Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.10.2012, Síða 24

Fréttatíminn - 19.10.2012, Síða 24
rekur hún ferlið og upplifanir fjölskyldunnar. Hún segir það ekki síður mikilvægt fyrir sjálfa sig að tala um krabbameinið sem hlotið hefur nafnið drekinn. En afhverju dreki? „Þetta byrjaði um jólin eftir að hann greinist. Þá fékk yngsta dóttir mín bók að gjöf um prinsinn hugrakka og prinsessuna undurfögru. Bókin er mjög spaugileg þar sem textinn er í mikilli þver- sögn við myndskreytingarnar. Prinsessan er ósköp ljót, prinsinn blindur og veiklulegur. Mér fannst þess bók mjög sniðug á sínum tíma og hún var mér oft hugleikin þegar ég var að blogga. Ég talaði þannig um mig sem prinsessuna og Björgvin sem prinsinn minn sem þyrfti að takast á við dreka. Það var ekki fyrir daginn fyrir skurðaðgerðina að við fengum að vita það að æxlið væri í hippokamp- usnum í heilanum. Íslenska orðið fyrir það svæði er dreki. Sá útbólgni og úr sér vaxni dreki hefur www.tk.is ERUM EKKI Í KRINGLUNNI EINGÖNGU Á LAUGAVEGI 178 Laugavegi 178 - Sími. 568 9955 Í TÉKK-KRISTAL AFSLÁTTUR AF ÖLLUM IITTALA VÖRUM Hnífaparatöskur 16 teg. Verð frá 24.990.- TILBOÐ Heldur heitu og köldu í 4 tíma + - margir litir Virka daga 12 -18 Laugardaga 12 -16 O P N U N A R T Í M I FIMMTUDAG, FÖSTUDAG LAUGARDAG & MÁNUDAG MIKIÐ ÚRVAL AF JÓLAVÖRUM Á 25% TIL 50% AFSLÆTTI EINNIG MIKIÐ AF ÍSLENSKUM HANDUNNUM JÓLAVÖRUM Global hnífar ÞAÐ ER STUTT TIL JÓLA FULL BÚÐ AF FLOTTUM VÖRUM Á TILBOÐSVERÐI Hnífapör og fylgihlutir f.12manns samt. 72 hl. Söfnunarglös 16 teg. TILBOÐSVERÐ T.d. kristals-hvítvínsglös 6. stk í gjafakassa frá kr. 4.275.- AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HNÍFAPÖRUM, RCR GLÖSUM & MATAR- & KAFFISTELLUM "NÝTT KORTATÍMABIL" ÷20% BOMBU „Mér finnst að kominn sé tími á að fá að vita hvernig var að vera kona í þessu landi.“ „15. nóvember greinist Björgvin með heila- æxli, 16. nóvember verður hann 41 árs og 17. nóvember útskrifast hann úr masters- námi í sálfræði.“ Þessi mynd er af Björgvin sólarhring eftir 7 tíma heilaskurð- aðgerð. Vilborg bjó í Skotlandi þegar maðurinn hennar greindist með krabba- mein í heila. fylgt okkur síðan. Hann lá í dvala í sex ár en hefur nú eignast unga sem hefur vaxið mjög hratt. Það er af þriðju gráðu eins og hitt, þriðja gráða er ekki jafn bráð og ill- viðráðanleg og fjórða og fyrir það erum við þakklát. Í Skotlandi vorum við heppin að hafa alla þessa þekkingu sem þar var. Björgvin komst í vakandi heilaskurð, sem er mjög merkileg aðgerð, því þú ert vakandi á meðan æxlið í heilanum, eða það sem hægt er að ná af drekaskömminni, er skorið. Núna erum við hér heima og hér höfum við fjölskylduna og vini sem að mynda um okkur skjaldborg. Nándin er svo góð. Það er vel haldið utan um okkur það er svo gott að finna það. Við eigum nóg af hjálparhellum í þessu ævintýri. Ævintýri eru ekki alltaf skemmtileg en þau eru samt ævintýri og við verðum að takast á við þau. Ekkert okkar bað um að fæðast í þennan heim. Okkur er hrint af stað í ævintýrið og við þurfum að takast á við ýmsar þrautir. Sögusviðið er lífið sjálft þar sem allir þurfa að takast á við eitthvað.” Meira af Auði djúpúðgu Í Reykjavík hefur Vilborg alltaf búið í 101 Reykjavík. Hún er fædd og uppalin við Dýrafjörð og segir það skýringuna á því af hverju hún geti hvergi annars staðar búið en í miðbænum. „Ég er alin upp í litlu þorpi og þurfti aldrei að læra að rata, þessvegna