Fréttatíminn - 19.10.2012, Qupperneq 28
7 ára ábyrgð
á öllum nýjum KIA bílum
Komdu og prófaðu
nýjan Kia cee’d
Nýr Kia cee’d er kraftmikill, sparneytinn, rúmgóður og betur búinn
en nokkru sinni. Hann eyðir aðeins 4,1 l/100 km í blönduðum akstri
og fær því frítt bílastæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn.
Verð frá 3.455.777 kr. Kia cee’d LX 1,4 dísil
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
www.kia.isÞú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
*M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti.
Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,06 %.
Aðeins 28.777 kr. á mánuði í 84 mánuði*
O
kkur langaði einfald-
lega að heiðra þær
konur sem stofnuðu
Laufásborg fyrir 60
árum. Þetta voru
konur sem voru að standa með kon-
um,“ segja systurnar Matthildur og
Jensína Hermannsdætur, leikskóla-
stjórar á leikskólanum Laufásborg.
Í tilefni afmælisins hafa þær látið
taka saman rit sem hefur að geyma
sögur barna sem voru á barnaheim-
ilinu á upphafsárum þess og einnig
þeirra sem störfuðu þar. Björk
Þorleifsdóttir sagnfræðingur hafði
umsjón með verkinu.
„Saga skólans er kvennasaga frá
upphafi,“ segja þær. „Konurnar sem
stofnuðu Laufásborg voru miklir
frumkvöðlar og sáu hve mikil þörf
var fyrir þetta úrræði á sínum
tíma,“ segir Matthildur.
Barnavinafélagið Sumargjöf
sá um rekstur barnaheimilisins.
Félagið var stofnað árið 1924 í þeim
tilgangi að „stuðla að andlegu og
líkamlegu heilbrigði og þroska
barna í Reykjavík og vernda þau
fyrir óhollum áhrifum,“ eins og
segir í lögum félagsins. Sama ár
stofnaði félagið fyrsta barnaheim-
ilið í Reykjavík en Laufásborg var
fjórða barnaheimili Sumargjafar.
„Það er lýsandi fyrir þá virðingu
sem konurnar í Sumargjöf báru
fyrir börnum á þessum tíma að þær
völdu að hafa barnaheimili í þessu
glæsilega húsi en þetta og húsið við
hliðina voru kallaðar Hvítu hallirn-
ar á Laufásvegi,“ segir Matthildur.
Björk bætir við: „Hér ætluðu þær að
hafa „höll handa litlum Reykvíking-
um“, eins og það var orðað.“
Barnaheimilið Laufásborg tók
til starfa þann 25. október 1952.
Húsnæðið var í eigu Reykjavíkur-
borgar sem hafði keypt það tveimur
árum áður og gert upp en það er
byggt árið 1922. Barnavinafélagið
Sumargjöf fékk húsið afhent og
rak þar barnaheimili þangað til
Reykjavíkurborg tók við rekstr-
inum á 8. áratugnum og rak leik-
skóla á Laufásborg fram til ársins
2006 þegar Hjallastefnan tók við
og rekur nú leikskóla í Laufásborg
undir merkjum Hjallastefnunnar.
Neyðarbrauð á þessum tíma
„Barnaheimili Sumargjafar voru
ætluð efnaminna fólki, sérstak-
lega einstæðum mæðrum sem
komu eldsnemma með börnin sín
á Laufásborg og sóttu þau seint,“
segir Björk. Barnaheimilið var sett
á stofn svo einstæðu mæðurnar
gætu unnið fyrir sér og börnum
sínum. Konur í þessari stöðu fóru
ósjaldan í vist út á land því úrræðin
í Reykjavík voru svo fá. „Þetta var
neyðarbrauð á þessum tíma,“ segir
Matthildur.
