Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 30
Kópavogsbær boðar til stofnfundar Kópavogsfélagsins, félags áhugafólks
um endurreisn Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins, 21. mars nk. kl. 17.
Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum, Fannborg 2.
Dagskrá:
1. Kynning á stofnsamþykkt félagsins.
2. Kosning þriggja stjórnarmanna og eins til vara.
Tilgangur félagsins er:
1. Að ljúka hugmyndavinnu og gera tillögur til bæjarráðs um hvaða
starfsemi á að vera í húsunum.
2. Að afla fjár til framkvæmda við endurbyggingu húsanna.
Einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök geta gengið í félagið.
Allir fundarmenn hafa atkvæðisrétt og eru kjörgengir í stjórn.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta!
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
-
13
07
54
kopavogur.is
Taktu þátt í að
endurreisa Hælið
og Bæinn!
Gunnar Ólafsson fer fyrir víkinga-
félaginu Einherjar í Reykjavík. Félags-
skapurinn stefnir á að halda veglega
víkingahátíð í Hljómskálagarðinum í
júlí en hugmyndin liggur nú hjá borgar-
ráði til umsagnar. Einherjarnir hafa
myndað náin tengsl við öflugt víkinga-
félag, Völsungana, í Jórvík og Gunnar
hefur verið fenginn til þess að leika
Harald harðráða konung í sviðsetningu
á stórum bardaga sem átti sér stað
skömmu fyrir hina sögufrægu orrustu
við Hastings.
G unnar Ólafsson, leiðtogi reykvísku víkinganna í Einherjum, er nýkom-inn heim úr góðri ferð til Jórvíkur á
Englandi þar sem hann fundaði með enskum
víkingum og fylgdist með miklum bardaga sem
frændur hans á Englandi settu á svið.
„Þetta er virkilega stór hátíð og það kom mér
verulega á óvart hversu umfangsmikið þetta er.
Þarna voru á annað þúsund manns á vígvell-
inum í fullum herklæðum og mjög flottum
búningum.“
Gunnar mætti með alvæpni og hugðist
blanda sér í bardagann og berjast við hlið Saxa.
En Jórvíkingarnir höfðu önnur áform fyrir
hann.
„Ég ætlaði að berjast en nefndin sem sér um
hátíðna bað mig um að fylgja sér um svæðið.
Ég skildi ekkert í því af hverju þeir dönsuðu
svona í kringum mig þangað til þeir spurðu
mig hvort ég væri tilbúinn til þess
að leika Harald harðráða á mikilli
hátíð sem þeir eru að undirbúa. Há-
tíðin heitir The Forgotten Battle,
eða Hin gleymda orrusta, sem átti
sér stað þremur vikum á undan
bardaganum við Hastings. Það var
14. október 1066 sem konungurinn
William the Conqueror, Vilhjálmur
sigurvegari, og Haraldur Godwin-
son mættust með heri sína við
Hastings þar sem Haraldur féll.“
Konungborinn Íslendingur
Gleymdi bardaginn sem til stendur
að sviðsetja í september á þessu
ári átti sér stað þremur vikum
fyrir orrustuna við Hastings. „Þeir
sögðu mér að þessi gleymda orr-
usta hefði í raun verið miklu stærri
bardagi en þar áttust þeir við
Haraldur Godwinson og Haraldur
harðráði, Noregskonungur. Þeir
vildu fá mig til þess að leika Harald
harðráða í þessum bardaga og ég
fór síðan fyrir nefndina í Jórvík til
þess að fá samþykki fyrir því að ég
fengi þetta hlutverk. Þarna mættu
70 manns og niðurstaða þeirra varð
að ég verð Haraldur.“
Gunnar var ekki í miklum vand-
ræðum með að sannfæra víkingana
en hann sýndi þeim listir sínar með
sverðið og sýndi þeim síðan fram á
að hann væri afkomandi Haraldar
harðráða. „Ég sló vel í gegn, setti
upp smá sýningu fyrir þá og sýndi
þeim fram á skyldleika minn við
Harald harðráða og útskýrði fyrir
því hvernig við Íslendingar getum
rakið ættir okkar langt aftur í
aldir.“
Gunnar segir ensku víkingana
bera takmarkalitla virðingu fyrir Ís-
lendingum og þeir líti á landið sem
miðpunkt víkingaheimsins og furði
sig á því hversu Íslendingar gera
í raun lítið með þessa arfleið sína
og sögu. „Þeir eru alveg rosalega
hrifnir af Íslendingum og það var
tekið ofboðslega vel á móti mér.
Englendingar eru svolítið upptekn-
ir af konungsfjölskyldunni og bláu
blóði og mér fannst næstum eins og
þeir litu á mig sem konungborinn
vegna skyldleikans við Harald. Það
lá við að fólk hneigði sig fyrir mér
eftir að þetta lá fyrir,“ segir Gunnar
og hlær. „Þetta var svolítið skrýtin
tilfinning og dálítið magnað.“
Ráðgert er að gleymda orrustan
fari fram þann 25. september en
Gunnar segist annars vita lítið um
undirbúninginn annað en að hann
muni þar leiða her sinn fram á
vígvöllinn. „Ég á víst að fá einhvern
stærðarinnar svartan hest og að ég
á að leiða liðið inn á vígvöllinn með
einhverja kórónu á hausnum,“ segir
Gunnar sem reiknar með að sinna
síðan hlutverki Haraldar harð-
ráða næstu árin í fleiri sviðsettum
bardögum.
„Þeir eru að byggja þetta upp og
vilja styrkja tengslin við Ísland og
okkur Einherjana og við ætlum að
fara út, félagarnir, og blanda okkur
í hópinn. Þegar við höldum til
bardaga á ég að ávarpa strákana
Leiðir menn til bardaga
sem Haraldur harðráði
„Óttist. Óttist mjög. Beinn
afkomandi víkingakonungsins
Haraldar harðráða, sem féll við
Stamford Bridge, er að koma til
Jórvíkur.“ Ekki þó í hefndarhug
heldur til þess að segja sögu
sína. The Press í York fjallaði
um heimsókn Gunnars og þar
sjá menn ekki ástæðu til þess að
rengja skyldleika hans við Harald
harðráða. Hann sé Íslendingur
og þeir séu þekktir fyrir að skrá
vandlega ættir fólks aftur í aldir.
30 viðtal Helgin 15.-17. mars 2013