Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 22

Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 22
É g held maður jafni sig aldrei,“ segir Guðfinna Eydal en hún missti manninn sinn, Egil Egilsson, fyrir þremur árum. Hann varð bráðkvaddur í jólaboði. Hallaði sér aftur í stólnum og dó. Fyrir ári síðan, í fyrra sumar, stóð Guðfinna í röðinni við Ráðhúsið því hún vildi skrifa í bók og votta þannig Norðmönnum samúð sína eftir harmleikinn í Útey. Þá er bankað í öxlina á henni og yngri kona kynnir sig og segist votta Guðfinnu samúð sína en hún hafði heyrt af því að hún hefði misst manninn sinn. „Ég hafði verið í móki heima þennan laugardag og vildi ekki út. Svo það var alger tilviljun að ég var þarna og kynnist þannig Önnu,“ útskýrir Guðfinna en þær Anna Ingólfsdóttir náðu ekki strax saman því Guðfinna þakkaði samúðarkveðjuna og snéri sér svo aftur að röðinni og vildi sem minnst vita af um- heiminum. Hún var í þannig skapi. Þar til Anna bankaði aftur í öxlina og sagðist vita að Guðfinna væri sálfræði- menntuð og hvort hún væri til í að lesa bók sem hún væri með í skrifum um sorgina því hún hefði sjálf misst manninn Makalaust líf Þær Anna Ingólfsdóttir og Guðfinna Eydal kynntust í röð í Ráðhúsinu því þær vildu báðar votta Norðmönnum samúð sína eftir harmleikinn sem Breivík olli. Báðar misstu þær mennina sína og tengdust órjúfanlegum böndum. Nú hafa þær skrifað bók ásamt séra Jónu Hrönn Bolladóttur um reynslu sína og sorgina sem yfirgefur þær aldrei þótt þær elski lífið og kunni að njóta augnablikanna. Bókin Makalaust líf er tileinkuð minningu látinna maka þeirra sem segja sögu sína í bókinni: Árni Margeirsson Egill Egilsson Halldóra Benediktsdóttir Valgerður Marteinsdóttir Sveinn Sigurðsson Kristín Gestsdóttir Anna: „Mér þótti líka vænt um hvað samfélagið fyrir austan þjappaði sér vel í kringum okkur stelpurnar en öll orkan hjá mér fyrst fór í að hugsa um þær. Ef ég hefði klikkað þá hefði allt klikkað.“ Myndir Hari Guðfinna: „Þú kemst ekki heil út úr þessu nema þú leyfir þér að fara aftur og aftur í gegnum þetta. Og þetta er ferli. Fyrsta, annað og þriðja árið eru ekki eins.“ Framhald á næstu opnu 22 viðtal Helgin 26.-28. október 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.