Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 2

Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 2
Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Dala Feta fyrir þá sem gera kröfur ms.is HV ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Íslensk fyrirtæki enn í eigu bankanna Þ etta er mjög spennandi. Ég hafði aldrei spáð í þetta en ef það er áhugi á bókinni erlendis þá er bara gaman að því,“ segir Berglind Sigmarsdóttir, höfundur bókarinnar Heilsuréttir fjölskyldunnar. Berglind kynnti Heilsurétti fjölskyld- unnar á bókamessu í Gautaborg á dögun- um ásamt útgefanda sínum og vakti bókin mikla athygli. Jónas Sigurgeirsson, útgef- andi hjá Bókafélag- inu, segir að tíðinda sé að vænta á næst- unni um hvar bókin verður fyrst gefin út. „Við gerðum samning við sænskan umboðs- mann sem er að vinna að því að selja bókina á hinum Norður- löndunum en einnig hafa bandarískar og breskar útgáfur lýst yfir áhuga á að gefa hana út,“ segir Jónas. Fjórða prentun af Heilsuréttum fjöl- skyldunnar kom nýverið í bókaverslan- ir hér á landi og segir Jónas að um tíu þúsund eintök hafi þegar selst af henni. Upphafið að velgengninni má rekja til þess að Berglind tók mataræði allrar fjölskyldunnar í gegn. Það gerði hún í von um að draga úr sjúkdómseinkenn- um sem fylgja Tourette-sjúkdómnum sem sonur hennar hafði þá nýlega greinst með. Kækir hans versnuðu þegar hann borðaði sykur, flestar mjólkurvörur og vörur sem innihalda glúten. Með breyttu mataræði er hann að mestu laus við kækina. Berglind skrifaði bókina með það að markmiði að hjálpa fólki að skipta óhollum mat út fyrir hollan án öfga. „Ég er ótrúlega ánægð með viðtök- urnar og ánægðust er ég með að þeir sem kaupa bókina eru að nota hana. Fólk kaupir oft matreiðslubækur og eldar kannski eina uppskrift en nú er ég í sambandi við fullt af fólki sem hefur eldað nær allt upp úr bókinni. Fólk er það ánægt að ánægjan spyrst út og ég held að bókin selji sig sjálf,“ segir Berglind. Berglind segist telja að bókin eigi erindi á markað í Skandinavíu, enda hugsi grannar okkar mikið um heils- una og hugi að fjölskyldunni. Þar eru þó vandamál með of þung börn, rétt eins og hér á landi. „Auðvitað ættu allir að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl. Það er áhyggjuefni hvað börn eru orðin þung og ég held að fólk vilji bregðast við því. Það hefur oft verið þannig að mamman og pabbinn eru í fínu formi en vita ekki hvað þau eiga að gefa börnunum sínum að borða. Ég hef lagt upp með það að fólk eldi eitthvað sem allir geta borðað saman og það höfðar til fólks,“ segir Berglind Sigmarsdóttir. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Fleiri voru teknir ölvaðir undir stýri á fyrstu níu mánuðum ársins en á sama tímabili fyrir ári og hraðakstursbrotum hefur að sama skapi fjölgað um 21 prósent. Alls voru rúmlega þúsund manns teknir fyrir ölvunarakst- ur og tæplega 28 þúsund voru dæmdir fyrir of hraðan akstur, fimm þúsund fleiri en árinu áður. Á tímabilinu slösuðust rúmlega 700 manns í umferðarslysum, þar af 103 alvarlega. Sjö hafa látist. Þjófnuðum og innbrotum hefur fækkað talsvert á árinu miðað við sama tímabil í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglu- stjóra náðu innbrot hámarki árið 2009 en hefur fækkað jafnt og þétt síðan. Ástæðan er markviss- ar aðgerðir lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu til að sporna gegn innbrotum. Stöðug aukning hefur hins vegar verið á fíkniefnabrotum undanfarin ár og hefur þeim fjölgað fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil fyrir ári. Aukningin er tilkomin vegna fjölgunar brota vegna vörslu og neyslu en brotum vegna innflutn- ings og sölu og dreifingar hefur fækkað. Þegar litið er til samanburðar á fjölda brota á árinu 2011 miðað við meðaltal brotanna árin 2005 til 2010 má sjá að fækkun er í öllum brotaflokkum að undan- skildum fíkniefna- og kynferðis- brotum sem fjölgaði. Áfengislaga- brotum fækkaði mest eða um tæp 43%, brotum gegn friðhelgi um 21% og manndrápum og líkams- meiðingum um tæp 18%. 