Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 61
Í hlýlegu en þó hrjúfu húsi gegnt höfninni, nánar til
tekið í gamla Hamarshúsinu
við Tryggvagötu 4-6, er búið
að opna Steikhúsið, alvöru
steikhús þar sem aðall
hússins er 28 daga meyrnað
nautakjöt. Eldað í kolaofni
en auk þessa er einnig boðið
upp á lamb, fisk og jafnvel
hnetusteik fyrir þá sem ekki
borða mikið kjöt.
Það að láta kjöt meyrna
við bestu aðstæður í hátt í
mánuð breytir áferð kjötsins
til muna. Mikið af vökva guf-
ar upp og bragðið
verður sterkara
auk þess sem
náttúruleg ensím
í kjötinu brjóta
niður stoðvefi í
því og gera það
þannig sérlega
mjúkt undir tönn
og gerir 28 daga
biðina vel þess
virði. Sérstaklega
þegar það er eldað í sérhæfðum
kolaofni.
Eitt af því sem gerir upplifun
heimsóknar í Steikhúsið eftir-
minnilega er valið. Hægt er að
setja saman draumamáltíð hvers
og eins. Að sjálfsögðu er byrjað
á að velja steikina sjálfa. T.d.
nauta – eða lambakjöt, auk fisks
og rétta fyrir grænmetisætur.
Því næst er að velja meðlæti.
Kartöflur eru klassískt val og
þær koma ýmist bakaðar eða þrí-
steiktar sem franskar og skiptir
þá engu hvort um er að ræða
venjulegar kartöflur eða sætar.
Grænmetið má ekki vanrækja í
draumamáltíðinni og heldur
ekki sósurnar sem koma í ótal
útgáfum. Svo er að sjálfsögðu
gott úrval bæði forrétta og
deserta.
Hægt er að fylgjast með
Steikhúsinu á Facebook þar
sem hægt er að finna tilboð og
afslætti. Um þessar mundir er
boðið upp á þríréttaða grillveislu
á 5.900 krónur. Fyrir þá sem
ætla í leikhús er líka sérstakt
tilboð í gangi. Steik og desert á
milli 17.30 og 19 á 4.200 krónur.
Hægt er að finna matseðilinn á
www.steik.is.
VIÐ BJÓÐUM NÝJU 600 LÍNUNA
VELKOMNA Í iRobot FJÖLSKYLDUNA!
iRobot Roomba 650 iRobot Roomba 630
iRobot Roomba 555
iRobot Roomba 780
• Skynjar fallhæð, fer ekki fram af þrepum
• Snúrulaus. Hleður sig sjálf. Engir ryksugupokar
• Sýndarvitar, sýndarveggir og hleðslustöð
• Ryksugar/skúrar 99.97% af gólffletinum
• Hreinsar upp ryk, sand, ló, dýrahár o...
• Hreinsar teppi, parket, mottur, .ísar, dúka o...
• Hreinsar undir rúmum, sófum, borðum, stólum o...
iRobot Roomba 581
iRobot Scooba 390
matur 53Helgin 26.-28. október 2012
kynning
Gamalt stálsmíða-
verkstæði verður
nýtt steikhús