Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 20
Helgin 26.-28. október 2012
Í tilefni af 40 ára af-mæli HM-einvíg-isins í skák finnst
mér við hæfi að minnast
þess hvernig Freysteinn
Þorbergsson stuðlaði að
því að það var haldið á
Íslandi 1972. Freysteinn
hélt til náms í Moskvu í
ágúst 1957. Hann horfði
á hluta af HM-einvígi
milli Botwinniks og
Smyslovs og varð það
örlagaríkt, því hann
fékk þá hugmynd að
koma HM-einvígi til Íslands. Hann
byrjaði strax í Moskvu að kafa ofan
í skáksöguna því hann vissi að það
þurfti að fortíð að hyggja ef framtíð
skal byggja. Þar sem einvígið var í
gangi og allar upplýsingar mundu
ekki liggja fyrir fyrr en eftir tvö ár,
ákvað hann að skoða einvígi sem
haldið hafði verið áður milli Botw-
inniks og Tals. Hann skipulagði sig
þannig að hann byrjaði á að skoða
húsið vandlega. Síðan fór hann á há-
skólabókasafn og las allt sem skrif-
að hafði verið um einvígið. Það sem
hann var aðallega að fiska eftir var
hvort húsnæðið hefði verið of stórt
eða of lítið eða aðrir gallar komið
í ljós. Þannig skoðaði hann 30 hús
og hallir hér og þar í heiminum þar
sem HM-keppni í skák hafði farið
fram. Síðan fór hann í viðkomandi
skáksamband til að fá eins nákvæm-
ar aðsóknartölur og mögulegt var.
Einnig ræddi hann við prófessora
ef hann vantaði frekari upplýsingar.
Hann safnaði aðsóknartölum til út-
reiknings en ef þær vantaði reikn-
aði hann út trúverðugar tölur miðað
við lýsingar á aðsókn. Hann smækk-
aði síðan þær tölur og miðaði við
200.000 manna þjóð. Önnur viðmið
var hann einnig með í
útreikningum sínum.
Það sem myndi auka
áhorf:
1. Hve pólitískt einvíg-
ið yrði, þar sem full-
trúar kalda stríðsins
mættust við skák-
borðið
2. Frægð Fischers .
3. Forvitni um þessa
litlu óþekktu þjóð
sem náði svo stórum
viðburði.
Það sem mundi draga úr
áhorfi:
1. Óþekkt land með kalt nafn.
2. Langt að fara og kostnaðarsamt.
3. Dýrt uppihald yfir skáktímabilið.
Öll þessi atriði og einhver fleiri
sem ég man ekki fengu ákveðið
vægi í útreikningum hans. Frey-
steinn gerði spá fyrir Ísland. Á
skákina sem minnsta áhorfið hlaut
komu 5 færri en hann reiknaði með.
Á mesta áhorfið komu 38 fleiri en
hann var með í útreikningum sín-
um og að meðaltali komu 24 fleiri á
hverja skák en hann þorði að vona.
Freysteinn rannsakaði sögu
hvers staðar fyrir sig í 10 ár fyrir
keppni og 10 ár eftir keppni til að
hafa samanburð á hvaða breytingar
hefðu orðið. Alltaf var mikill mun-
ur og vel sýnilegur. Aukinn ferða-
mannastraumur, ráðstefnuhald og
alls kyns ferðamennska og síðast
en ekki síst fylgdi leiðtogafundur
í kjölfarið. Algengast var að 1-3 ár
liðu frá keppninni þangað til leið-
togafundur var haldinn en tvisvar
hafði liðið skemmri tími og tvívegis
hafði það dregist upp undir 10 ár, en
É g vil ljúka leiðrétt-ingu húsnæðislána almennings og end-
urstilla hagkerfið upp á
nýtt. Skapa störf og skapa
framtíð. Það hentar engum
að bíða nema bönkunum.
Ég hef reynslu í því að taka
til, endurskipuleggja og
byggja upp.
Frá hruni hafa um 4000
fyrirtæki farið í þrot. Á
sama tíma hefur atvinnu-
leysi aukist. Í einhverjum
tilfellum hefur tekist að
endurreisa fyrirtæki og
bjarga störfum. Illa stödd-
um fyrirtækjum er hægt
að bjarga með nauðasamningi við
lánardrottna. Sum fyrirtæki eru svo
illa stödd að gjaldþrot er eina lausnin.
Í sumum tilfellum er reynt að stofna
nýtt félag á rústum þess fallna og
bjarga þannig störfum og skapa við-
skiptavin fyrir önnur fyrirtæki. Jafn-
vel lánardrottnar sem þurfa að afskrifa
skuldir geta verið betur settir með nýj-
an viðskiptavin til framtíðar en engan.
