Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 25

Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 25
Guðrún Elísabet Jónsdóttir missti konu sína 2005 Guðrún Elísabet missti konu sína, Valgerði Marteinsdóttur, fyrir um sjö árum. Valla, eins og hún var kölluð, hafði þá lengi barist við krabbamein. Þær giftust hjá sýslumanni 1996 þegar ný lög tryggðu að tveir einstaklingar af sama kyni gætu stofnað til stað- festrar samvistar. Gunna Beta og Valla höfðu kynnst árið 1983 og byrjuðu að búa saman ári síðar. Valla var ávallt mikil handverks- kona og þegar hún hafði lengi verið veik ákvað hún að smíða líkkistu sjálf. Sjálf banalegan tók svo tvær vikur og svo tók sorgin við sem var Gunnu Betu erfiður förunautur. Í bókinni segir Guðrún frá því að henni hafi fundist vanta helming- inn af öllu sem hún gerði. Þær voru saman í tuttugu og tvö dýrmæt ár og hún er þakklát fyrir að hafa átt í henni sannan sálufélaga. Guðrún Elísabet „Fyrstu jólin eftir andlát Völlu voru Gunnu Betu hreint kvalræði. Í dag nýtur hún samvista við dóttur sína og barnabörn á jólunum, þar borðar hún hátíðarmatinn og opnar pakkana með fjölskyldunni.“ (Makalaust líf, síða 54). ISIO 4 með D-vítamíni góð fyrir æðakerfið ISIO4 er heilsusamleg blanda af olíum — auðug af náttúrulegu E-vítamíni og viðbættu D-vítamíni. Olíurnar fjórar sem sameinast í ISIO4, repju-, oléisol-, sólblóma- og vínberjaolía, eru ríkar af E-vítamíni, andoxunarefni sem verndar frumur líkamans. Auk þess inniheldur ISIO4 núna meira af D-vítamíni sem hjálpar þér að styrkja ónæmiskerfið. Hugsaðu um heilsuna og veldu ISIO4 með lífsnauðsynlegum Omega-3 fyrir hjarta og æðakerfi og Omega-6 til að halda kólesteróli í skefjum. Olían er bragðgóð og hentar vel í alla matargerð, heita rétti sem kalda. ÍS LE N SK A SI A. IS N AT 5 80 50 0 3/ 12

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.