Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 45
BARNAHJÁLP ABC 5
Nemendur við útskrift Í vettvangsferð í Kenýa
ABC skólinn
Skólastjóri ABC skólans eða „skóla-mamma“ eins og hún vill kalla sig heitir Bryndís Rut Stefánsdóttir. Hún hefur verið að mestu viðloðandi
ABC frá stofnun þess, setið í stjórn ABC og
tekið þátt í ýmsum fjáröflunarverkefnum í
gegnum tíðina.
„Árið 2008, eftir nokkurra ára fjarveru
frá ABC, deildi Guðrún Margrét með mér
hugsjón sinni og draumi um að setja af stað
skóla fyrir fólk sem hefur áhuga á þróunar-
og hjálparstarfi, skóla sem upplýsir fólk
um kjör og líðan bágstaddra barna. Lengi
vel hafði hún greint mikinn áhuga fólks á
hjálparstarfi og þörfina fyrir vettvang þar
sem að fólki gæfist kostur á læra um það og
að taka virkan þátt í hjálparstarfi. Sömu-
leiðis sá hún fyrir sér að skóli sem þessi
gæti aukið vitund fólks um mikilvægi þess
hjálpa öðrum, sér nær og fjær og um leið
eflt lið stuðningsmanna sem ABC og fleiri
hjálparstörf þurfa á að halda til að ná fram
markmiðum sínum. Hún bauð mér að vera
með í undirbúningi þessa skóla og ég sló til.
Stofnuð var 5 manna skólastjórn og til liðs
við okkur fengum við hóp fólks til að vera
okkur ráðgefandi”.
Það kom Bryndísi skemmtilega á óvart
hve mikinn velvilja hún fann í garð starfs-
ins við undirbúning skólans. Nánast allir
sem leitað var til vegna framgangs skólans
svöruðu játandi, bæði er snertir kennslu,
húsnæði, kennslugögn og veitingar svo eitt-
hvað sé nefnt. Allir buðu fram þjónustu sína
án þess að taka greiðslu fyrir. Allar dyr voru
opnar og ekki eftir neinu að bíða.
Skólastarfið hófst haustið 2009 og stóð
skólinn yfir í 15 vikur. Nemendurnir sem
voru á aldrinum 17 - 69 ára gerðu sér grein
fyrir að þeir voru að taka þátt í brautryðjend-
starfi og það var svolítið verið að henda sér
í djúpu laugina svona í byrjun. Í mars 2010
var fyrsti hópurinn útskrifaður með stolti og
rúmri viku síðar fór hluti af hópnum í vett-
vangsferð til ABC í Kenýa.
“Fyrsta skólaárið var reynsluríkt og í
kjölfarið breyttum við ýmsu og bættum. Í
fyrsta lagi styttum við skólann og þéttum
dagskrána. Í dag er skólinn 8 vikur og
kennt er frá kl. 9 - 12 virka daga. Um leið og
nemendur byggja upp þekkingu sína á mál-
efnum bágstaddra er námsefnið sömuleiðis
uppbyggjandi fyrir hvern og einn því fjallað
er um málefni sem snertir lífsgæði fólks -
hvar sem er í heiminum”
Þótt nemandi hafi lokið námi í ABC skól-
anum er það ekki ávísun á starf hjá ABC
barnahjálp, en ABC barnahjálp lítur vissu-
lega til þess hóps sem hefur setið skólann
þegar nýr starfsmaður er valinn, sérstak-
lega hvað varðar starfsmenn og sjálfboða-
liða á erlendri grundu. Til gamans má geta
að einn nemandi skólans er á leið til Senegal
í næstu viku til þess að vinna fyrir ABC.
Hann hefur nú þegar farið í tvær nemenda-
ferðir til starfsins í Kenýa.
Ásdís Stefánsdóttir er nemandi skólans
frá haustmisseri 2011. Hennar umsögn um
skólann er eftirfarandi:
“Ég var á tímamótum í mínu lífi og ákvað
að skella mér í ABC skólann án þess að
þekkja neitt til hans, fann upplýsingar um
hann á internetinu þegar ég var að leita að
sjálfboðaliðastörfum. Ég var smá kvíðin
en það var óþarfi því þessi skóli stóð alveg
undir mínum væntingum. Það er mjög fræð-
andi, skemmtilegt og hreinlega mannbæt-
andi að sitja hann. Ég var þeirrar gæfu að-
njótandi að fara í vettvangsferð í lok skólans
til Kenya sem var ótrúleg upplifun, en þar
fékk ég að starfa i í fátækrahverfum Nairobí
með heimsóknum á heimili fátækra barna
sem þurftu stuðning til að stunda skóla. Í
lok ferðarinnar fengum við að heimsækja
Masaaia þorp undir rótum Kilimanjaro þar
sem starfsfólk ABC tókst með samningum
að fá einn þorpshöfðingja til að samþykkja
byggingu ABC skóla í þorpinu sínu. Þetta
var í desember 2011 og núna eru nemendur
á annað hundrað sem stunda þennan skóla.