Einstæðar mæður fengu forgang
um þau dagheimilispláss sem í boði
voru en einnig bauðst efnameira
fólki að koma með börnin sín í leik-
skóla hálfan daginn. Leikskóla-
börnin komu með nesti heimanað
en börnin á barnaheimilinu voru í
fullu fæði. „Mikil áhersla var lögð á
Höll fyrir litla Reykvíkinga
Fyrir 60 árum setti Barnavinafélagið Sumargjöf á stofn „Höll
fyrir litla Reykvíkinga“, barnaheimilið Laufásborg, svo einstæðar
mæður gætu unnið fyrir sér og börnum sínum. Börnin komu
snemma og voru sótt seint sex daga vikunnar og fengu jafnvel
lítið annað að borða en það sem barnaheimilið bauð upp á, svo
erfiðar voru aðstæður heima fyrir. Yngsta barnið sem dvaldist
á Laufásborg var mánaðargamalt. Laufásborg hefur verið rekin
undir merkjum Hjallastefnunnar frá árinu 2006.
Erfitt að vera
einstæð móðir
Sigrún Helgadóttir fékk inni á
Laufásborg skömmu eftir að hún
opnaði árið 1952 og var þar fram að
6 ára aldri:
„Mamma
mín, Áróra
Kristins-
dóttir, var
einstæð
móðir og ég
einkabarn.
Það var
erfitt að
vera ein-
stæð móðir
í Reykjavík
á þessum
tíma. Það voru fáar dagvistar-
stofnanir og til að geta alið önn fyrir
börnum sínum, og verið með þeim,
leituðu margar konur út á land, gerð-
ust til dæmis ráðskonur í sveit. Áður
en ég fór á Laufásborg var mamma
að einhverju leyti með mig norður í
landi hjá ættingjum og vinum.“
FrásögN leikskólabarNs
Ákveðin og ströng
en sanngjörn
Þórhildur Ólafsdóttir var fyrsta for-
stöðukona Laufásborgar og gegndi
hún því starfi í 18 ár. Þórhildur bjó á
efstu hæð
hússins
á meðan
hún gegndi
starfi for-
stöðukonu.
Henni var
mikið í
mun að allt
liti vel út og
væri heim-
ilislegt á
Laufásborg.
Hún passaði
alla tíð vel upp á að peningum og
aðföngum væri ekki sóað og ræktaði
matjurtir í hinum fagra garði um-
hverfis Laufásborg. Börnin nutu
grænmetisins og svo var sultað og
saftað úr berjum. Á haustin var tekið
slátur og var súrmatur geymdur í
geymslu í porti dagheimilisins.
Fyrsta ForstöðukoNaN
Þórhildur Ólafsdóttir
að bjóða upp á hollan og góðan mat
enda var vitað að mörg barnanna
fengu lítið annað að borða en það
sem í boði var á Laufásborg, svo
erfiðar voru aðstæður heimafyrir,“
segir Matthildur.
Yngsta barnið sem dvaldist á
Laufásborg var mánaðargamalt.
Mikið álag var á starfsfólki enda
var gert ráð fyrir 150 börnum í
húsinu. „Mörg barnanna áttu mjög
erfitt enda alin upp í mikilli fátækt
við erfiðar heimilisaðstæður,“ segir
Matthildur. „Það sem er áberandi
í þessari sögu allri er hve mikil
virðing var borin fyrir börnunum
og aðstæðum mæðranna sem
sýndur var mikill skilningur á því
hve langan vinnudag þær þurftu
að vinna,“ segir hún. Björk bætir
við: „Það kom fram í einni frásögn
starfskonu að hér unnu kærleiks-
ríkar og góðar konur sem sinntu
börnunum vel.“
Haldið verður upp á afmæli
Laufásborgar á afmælisdaginn, 25.
október, frá klukkan 10.00- 14.00
og heitt á könnunni fyrir alla sem
vilja koma í heimsókn.
sigríður Dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Systurnar Matthildur og Jensína Hermannsdætur, leikskólastjórar á Laufásborg
ásamt Björk Þorleifsdóttur sagnfræðingi og leikskólabörnum.
Í dag er Laufásborg rekin undir merkjum Hjallastefnunnar. Börnin eru í skólabúningum og kynin eru aðskilin í daglegu starfi.
Skólahúsið og garðurinn eru lítið breytt frá upphafi en hafa verið aðlöguð að því starfi sem fram fer í dag.
28 úttekt Helgin 19.-21. október 2012