Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 67

Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 67
Bæjarlind 16 Kópavogur Sími 553 7100 www.linan.is Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16 PÁSKATILBOÐ SUPREME Deluxe SVEFNSÓFI RECAST SVEFNSÓFI BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI EXTRA ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA SVEFNBREIDD 140x200 CM RÚMFATAGEYMSLA Í SÖKKLI BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA SVEFNBREIDD 140x200 CM RÚMFATAGEYMSLA Í SÖKKLI TILBOÐSVERÐ KR. 149.900 TILBOÐSVERÐ KR. 129.900 VERÐ KR. 169.800 VERÐ KR. 149.800  Verðlaun Svavar Knútur verðlaunaður Á minningartónleikum um Önnu Pálínu Árnadóttur söngkonu, sem haldnir voru í Salnum síðastliðinn laugardag, þegar 50 ár voru liðin frá fæðingu hennar, voru í fyrsta sinn veitt verðlaun úr minningar- sjóði um hana. Verðlaunin, að upp- hæð 330.000 krónur, hlaut Svavar Knútur Kristinsson fyrir „framlag sitt til íslenskrar vísnatónlistar, hríf- andi túlkun, nýsköpun í söngljóð- agerð og lagasmíðum, endurnýjun hins þjóðlega tónlistararfs fyrir alla aldurshópa og starf í þágu ungra og upprennandi tónlistarmanna.“ Þá fylgdi verðlaununum sérstök hvatn- ing til frekara samstarfs á Norður- löndum. Svavar Knútur kom fram á minn- ingartónleikunum í Salnum og tók þar við verðlaununum, en það var hin þekkta vísnasöngkona Hanne Juul sem afhenti þau. Minningarsjóður Önnu Pálínu Árnadóttur söngkonu var stofn- aður að henni genginni í árslok árið 2004. Tilgangur hans er að verð- launa listamenn sem skara fram úr á sviði vísnatónlistar, ekki síst unga og upprennandi tónlistarmenn, en sjálf var Anna Pálína merkisberi vísnatónlistar á ferli sínum. Vísnasöngkonan Hanne Juul afhenti Svavari Knúti verðlaunin. nunnur á sviðinu í einu og segjum þessa dramatísku sögu hennar systur Angelicu. Við tengjum sýn- inguna Alþjóðlegum baráttudegi kvenna en tengingin er augljós í ljósi viðfangsefnisins og þar sem þetta er kvennaópera.“ Bylgja Dís segir ÓP-hópinn sjá um allt sem viðkemur sýningunni en frumkvæðið að henni hafi komið frá Randver Þorlákssyni leikara sem sér um leikstjórn. „Hann er svona laumu óperuunn- andi og hefur nú eitthvað aðeins verið að leikstýra í þessum geira. Hann nálgaðist okkur eiginlega að fyrra bragði með þessa hugmynd. Hann er rosalega skemmtilegur í þessu og dregur léttu strengina í óperunni mjög skemmtilega fram.“ Antonía Hevesi er tónlistarstjóri sýningarinnar og hefur útsett fagra tónlist Puccinis þannig að hún hljómar himneskt, eins og Bylgja Dís orðar það. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og við grínumst stundum með það í hópnum að blessun Maríu sé yfir þessu vegna þess að við í nunnuklaustrinu syngjum dálítið margar Maríubæn- ir. Allt hefur þetta gengið svo ótrú- lega vel. Að útvega búninga og alls konar sviðsmuni en við reynum að fá sem mest ókeypis vegna þess að við höfum ekki neina peninga til þess að gera þetta og stöndum undir þessu sjálfar.“ Hópurinn sýnir óperuna tvisvar á laugardaginn, klukkan 17 og aft- ur klukkan 20. Bylgja Dís syngur hlutverk Angelicu klukkan 17 en Erla Björg Káradóttir klukkan 20. Þá fer Hrönn Hrafnsdóttir með hlutverk Ziu prinsessu klukkan 17 og Jóhanna Héðinsdóttir klukkan 20. Miðasala er á midi.is. Það verður mikið fjör í Bláfjöllum um helgina. Frábært veður og frábær stemning í fjallinu um helgina Veðurblíðan í höfuðborginni hefur vart farið framhjá fólki og óhætt að fullyrða að helgin verður yndisleg haldi svo fram sem horfir. Það stefnir í frábæra helgi í Bláfjöllum þar sem allar lyftur á Heimatorfu og á suðurvæði verða opnar. Veðurspáin er mjög góð fyrir helgina. Opið verður í Bláfjöllum frá klukkan 10-17. Meðal viðburða í Bláfjöllum þessa helgi er Skíða- og brettaskólinn. Skráning fer fram á www.skidasvaedi.is. Þá verður brettamót, bor- dercross og fleira sem gaman er að fylgjast með. Gott er að fylgjast með Facebooksíðu Skíðasvæð- anna fyrir frekari upplýsingar.  Skíði allar lyftur opnar í Bláfjöllum menning 67 Helgin 15.-17. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.