Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 34
C atalina Mikue Ncogo ólst upp á heimili foreldra sinna í Miðbaugs-Gíneu. Á seinni hluta tíunda áratug-
ar síðustu aldar sigldi íslenskur frystitogari
til Miðbaugs-Gíneu á vegum þarlendra
stjórnvalda til að kanna aðstæður til fisk-
veiða við strendur landsins. Þegar skipið
var ekki á veiðum lá það við festar í höfn-
inni í Malabo. Nokkrir Íslendingar voru
í áhöfninni og tókust kynni með einum
þeirra og hinni ungu Catalinu.
Þegar verkefni skipsins var lokið laumaði
Íslendingurinn hinni ungu kærustu sinni
um borð og við tók ævintýralegt ferðalag
til lands sem Catalina vissi ekkert um.
Catalina steig fæti á íslenska grund hinn
31. október 1997 og framvísaði illa fengnu
vegabréfi í nafni Jacintu Correia Goncalves,
fæddri á Grænhöfðaeyjum hinn 1. mars
1977. Hún var síðar dregin fyrir dómara
fyrir að hafa komið inn í landið á fölskum
forsendum.
Hjónaskilnaður og vændi
Catalina og sjómaðurinn gengu í hjónaband
árið 1999 og hófu búskap í Vestmanna-
eyjum. Húsmóðurlífið og vinna í fiski
áttu illa við Catalinu og um það leyti sem
hjónabandið leystist upp var hún farinn að
íhuga alvarlega að framfleyta sér með því
að selja sig.
„Ég ákvað að fara út í vændi um svipað
leyti og skilnaðurinn fór fram. Ég byrjaði
því að selja mig árið 2006 þegar ég var 25
eða 26 ára. Ég hefði alveg getað farið að
vinna aftur í fiski eða á kassa í Bónus, en
takmark mitt var að verða rík og það gerist
ekki ef maður vinnur fyrir aðra,“ segir
Catalina í sögu sinni, Hið dökka man, sem
kom út haustið 2010.
Catalina kallaði sig Svörtu perluna enda
fullviss um yfirburði sína á vændismark-
aðnum. Þegar hún hafði fest sig í sessi
seldi hún sig dýrt og gerðist vandlát á við-
skiptavini. Uppgangur Catalinu á vændis-
markaðnum var með slíkum ólíkindum að
hún sá sér þann kost vænstan að fá fleiri
vændiskonur til liðs við sig. Og rukkaði
minna fyrir þjónustu þeirra en sína eigin.
Eftir að lögreglan lauk rannsókn sinni á
Catalinu skráði hún sig á spjöld íslenskrar
réttarsögu þegar hún var fyrst allra á Ís-
landi ákærð fyrir mansal. Hún var sýknuð
af þeirri ákæru og fimm Litháar njóta þess
mjög svo vafasama heiðurs að hafa fyrstir
manna verið dæmdir fyrir mansal á Íslandi.
Catalina fékk hins vegar dóm fyrir að
hafa hagnast af vændi sem þriðji aðili,
nokkur ofbeldisbrot og tilraun til innflutn-
ings á fíkniefnum. Samanlagt fékk Catalina
tæplega fimm ára fangelsisdóm fyrir öll
brotin þar sem brot gegn valdstjórninni
og árásir á lögreglumenn komu einnig við
sögu.
Frjáls og vill vera í friði
Catalina sagðist í málsvörn sinni ekki hafa
neytt nokkra konu til þess að stunda vændi
og að ákæran um mansal væri út í hött.
Konur sem störfuðu hjá henni vitnuðu þó
gegn henni og sökuðu hana um að hafa
tekið af þeim vegabréf og beitt þær ofbeldi
og annarri nauðung.
Catalina hélt því aftur á móti fram að
allar konurnar hefðu stundað vændi áður
og hefðu flestar haldið því áfram eftir að
þær hættu að starfa fyrir hana.
Hún sagðist hafa komist í kynni við
mellumömmur og fjölda vændiskvenna
á meðan hún seldi sig í Evrópu og þegar
ásókn íslenskra karlmanna í þjónustu
hennar varð henni ofviða, hafi hún leitað
til vinkvenna sinna eftir liðsauka. Flestar
stúlkurnar komu að hennar sögn frá vænd-
ishúsum í Þýskalandi.
Catalina er nú frjáls ferða sinna og þátt-
urinn um hana er gerður í óþökk hennar
en hún segist hafa fengið sig fullsadda af
kastljósi fjölmiðlanna og vilji fá að lifa lífi
sínu í friði. Hún kaus þó að segja sögu sína
í bókinni Hið dökka man fyrir tveimur
árum og í bókarlok segist hún hafa lært af
reynslunni.
„Ég er búin að eyða tímanum í fangelsi í
grát, þunglyndi og svefnleysi, en ætla ekki
að láta þessa refsingu og þjáningu mína
verða til einskis. Ég vil halda áfram að berj-
ast fyrir því sem ég tel rétt en ætli ég gerist
ekki bara nunna til að vera viss um, að geta
um frjálst höfuð strokið í framtíðinni.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Ég er búin
að eyða
tímanum
í fangelsi í
grát, þung-
lyndi og
svefnleysi,
en ætla
ekki að
láta þessa
refsingu og
þjáningu
mína verða
til einskis.
Svarta perlan seldi sig dýrt
Annar þátturinn í röðinni Sönn íslensk sakamál verður sýndur á Skjá einum á mánudagskvöld en
í honum verður farið yfir vægast sagt skrautlegan feril Catalinu Mikue Ncogo sem gerðist frek
til fjörsins á íslenskum vændismarkaði fyrir nokkrum árum. Catalina vakti fyrst athygli þegar
DV greindi frá því að hún ræki vændishús við hlið lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Hún var
fyrsta manneskjan á Íslandi sem var ákærð fyrir mansal en var sýknuð af þeirri ákæru. Hún fékk
fangelsisdóm fyrir hórmang og fleiri brot. Nokkrir kúnna hennar voru ákærðir fyrir vændiskaup
en sluppu með sektargreiðslu.
Fyrsta fréttin
um Catalinu sem
í kjölfarið varð
alræmd á Íslandi.
Hin unga Catalina á leið til Vestmannaeyja með íslenska sjómanninum sínum. Ísland var aldrei fyrirheitna landið í huga Afríku-
stúlkunnar sem gafst upp á hjónabandinu og fór út í vændi. (Sviðsetning úr Sönn íslensk sakamál).
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt teppi á stigaganginn –
nú er tækifærið !!!!
Eitt verð - niðurkomið kr. 5.790 m2
Verðdæmi:
70 fermetra stigahús með 8 íbúðum
Heildarverð 405.300 kr
Vsk af vinnu 39.825 kr
pr. íbúð aðeins 45.684 kr
Komum á staðinn með prufur og mælum,
ykkur að kostnaðar lausu
Ra
f-
og
hl
jóð
bó
k
Fifty Shades Trilogy
· Fifty Shades of Grey · Fifty Shades Darker · Fifty Shades Freed
eftir E L James
Allar
þrjár
saman!
34 sakamál Helgin 26.-28. október 2012