finnst mér svo gott að vera hér á svona litlu svæði. Ég þarf heldur ekki að fara langt til þess að sjá sjóinn eða fjöllin. Það er mér mikilvægt. Ég er svo áttavillt, ég þarf að sjá sjóinn,“ segir Vilborg sem er að sögn sátt við nýju bókina sína, Vígroða, en bókin er sem fyrr segir sjálfstætt framhald Auðar sem kom út fyrir þremur árum. „Sögusviðið er Skotland í lok níundu ald- ar, líkt og í Auði. Þú þarft ekkert endilega að hafa lesið Auði áður en þú lest þessa, en það dýpkar hana mikið,” útskýrir Vilborg en áhuginn á víkingaöldinni hefur alltaf blundað í henni og í Skotlandi eyddi hún dágóðum tíma í að rannsaka norræna menn- ingu. Hún segist til að mynda hafa komist að merkilegum hlutum um Ólaf hvíta, eigin- mann Auðar, í skoskum annálum og fléttar þær uppgötvanir inn í söguna. „Við Björgvin ferðuðumst töluvert um landið en þar úir og grúir af norrænum ör- nefnum. Þar gerist saga Auðar en eins og fólk kannski veit er Auður dóttir manns sem kallaður var Ketill flatnefur. Hann var höfð- ingi í Suðureyjum,“ útskýrir Vilborg en það eru bara Íslendingar sem að kalla þessar eyjar Suðureyjar, þær liggja vestur af Skot- landi. Auður djúpúðga fór frá Katanesi til Ís- lands þegar karlmennirnir í hennar lífi voru fallnir. Vilborg segist sannfærð um að allir Íslendingar geti rakið ættir sínar til hennar og afkomendanna. „Þú þarft ekki ýkja marga til að mynda þrjú hundruð þúsund manna þjóð á ellefu hundruð árum,“ segir hún og útskýrir aðstæður Auðar frekar: „Í Laxdælu segir þegar Auður fer frá Katanesi til Íslands: „Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti. Má af því marka að hún var mikið afbragð annarra kvenna.“ Það sem ég hef alltaf verið forvitin um er af hverju hún gat þetta og hvernig hún varð svona rík. Hún fór fyrir sínum leiðangri og gerði allt sjálf. Það var ekki eðlilegt á þessum tíma þegar að konan var eign karlmanns.“ Vilborg segir að þegar hún reyndi að finna flöt á þessu hafi hún ákveðið að gera Auði að útsjónarsömum sauðfjárbónda: „Vinnuframlag kvenna var þetta, að spinna og vefa og það þurfti að vefa segl. Þetta var eini ferðamátinn. Þú þurftir að eiga skip vildir þú komast eitthvað. Konurnar ófu öll klæði. Auður á í sögunni mikið af sauðfé og í hennar dyngju voru margar konur. Þær vefa seglin og þannig verður hún auðug.“ Sjónarhorn kvenna „Ég hef eiginlega alltaf haft sjónarhorn kvenna að leiðarljósi í mínum skrifum,“ seg- ir Vilborg en henni finnst það áhugaverðara og auðvitað vanrækt sjónarhorn. „Sagan er skrifuð af körlum, fyrir karla um karla. Mér finnst að kominn sé tími á að fá að vita hvernig var að vera kona í þessu landi, eða á þessum tíma. Það gleymist oft hve verk kvenna voru gríðarlega mikilvæg.“ Vilborg er sagnakona í lífi sínu og starfi, eins og sést best í bókunum hennar og á blogginu sem hún heldur úti af miklu æðru- leysi. Hún segir að það sem bindi þau hjónin saman í þeirra ævintýrum sé ákvörðunin um að lifa í núinu: „Það er ekkert á morgun, það er bara núna. Við viljum lifa ríkulega, lifa í árvekni. Einn dagur er alveg nóg og morgundag- urinn sér um sig sjálfur. Þannig er þetta ferðalag alltaf. Á meðan við getum haft báða fætur í deginum í dag en ekki einn í gær og hinn á morgun þá gengur þetta svo miklu betur. Við höfum bara núið,“ segir Vilborg. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is 24 viðtal Helgin 19.-21. október 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.