Að fá að taka þátt í þessu er algjörlega
óborganlegt og ég mun búa að því alla ævi.
Ég hef haldið áfram að starfa hér heima við
fjáröflun til styrktar starfinu. Ég verð ævin-
lega þakklát ABC fyrir þetta tækifæri”.
Tvöfalt gagn
ABC skólinn hefur fært starfinu röð af ein-
stöku fólki sem hefur skilað sér í sjálfboða-
vinnu og eða stutt starfið með öðrum hætti.
Margt af því kemur fram í þessu blaði.
Einn þeirra, Patricia Segura Valdes, bauð
fram vinnu sína með því að halda námskeið
í spænsku með það fyrir augum að nám-
skeiðsgjöldin yrðu notuð til að greiða laun
kennara ABC skóla erlendis. Þátttakendur
gera þar af leiðandi Tvöfalt gagn um leið og
þeir efla kunnáttu sína. Þetta spurðist út
til stuðningsaðila ABC og fleiri bættust við
sem buðu sig fram til að halda námskeið.
Nú á haustmisseri eru í boði námskeið í
spænsku I og II og standa þau nú yfir. Kenn-
ari er eins og fyrr segir Patricia Segura
Valdes.
Þá er framundan 6 kvölda námskeið í
frönsku fyrir byrjendur á fimmtudagskvöld-
um og hefst það 6. nóvember. Kennari er
Lilja Baldursdóttir.
Efling samskipta er námskeið sem hefur
það að markmiði að hjálpa fólki að bæta
samskipti sín við samstarfsfólk með því að
hjálpa því að koma auga á bæði styrkleika
sína og veikleika og að nýta sér þá til gagns.
Það verður þrjá fimmtudagsmorgna og hefst
8. nóvember. Kennari er Ragnar Gunnars-
son.
Tvöfalt gagn mun einnig bjóða upp á
fjögurra kvölda námskeið í bragfræði,
dagana 12., 13., 19. og 20. nóvember. Farið
er yfir grunnatriði hefðbundinnar brag-
fræði, fjallað um alla helstu bragarhætti í
íslenskum kveðskap og þróun hefðbundins
kveðskapar frá fyrstu tíð til dagsins í dag.
Þátttakendur fá að spreyta sig á að yrkja
eigin vísur og leggja fram eigin kveðskap.
Kennari er Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
Hagyrðingamót
Hagyrðingamót, undir stjórn Ragnars Inga
Aðalsteinssonar, verður haldið laugardaginn
3. nóv. kl. 20:00 í sal LÍF fyrir LÍF á Lauga-
vegi 103.
Hagyrðingarnir Bjarki M. Karlsson, Helgi
Zimsen, Sigrún Haraldsdóttir, Sigurjón V.
Jónsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson munu
kveðast á og standa fyrir vísnasölu. Hægt
verður að leggja inn beiðni um sérorta vísu í
völdum braghætti gegn greiðslu. Einnig er
hægt að panta vísu með fyrirvara á netfang-
ið ria@hi.is fyrir fimmtud. 1. nóvember.
Allur ágóði kvöldsins verður nýttur til að
koma aftur á skólamáltíð í grunnskóla ABC
í Pakistan.
Skólastarfið hófst haustið
2009 og stóð skólinn yfir
í 15 vikur. Nemendurnir
sem voru á aldrinum 17
- 69 ára gerðu sér grein
fyrir að þeir voru að taka
þátt í brautryðjendstarfi
og það var svolítið verið
að henda sér í djúpu
laugina svona í byrjun.
Í mars 2010 var fyrsti
hópurinn útskrifaður með
stolti og rúmri viku síðar
fór hluti af hópnum í vett-
vangsferð til ABC í Kenýa.
Bryndís Rut Stefánsdóttir, skólastjóri ABC skólans
Þjálfun sjálfboðaliða til hjálparstarfs á vegum ABC