83 íslensk fyrir- tæki eru enn í eigu bankanna. Sælgæti gegn tannskemmdum „Þetta eru molar sem valda ekki tann- skemmdum,“ segir dr. Þorbjörg Jensdóttir um nýtt íslenskt nammi, Hap+, sem hún er með einkaleyfi fyrir og fæst í öllum helstu apótekum. Þorbjörg býr í Noregi ásamt manni sínum sem er landslagsarkitekt. Þar vinnur hún að rannsóknum fyrir fylkistann- lækninn í Rogalandi en það er íslenskt fyrirtæki sem hún stofnaði („og stefnir á útrás“), Ice Medica, sem framleiðir namm- ið. Á morgun og hinn mun Þorbjörg kynna nammið og niðurstöður tíu ára langrar rannsóknar á molunum á ársþingi Tann- læknafélags Íslands í Hörpunni. Sjálf segir Þorbjörg nammið sitt mjög gott. „Þetta er sykurlaus ferskur brjóstsykur sem hefur lágt sýrustig. Hentar vel sem munnhreinsir og örvar munnvatnið tuttugufalt.“ Dr. Þorbjörg og hennar fólk hjá Ice Medica eru með einkaleyfi fyrir uppskriftinni. Gítarherðartré og prjónapappakassi Þakrennuviðgerðardós, prjónapappakassi og gítarherðatré eru á meðal þeirra hugmynda sem unnið hafa til verðlauna í Snilldarlausnum Marel – hugmyndasam- keppni framhaldsskólanema undanfarin þrjú ár. Hátt á þriðja hundrað framhalds- skólanemar hafa virkjað eigið hugmynda- flug með því að taka þátt í keppninni en hún fer nú fram í fjórða sinn og er skila- frestur hugmynda til 5. nóvember. Markmið keppninnar er að gera sem mest virði úr einföldum hlutum á borð við pappakassa, herðatré og niðursuðudósir og taka hið aukna virði upp á myndband. Fyrri ár hefur einn ákveðinn hlutur verið tekinn fyrir hverju sinni en í ár hafa aðstandendur keppninnar ákveðið að gefa þátttakendum lausan tauminn og mega þeir vinna með hvaða hluti sem er. -sda Munúðarfullar mömmur Áhrif meðgöngu og fæðingar á kynlíf ís- lenskra kvenna, kynlífsraskanir hjá konum í langvarandi veikindum og munúðarfullar mömmur, kynlíf eftir barneignir verða umfjöllunarefni opins fræðslufundar næstkomandi þriðjudag, 30. október. Það er Líf, styrktarfélag, sem styður við konur og fjölskyldur þeirra á kvennadeild Landspítalans, sem býður til fundarins. Hann verður í Háskólanum í Reykjavík, stofu M 209 á 2. hæð og hefst klukkan 12. Bjarni Haukur Þórsson setur fundinn. Edda Sveinsdóttir og Hilda Friðfinnsdóttir ljós- mæður ræða áhrif meðgöngu og fæðingar á kynlíf íslenskra kvenna. Áslaug Kristjáns- dóttir kynfræðingur ræðir um konur og kynlífsraskanir í langvarandi veikindum og Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur fjallar um munaðarfullar mömmur; kynlíf eftir barneignir. - jh  LögregLumáL AfbrotAtöLfræði ríkisLögregLustjórA Fleiri keyra fullir og keyra of hratt Alls voru rúmlega þúsund manns teknir fyrir ölvunarakstur á fyrstu níu mánuðum ársins. Íslensk fjármálafyrirtæki eiga enn í 83 fyrir- tækjum. Aðeins 13 þeirra eru í rekstri á Íslandi og þar á meðal sterk og mikilvæg félög þar á meðal. Sigurður Valgeirsson, upplýsingafulltrúi Fjármála- eftirlitsins, sagði í samtali við Fréttatímann að ekki sé hægt að veita upplýsingar um hvaða fyrirtæki þetta séu. Íslensku bankarnir eiga stóran hlut í flestum þessarra fyrirtækja en Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir mikið þrekvirki hafa verið unnið síðustu misseri en 107 fyrirtæki hafa nú færst úr eign bankanna, „flest með sölu til nýrra eigenda en einnig nokkur með því að rekstur lagðist af.“  bókAútgáfA óvænt útrás Heilsuréttir Berglindar á borð bornir í Skandinavíu Berglind Sigmarsdóttir hefur slegið í gegn með bók sinni, Heilsuréttum fjölskyldunnar. Tíu þúsund eintök hafa selst hér á landi og nú eru erlend bókaforlög farin að bítast um útgáfurétt- inn. Höfundurinn er hógvær enda byrjaði ævintýrið á því að hún var að vinna gegn einkennum Tourette-sjúkdóms sonar síns. Berglind Sigmarsdóttir hefur selt tíu þúsund bækur á þessu ári. Útlit er fyrir að bók hennar verði gefin út á hinum Norðurlöndunum innan tíðar og jafnvel víðar. Það er áhyggjuefni hvað börn eru orðin þung og ég held að fólk vilji bregðast við því. 2 fréttir Helgin 26.-28. október 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.