Fréttatíminn - 15.03.2013, Blaðsíða 55
tíska 55Helgin 15.-17. mars 2013
WWW.FREEBIRDCLOTHES.COM
RÓMANTÍSKTFallegt
VOR 2013VOR 2013 / FREEBIRD
freebird Laugavegi 46 s:571-8383
/
Dásamlegu vorvörurnar
ERU KOMNAR...
HIN UNDURFAGRA VOR 2013 LÍNA ER NÚ ÖLL KOMIN
FREEBIRDVor 2013 / /
Tíska Vero Moda 20 ára
Verðin þau sömu og fyrir 20 árum
É g vaknaði upp með andfælum í morgun og hugsaði með mér hvort það gæti verið að það séu raunverulega komin 20 ár,“ segir
Marta Árnadóttir, annar eiganda Vero Moda á
Íslandi. Fyrirtækið fagnar nú 20 ára afmæli og
verður af því tilefni mikið um dýrðir í verslunum
Vero Moda þar sem boðið verður upp á margvís-
leg tilboð.
En hvað hefur gerst á þessum 20 árum verslun-
arinnar?
„Þegar við byrjuðum að versla við Bestseller
var þetta allt mun minna í sniðum og þeir eigin-
lega með báðar hendur tómar. Það eru komin um
26 ár síðan, en þá vorum við með vörurnar þeirra
í versluninni Sonja. Við opnum svo fyrstu Vero
Moda verslunina á Laugavegi og þetta var í fyrsta
skipti sem það myndaðist svona örtröð í verslun.
Það var allt brjálað ég man hvað við vorum hissa.
Tveimur mánuðum síðar opnuðum við í Kringl-
unni og svona vatt þetta bara upp á sig,“ útskýrir
Marta.
Hún segir margt hafa breyst í fyrirtækinu, en
í dag er Bestseller með stærri fatafyrirtækjum
heims með tugi undirmerkja. Einnig séu væntan-
leg ný og spennandi merki. Þrátt fyrir það sé einn
hlutur sem haldist hafi óbreyttur í gegnum árin.
„Verðin, engin spurning. Ég var að fara yfir
þetta um daginn og það er eins og þau hafi hrein-
lega ekkert hækkað á þessum árum. Það er bara
allt á svipuðu verði.“
Aðspurð segir Marta að það sé að mörgu að
huga með hækkandi sól í tískunni, sem ku vera
með allra líflegasta móti.
„Mín tilfinning fyrir sumarið er mynstur.
Allar gerðir. Blómamynstur, svarthvítt, „ethnic“,
„hawaian“ og dýramynstur með lit. Svo er „meta-
lic“ efni mjög sterkt inni og það er mjög vinsælt
að hafa sama mynstur í efri og neðri hluta svona
fyrir þau sem vilja standa út úr. Þau sem ekki eru
tilbúin til þess geta auðveldlega tónað mynstruðu
flíkurnar niður með einlitum flíkum, eða „bom-
ber“ jakka.
Verslunin Vero
Moda er fyrir
löngu orðin rót-
gróin og vinsældir
hennar virðast
aðeins aukast
eftir því sem árin
líða. Verslunin
fagnar nú 20 ára
afmæli og af því
tilefni verður
mikið um dýrðir.
Marta Árnadóttir
er annar eigandi
verslunarinnar og
Fréttatíminn fékk
hana til þess að
spá í tískuspilin
fyrir sumarið.
Marta segist varla trúa því hve tíminn líður. Verslun
hennar Vero Moda fagnar nú 20 ára afmæli sínu.
Mynstur er það allra heitasta í sumar og flott
þykir að vera í mynstruðu frá toppi til táar.
„Metallic“ föt eru
djörf en skemmtileg
tilbreyting.