Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 31
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
ekkert nema ostur
Fullkomnaðu réttinn með góðum hráefnum. Rifnu ostarnir frá MS
innihalda 100% ost. Þú nnur spennandi og girnilegar uppskriftir
á gottimatinn.is.
ÍSLENSKUR
OSTUR
Gunnari var tekið með kostum og kynjum í Jórvík enda nánast konungborinn
í augum víkinganna þar.
á íslensku sem þeir líta á sem vík-
ingamálið.“
Víkingahátíð í Hljómskálagarð-
inum
Einherjarnir hafa síðustu miss-
eri látið sig dreyma um að halda
veglega víkingahátíð í Reykjavík og
stefna nú ótrauðir á að leggja undir
sig Hljómskálagarðinn helgina 13.
og 14. júlí. Þeir hafa fengið jákvæð
viðbrögð hjá Reykjavíkurborg og
málið liggur nú fyrir borgarráði.
„Einar Bárðarsson, forstöðu-
maður Höfuðborgarstofu, er mjög
hrifinn af hugmyndinni og menn-
ingar- og ferðamálaráð borgarinnar
hefur vísað beiðni okkar til borgar-
ráðs. Garðyrkjustjórinn hefur líka
staðfest að garðurinn þoli þessa
hátíð. Við rekumst heldur ekki á
Víkingahátíðina í Hafnarfirði en
þeir eru með hana um miðjan júní
og við komum síðan mánuði síðar.“
Gunnar sér fyrir sér að hátíðin
muni festast í sessi í Reykjavík
og verða árlegur viðburður. „Við
byrjum bara smátt og svo mun
þessu vaxa ásmegin með árunum
en við stefnum að því að hafa þetta
alltaf allt ókeypis og viljum frekar
leita eftir styrkjum hjá fyrirtækjum
og fá smá stuðning frá borginni
enda erum við bara að gera þetta af
áhuga en ekki til þess að græða.“
Hátíðin mun heita Ingólfshátíð
með vísan til Ingólfs Arnarsonar en
hátíðin í sumar verður þó haldin til
heiðurs öðrum Ingólfi, Ingólfi Júlí-
ussyni ljósmyndara, sem greindist
með bráðahvítblæði í október. Ing-
ólfur hefur tekið virkan þátt í starfi
íslenskra víkinga og hann og Gunn-
ar voru á leið saman til Hastings í
október þegar veikindin komu upp
þannig að Ingólfur komst hvergi.
„Fyrsta hátíðin verður til heiðurs
félaga okkar Ingólfi Júlíussyni en
annars er hátíðin kennd við Ingólf
Arnason og mun alltaf heita Ingólfshá-
tíð.“
Öndvegissúlur Ingólfs Arnarsonar
eru vitaskuld reykvísku víkingunum
ofarlega í huga. Á skildi sína hafa
þeir málað merki borgarinnar með
súlunum tveimur. Gunnar rakst ekki
alls fyrir löngu á eldra merki Reykja-
víkurborgar sem er flestum gleymt en
Einherjarnir ætla að sýna liðnum tíma
virðingu sína með því að hafa gamla
merkið á tíu skjöldum á hátíðinni.
„Ég vissi ekkert um þetta gamla
fánamerki Reykjavíkur fyrr en ég sá
það í bók sem ég keypti í Góða hirð-
inum um Alþingishátíðina 1930. Sér-
stakir fánar voru gerðir fyrir þessa
hátíð sem var haldin á Þingvöllum og
þar sást merki Reykjavíkurborgar í
fyrsta skipti. Ég fór þá að leita út um
allt að þessu en þetta merki er ekki
einu sinni til í Þjóðminjasafninu og
það virtist enginn vita neitt um þetta
lengur. Síðar komst ég að því að þetta
var tekið í notkun 1930 en merkið
sem við þekkjum núna varð til upp úr
1950. Þessu merki borgarinnar var
bara flaggað í örfá skipti en við ætlum
að mála það á tíu skildi hjá okkur og
ætlum að nota bæði nýja merkið og
það gamla. Við getum þetta með stolti
enda er merki okkar Einherjanna
öndvegissúlur og við segjum mikið frá
því í útlöndum hvernig merkið er til-
komið og auglýsum Reykjavík svolítið
í leiðinni.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Gunnar Ólafsson ásamt víkingum úr
félaginu Völsungar í Jórvík en ensku
víkingarnir hafa fengið Gunnar til þess
að leiða heilmikinn her út á vígvöllinn í
sviðsettum bardaga sem Haraldur harð-
ráði. Ljósmynd/Ingólfur Júlíusson
Lj
ós
m
yn
d/
In
gó
lf
ur
J
úl
íu
ss
on
viðtal 31 Helgin 15.-17. mars 2013