Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 10

Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 10
 Þjóðaratkvæðagreiðsla tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá Já eða neiÁ morgun, laugardag, verður gengið til ráðgefandi þjóðar­ atkvæðagreiðslu um tillögur stjórn­ lagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Með atkvæða­ greiðslunni verður afstaða þjóðarinnar til tillagna stjórn­ lagaráðs könnuð og einnig það hvort Alþingi beri að hafa þær til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Afstaða þjóðarinnar verður um leið könnuð til fimm tilgreindra spurninga. Niður­ stöður kosninganna verða ráðgefandi en ekki lagalega bindandi fyrir Alþingi. Atkvæða­ greiðslan mun gefa til kynna vilja kjósenda um hvort vilji sé fyrir endurbótum á stjórnarskrá Íslands. Fréttatíminn tók saman spurningarnar og helstu útskýringar á þeim og rökin með eða á móti. á kjörseðlinum eru alls sex spurn-ingar. Kjósandi hefur val um að svara einni, öllum eða aðeins hluta spurninganna. Seð- ill telst ógildur ef engri spurninganna er svarað. Þannig eru svo ógildir og auðir seðlar taldir saman. 1 Vilt þú að tillögur stjórn­lagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá? Ég vil að tillögur stjórn­ lagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Ég vil ekki að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. 2 Vilt þú að í nýrri stjórnar­skrá verði nátt­úruauðlindir, sem ekki eru í einkaeigu, lýstar þjóðareign? Þessi spurning er í raun 34. grein stjórnalaga­ ráðs um náttúruauð­ lindir. Ákvæðinu er ætlað að stofna til sérstakrar tegundar eignarréttar yfir auðlindum þar sem eignarrétti einkaaðila sleppir. Mikið hefur verið deilt meðal lögspekinga hvort eitthvað sé í raun til, lagalega séð, sem heitið getur þjóðareign. Því hefur verið haldið fram að „þjóðin“ sé of óákveðinn hópur til að geta talist eigandi einhvers. 3Vilt þú að í nýrri stjórnar­skrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi? Lýsir yfir vilja fyrir því að hafa áfram ákvæði í stjórnarskrá um þjóðkirkju íslensku þjóðarinnar. Ekki er spurt um aðskilnað ríkis og núverandi þjóðkirkju. Sumir telja að með því að fella burt ákvæði um þjóðkirkju úr stjórnar­ skránni og kveða á um kirkjuskipan í almennum lögum sé verið að taka fyrstu skref í átt að að­ skilnaði ríkis og kirkju. 4Vilt þú að í nýrri stjórnar­skrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er? Með persónukjöri er átt við að kjósandi geti kosið einstaka frambjóðendur, einn eða fleiri, af lista á kjörseðli í stað þess að kjósa á milli lista stjórnmálaflokka eins og tíðkast hefur. Mikil áhersla á persónur geti ýtt undir ómálefna­ lega stjórnmálabaráttu og víða hafi persónukjör skapað vanda við að halda utan um fjár­ framlög til stjórnmála­ starfsemi. 5Vilt þú að í nýrri stjórnar­skrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt? Helstu rök fyrir jöfnu vægi atkvæða á bak við hvern þingmann eftir landshlutum eru þau að eðlilegt sé að atkvæði allra kjósenda vegi jafnt, óháð búsetu og öðrum félagslegum þáttum. Helstu rök fyrir misvægi atkvæða eru að áhrif þéttbýlis séu of mikil á kostnað dreifbýlis. Eðlilegt sé því að íbúar dreifðra byggða, fjarri aðsetri stjórnsýslu og ríkisvalds, hafi fleiri þingmenn á Alþingi en fólksfjöldinn einn segir til um. 6Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðar­ atkvæðagreiðslu? Rökin fyrir þjóðar­ atkvæðagreiðslum eru að auka þátttöku og skilning kjósenda á þeim málum sem fjallað er um. Þjóðaratkvæða­ greiðslur geta upplýst stjórnvöld um óskir kjósenda og komið á dagskrá málefnum. Rök gegn fjölgun þjóðar­ atkvæðagreiðslna eru að þær geti valdið minni kjörsókn og ýtt undir tilhneigingu til að skoða mál ekki í samhengi heldur hvert fyrir sig. ? n ei já 10 fréttir Helgin 19.­21. október 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.