Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 66
Tjarnarbíó Sannkölluð kvennaópera
Sungið um viðhorf
samfélagsins til kvenna
ÓP-hópurinn verður með tvær sýningar á óperunni Suor Angelica, eða Systir Angelica, eftir
Puccini í Tjarnarbíói á laugardaginn og tengir uppfærsluna Alþjóðlegum baráttudegi kvenna
sem fagnað var fyrir viku. Óperan lýsir að hluta til viðhorfi samfélagsins til kvenna fyrr á
tímum. Öll hlutverk eru sungin af konum og í raun koma nær eingöngu konur að uppsetning-
unni ef frá er talinn leikstjórinn, Randver Þorláksson.
ó peran Systir Angelica, eftir Puccini, fjallar um Angelicu sem er þvinguð
til að ganga í klaustur eftir að hafa
kallað skömm yfir fjölskylduna
þegar hún eignast barn utan hjóna-
bands. Sagan lýsir að hluta til við-
horfi samfélagsins til kvenna fyrr á
tímum en „skömm“ Angelicu þykir
enn fjölskylduskömm víða um
heim sem er mætt með útskúfun á
einn eða annan hátt.
„Hún er búin að vera í klaustrinu
í sjö ár og hefur ekkert heyrt frá
fjölskyldu sinni eða af barninu sínu
en eftir þessi sjö ár kemur frænka
hennar í heimsókn og sú heim-
sókn hefur mjög örlagarík áhrif,“
segir Bylgja Dís Gunnarsdóttir
sem syngur eitt aðalhlutverkanna
í verkinu.
Óperan fjallar um dramatíska
atburði í klaustrinu og hastarlega
meðferð samfélagsins á konunni
sem leiðir til skelfingar.
„Þetta er einþáttungur þannig
að hún er bara sextíu mínútna löng
og þar sem óperan gerist í nunnu-
klaustri er aðeins um kvenhlutverk
að ræða og við erum þarna sextán
Ingveldur Ýr Jónsdóttir í hlutverki Abbadísarinnar og Bylgja Dís Gunnars-
dóttir í hlutverki systur Angeliku, nunnurnar í bakgrunninum.
Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og
við grínumst stundum með það í hópnum að
blessun Maríu sé yfir þessu.
Color
Protect
Sjampó og
hárnæring
Verndar hárið frá
því að upplitast.
Inni heldur þykkni
úr granat eplum,
fljótandi krist alla,
sólarvörn og
fljótandi
keratín sem
gefur mýkt
og gljáa.
VERKSÝN
Námskeið í undirbúningi
viðhaldsframkvæmda fyrir húsfélög
Verksýn ehf. býður forsvarsmönnum húsfélaga til námskeiðs í
undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Á námskeiðinu, sem tekur
eina kvöldstund, verður farið yr ferli viðhaldsframkvæmda
á ölbýlishúsum. Námskeið verða haldin á þriðjudagskvöldum
í mars og apríl, í húsakynnum Verksýnar ehf. að Síðumúla 1 í
Reykjavík. Námskeiðin eru opin öllum stjórnarmönnum
húsfélaga, þeim og húsfélögunum að kostnaðarlausu.
Áhugasamir geta skráð sig á námskeið með tölvupósti á
netfangið verksyn@verksyn.is eða í síma 517-6300.
Verksýn ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem
sérhær sig í viðhaldi og endurnýjun
fasteigna. Fyrirtækið hefur sinnt ölda
verkefna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og
húsfélög. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar
með áratuga reynslu í mannvirkjagerð
og viðhaldi fasteigna.
Verksýn ehf l Síðumúla 1 l 108 Reykjavík l www.verksyn.is
Gásar gallerí hefur fengið
viðurkenningu frá Myndstef
fyrir fagleg viðskipti og heiðar-
leika gagnvart listamönnum og
kaupendum listaverka.
MÁLVERK
ÓSKAST
gegn staðgreiðslu
Gásar gallerí leitar að góðum verkum fyrir
viðskiptamenn sína sem staðgreiða verkin
við kaup.
Gásar gallerí óskar eftir málverkum!
Ármúli 38 | 568 5150 | gasar.is
Upplýsingar veitir Ólafur Morthens í síma 893 9663 eða oli@gasar.is
Óskað er eftir verkum eftir:
Guðmundu Andrésdóttur
Jóhann Briem
Hörð Ágústsson
Karl Kvaran
Kristján Davíðsson
Jóhannes Jóhannesson
Alfreð Flóka
Hring Jóhannesson
Ísleif Konráðsson
Sigurlaugu Jónasdóttur
Jóhannes Kjarval
Nínu Tryggvadóttur
Þorvald Skúlason
Gunnlaug Scheving
Gunnlaug Blöndal
Ásgrím Jónsson
Snorra Arinbjarnar
Jón Engilberts
Svavar Guðnason
Louisu Matthíasdóttur
Erum farin
að taka á
móti verkum
vegna næsta
uppboðs.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma
á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi
er styrki stoðir mannlífs á Íslandi.
Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má
vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er
sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna,
er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu.
Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi Rannís.
Við val á verðlaunahafa er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálf-
stæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa
og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum
viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs
framlags á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar
verðlaunanna skipa dómnefnd.
Tilnefningum ásamt upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til
Rannís á netfangið rannis@rannis.is
Nánar á www.rannis.is
Tilnefningar óskast
Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og
tækniráðs 2013. Verðlaunin eru tvær milljónir króna.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 10. apríl 2013.
66 menning Helgin 15.-17. mars 2013