Noomi Rapace leikur Beatrice, ná-
granna Victors, sem hefur fylgst með morð-
ingjanum og veit allt um þau myrkraverk sem
hann fremur. Hún stillir Victori upp við vegg
og sýnir honum meðal annars upptöku af því
þegar hann fargar einu fórnarlamba sinna með
köldu blóði.
Hún ætlar sér þó ekki að segja til Victors
heldur þvinga hann til þess að koma fram
hefndum á yfirmanni sínum fyrir sig en hún
ber þess merki að hafa lent í klónum á Alp-
honse. Hefndarþorstinn sameinar þessar
annars ókunnugu manneskjur og þau drag-
ast hvort að öðru þannig að úr verður eldfimt
og hættulegt samband þar sem ást, hatur og
hefndarþráin renna saman í banvæna blöndu.
Noomi Rapace verður 34 ára í desember en
stjarna hennar hefur risið hratt eftir að hún
sló í gegn með Karlar sem hata konur. Í kjölfar
Millenium-þríleiksins sýndi hún magnaðan
leik í frumraun leikkonunnar Pernilla August
Svinalängorna, eða Svínastían, sem fjallaði á
nöturlegan hátt um viðbjóðslegar afleiðingar
alkóhólíseraðs uppeldis á unga konu.
Síðan lá leiðin til Hollywood. Þar gekk hún
til liðs við leikstjórann Guy Ritchie og stór-
stjörnurnar Robert Downey jr. og Jude Law í
Sherlock Holmes-framhaldinu A Game of Sha-
dows. Síðan fékk Ridley Scott hana til þess
að leika í Alien-forleik sínum, Prometheus,
en leikstjórinn hreifst mjög af frammistöðu
Noomi í Karlar sem hata konur.
„Ég sá hana í Karlar sem hata konur fyrir
einu ári eða svo og hugsaði með mér: „Vá! Hver
er þetta?“ Og var strax ákveðinn í því að ég
yrði að fá hana í þessa mynd. Ég hitti hana síð-
an í Los Angeles og komst að því, mér til nokk-
urrar furðu, að hún er ofboðslega fáguð mann-
eskja og ekki mikill pönkari. Og þá vissi ég
að hún var alvöru leikkona. Mjög góð.“ Sagði
Ridley Scott í samtali við Fréttatímann þegar
hann kom til landsins að taka upp atriði fyrir
Prometheus. Scott og Rapace hafa í hyggju að
halda samstarfi sínu áfram og gera framhald
að Prometheus þannig að sænska leikkonan er
komin til að vera í Hollywood.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,2. Rotten Tomatoes: 36%,
Metacritic: 41%
Sænska leikkonan Noomi Rapace hefur verið á fleygiferð frá því hún sló í gegn í hlutverki Lis-
betar Salander í Millenium-þríleiknum sem hófst með Karlar sem hata konur. Vinsældir myndanna
opnuðu henni leið til Hollywood þar sem hún er að festa sig í sessi. Í nýjustu mynd hennar, Dead
Man Down, liggja leiðir hennar og leikstjóra Karlar sem hata konur, Niels Arden Oplev, saman á ný.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Skuggalegir nágrannar
Colin Farrell leikur morðingjann Victor sem Beatrice, persóna Noomi Rapace, táldregur og ætlar sér að fá hann til þess að
hefna harma sinna.
fRumsýNd aNNa KaReNÍNa
Tolstoj í búningadrama
Leikstjórinn Joe Wright hefur kvik-
myndað bókmenntaverk með stórgóð-
um árangri en hann hefur meðal ann-
ars fengist við Hroka og hleypidóma,
eftir Jane Austen, og Friðþægingu eftir
Ian McEwan. Að þessu sinni má segja
að hann hafi ráðist á garðinn þar sem
hann er einna hæstur með því að vinda
sér í hina risavöxnu skáldsögu Tolstojs
um Önnu Karenínu.
Leikkonan Keira Knigtley var í
burðarhlutverkum í Hroka og hleypi-
dómum og Friðþægingu og er hér í
harmrænu hlutverki Önnu Karenínu.
Jude Law leikur Alexei, eiginmann
Önnu, en hjónabandið er ástlaust þótt
allt líti vel út á yfirborðinu.
Þegar Anna kynnist Vronsky greifa
ná heitar tilfinningar tökum á henni og
þau hefja ástarsamband. Alexei kemst
að öllu saman en þá gengur Anna með
barn elskhugans og eiginmaður henni
setur henni tvo slæma afarkosti.
Anna Karenína er sannkölluð
búningamynd og Jacqueline Durran
hlaut á dögunum Óskarsverðlaun fyrir
búningahönnun í myndinni sem er öll
býsna tilkomumikil.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,7, Rotten Tomato-
es: 64%, Metacritic: 63%
Keira Knightley leikur Önnu
Karenínu sem lendir í miklum
hremmingum þegar kaldlyndur
eiginmaður hennar kemst að
framhjáhaldi hennar.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS n MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
SUN kl. 20:00
MEÐLIMUR Í
FYRIR STERKAR OG HREINAR TENNUR