Frá hruni hefur Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga sent tíu sveit-
arfélögum viðvörun vegna slæmrar
fjárhagsstöðu. Eitt þeirra er sveitar-
félagið Álftanes. Ástandið þar var
mjög slæmt og var m.a. skoðuð sú
leið að aðlaga skuldir og skuldbind-
ingar að greiðslugetu sveitarfélagsins
með nauðasamningi. Á Íslandi hafði
sveitarfélag aldrei farið í svo alvarlegt
greiðsluþrot og tæknilega hafði aldrei
áður reynt á nauðasamning sveitar-
félags.
Það þarf æðruleysi,
hugrekki og kraft til að
taka að sér fjárhagslega
endurskipulagningu fyr-
irtækja og sveitarfélags.
Hugrekki snýst um að
gera það sem við þurfum
að gera jafnvel þegar það
er virkilega erfitt eða við
hræðumst það. Við þurf-
um á hugrekki að halda
þegar við reynum eitt-
hvað nýtt, þegar við horf-
umst í augu við erfiðar
aðstæður og þegar við
þurfum að taka okkur á
eftir að hafa gert mistök
og verðum að reyna aftur.
Í mínum huga er mikilvægt að fólk
með fjölbreytta reynslu og bakgrunn
taki sæti á Alþingi. Fólk sem er upp-
byggjandi og hefur hugrekki og þor
til að takast á við erfiðar aðstæður og
ekki síður fólk sem kann að beisla ný
tækifæri til sóknar.
Ég fæddist ekki með silfurskeið í
munninum. Ég er menntaður stjórn-
málafræðingur og býð fram þá reynslu
og þekkingu sem ég sjálfur hef náð
mér í.
Eftir að f jölskyldan f lutti aft-
ur heim 2007 hef ég tekið að mér
framkvæmdastjórn og fjárhagslega
endurskipulagningu fyrirtækja og
sveitarfélagsins Álftaness. Ég var
framkvæmdastjóri fyrir Evrópu 2001-
2006 hjá Strax (www.strax.com) og
leiddi uppbyggingu í ellefu milljarða
veltu, framkvæmdastjóri Hans Peter-
sen 2007 og forstjóri Egilsson/Office1
(www.egilsson.is) frá 2008-2012.
Uppbygging og endurskipulagning
Ég skal taka til
Þáttur Freysteins Þorbergssonar
40 ára afmæli
HM-einvígisins í skák
Edda Júlía Þráinsdóttir
húsmóðir
Kjartan Örn Sigurðsson,
frambjóðandi í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi
Gullsmiðadagurinn
laugardaginn 27. október
Kíktu til gullsmiðsins þíns
Hann tekur vel á móti þér
Komdu með uppáhaldsskartgripinn þinn og
láttu hreinsa hann þér að kostnaðarlausu.
Verið velkomin
Akranes
Dýrfinna gullsmiður
Hafnarfjörður
Fríða gullsmiður, Strandgötu 43
Gullsmiðjan, Lækjargötu 34c
Nonni gull, Strandgötu 37
Sign gullsmiðaverkstæði við smábátahöfnina
Kópavogur
Carat-Haukur gullsmiður, Smáralind
Meba Rhodium, Smáralind
Reykjanesbær
Georg V. Hannah, úr og skartgripaverslun,
Hafnargötu 49
Reykjavík
Anna María Design, Skólavörðustíg 3
Aurum, Bankastræti 4
Gull og Silfur, Laugavegi 52
Gull og silfursmiðjan Erna, Skipholti 3
Gullkistan, Frakkastíg 10
Gullkúnst Helgu, Laugavegi 11
Gullsmiðja Óla, Ingólfstorgi
Gullsmiðurinn, Mjódd
GÞ Skartgripir og úr, Bankastræti 12
Hún og hún, Skólavörðustíg 17b
Meba Rhodium, Kringlunni
Metal Design, Skólavörðustíg 2
Orr gullsmiðir, Bankastræti 11
Ófeigur, gullsmiðja og listmunahús, Skólavörðustíg 5
Tímadjásn, skartgripaverslun, Grímsbæ
Leifur Kaldal gullsmiður
www.gullsmidir.is
Á fundinum mun Trine Kanter Zwerekh, kynningarstjóri hjá norsku vegagerðinni kynna
National Tourist Routes, samstarfsverkefni norsku vegagerðarinnar og ferða-
þjónustunnar þar í landi sem miðar að því að byggja upp vinsælar leiðir fyrir ferðamenn.
Því næst mun Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, fræða viðstadda um stöðuna á
samstarfi Vegagerðarinnar við ferðaþjónustu á Íslandi. Þá stígur Hlynur Snæland
Lárusson frá Snælandi Grímssyni fram og ræðir hugmyndir að samvinnu fyrrnefndra
aðila í framtíðinni. Að lokum veltir Þórarinn Malmquist arkitekt því fyrir sér hvernig hægt
væri að vinna sambærilegt verkefni og National Tourist Routes hér heima.
Skráning fer fram á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000
Nánari upplýsingar veita Brynja Bjarkadóttir, brynja@islandsstofa.is og Hermann
Ottósson, hermann@islandsstofa.is