Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 14
F Fátt kom á óvart þegar niðurstöður ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlag-aráðs að nýrri stjórnarskrá nema niðurstöður þriðju spurningarinnar. Þar var spurt: „Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóð-
kirkju á Íslandi. Spurningin skar sig úr, því
hún var sú eina sem svara þurfti neitandi væri
kjósandi sammála tillögum stjórnlagaráðs.
Ekki þarf að hafa mörg orð um það að þjóð-
kirkjan hefur átt undir högg að
sækja undanfarin ár og margir
hafa sagt sig úr henni. Því hefði
fyrirfram mátt ætla að mikill
stuðningur væri að baki til-
lögum stjórnlagaráðs en þar er
lagt til að kirkjuskipan ríkisins
verði ekki ákveðin í stjórnar-
skrá og þjóðkirkjunnar ekki
getið þar lengur. Í núgildandi
stjórnarskrá segir að hin
evangelíska lútherska kirkja
skuli vera þjóðkirkja á Íslandi
og ríkisvaldið skuli að því leyti styðja hana og
styrkja. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar var hins vegar sú að 57,1 prósent kjósenda
sagði já en 42,9 prósent nei. Ríflegur meiri-
hluti er fylgjandi því að í nýrri stjórnarskrá
verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi.
Þegar Alþingi gengur frá frumvarpi um
breytingar á stjórnarskránni verður væntan-
lega tekið tillit til þessarar niðurstöðu. Hún er
sigur fyrir nýjan biskup, Agnesi M. Sigurðar-
dóttur. Í liðnum september var efnt til auka
kirkjuþings þar sem ákvæði um þjóðkirkju var
umræðuefnið. Þar var afstaða til spurningar-
innar mótuð og þeirri stefnu fylgdi biskup eftir
af festu en um leið þeirri sanngirni sem ætlast
verður til af leiðtoga þjóðkirkju sem nýtur
stjórnarskrárvarinnar sérstöðu en tekur um
leið á sig skyldur sem henni fylgir.
Kirkjuráð og kirkjuþing ályktuðu þar sem
hvatt var til þess að í nýrri stjórnarskrá verði
þjóðkirkjuákvæði en staða annarra trú- og
lífsskoðunarfélaga tryggð. Þar var vísað til for-
dæmis norsku stjórnarskrárinnar en þar segir:
„Allir þegnar ríkisins skulu njóta frelsis til
trúariðkunar. Norska kirkjan, evangelísk-lút-
ersk kirkja er þjóðkirkja og skal sem slík njóta
stuðnings ríkisins. Nánar skal það ákvarðað
með lögum. Öll trú- og lífsskoðunarfélög skulu
njóta stuðnings með ámóta hætti.“
Áður en til þjóðaratkvæðagreiðslunnar kom
skýrði biskup afstöðu kirkjunnar í fjölmiðlum
og á upplýsingavef þjóðkirkjunnar. Þar var
komið á framfæri atriðum sem Agnes taldi
tengja þjóðina og kirkjuna og lýsa hlutverki
hennar. Hún benti á að trúarleg málefni væru
meðal grunnstoða hvers samfélags. Kirkja
og íslensk þjóð hefðu átt langa og farsæla
samleið og íslensk menning og samfélagssýn
væru sterklega mótuð af kristnum sið. Biskup
benti jafnframt á að ef litið væri til Evrópu-
ríkja mætti ýmist sjá í stjórnarskrá eða lögum
stuðning og umgjörð um stöðu trúfélaga.
Agnes minnti enn fremur á að skyldur fylgja
þessari stöðu: „Þjóðkirkjan hefur annast
kirkjulega og félagslega þjónustu um landið
allt; það er í senn köllun hennar og skylda er
fer vel við samferð kirkju og þjóðar um aldir og
lagahefð.“ Þá kom fram að fjölskylduþjónusta
kirkjunnar veitir félagsráðgjöf og sálfræði-
þjónustu ókeypis eða gegn því gjaldi sem við-
komandi ræður við. Biskup vék einnig að því
að þjóðkirkjan væri sjálfstætt trúfélag, aðskilið
frá ríkisvaldinu og að ekki þyrfti að óttast
að stjórnarskrárákvæði um þjóðkirkju fæli í
sér mismunun. Stjórnarskrárákvæðið væri í
samræmi við hæstaréttardóm og trúfrelsis- og
jafnréttisreglur stjórnarskrárinnar sem og al-
þjóðlega mannréttindasamninga.
Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar
benda til þess að málflutningur biskups hafi
náð í gegn. Þær sýna líka, þrátt fyrir erfið-
leika innan þjóðkirkjunnar undanfarin ár, að
þjóðkirkjan á sér hljómgrunn meðal þjóðar-
innar og að staða hennar hefur styrkst með
nýjum biskupi. „Fólk vill hafa þann stöðug-
leika sem felst í þjóðkirkju sem starfar um allt
land,“ sagði biskup þegar niðurstöður þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir og bætti við:
„Kannski hefur þetta líka gefið okkur sem
þjóð tækifæri til að hugsa um þau grunngildi
sem viljum hafa í þessu þjóðfélagi, hér eftir
sem hingað til.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs
Sigur fyrir nýjan biskup
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Pólitík dulspekinnar
Það er auðvitað bara píp að það eigi að
lesa hugsanir þeirra sem heima sátu.
Helgi Hjörvar alþingismaður gefur
ekki túskilding fyrir vangaveltur
Bjarna Benediktssonar um
hvað þeir sem heima sátu við
þjóðaratkvæðagreiðsluna voru
að hugsa.
Var það Pálmi?
Þetta hefur ekkert með okkur að gera.
Svanhvít Friðriksdóttir, fjölmiðlafulltrúi
WOW air, sagði yfirtöku flugfélagsins á
Iceland Express ekkert hafa með kyrr-
setningu vélar Express að gera.
Lögbundin sannfæring
Þannig að ég fer lögum og
skipti um skoðun.
Vigdís Hauksdóttir fram-
sóknarþingkona var áður
fylgjandi stjórnarskrá en
lögum samkvæmt skipti
hún um skoðun.
Vikan sem Var
Fyrirtæki sem tekur við greiðslu með því
að lesa segulrönd örgjörvakorts er
ábyrgt ef færslan reynist sviksamleg.
Með notkun örgjörvaposa sem snúa
að viðskiptavinum er rekstraráhæa
tengd kortaviðskiptum takmörkuð.
Advania á tilbúnar posalausnir og
aðstoðar við innleiðingu á örgjörvaposum.
Nánari upplýsingar á www.advania.is/pinnid
eða í síma 440 9428.
Pinnið ver fyrirtækið
fyrir kortasvikum
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug
alltaf ódýrara á netinu
Bókaðu
flugið á
ernir.is
Upplýsingar og bókanir
sími: 562 2640
netfang: ernir@ernir.is
vefur: www.ernir.is
Bíldudalur
Reykjavík
Gjögur
Vestmannaeyjar
Höfn
Húsavík
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
14 viðhorf Helgin 26.-28. október 2012