Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 76
68 bækur Helgin 26.-28. október 2012
Fimmtíu gráir skuggar var
mest selda bók landsins á
tímabilinu 7. til 20. október
samkvæmt metsölulista
bókaverslana. Bókin er
fjórða mest selda bók
ársins.
SívinSælt mömmuklám
ritdómur Skáld
H ann er ekki hávaxinn maður, fremur kubbslegur þó ekki þétt-holda. Höfuðið er í stærra lagi
og andlitsdrættir eru stórskornir. Nefið
er stutt og granstæðið breitt. Hárið er
tekið að grána þó ekki orðið alhvítt.
Þannig gæti hljómað mannlýsing á
Einari Kárasyni sem hefur nú lokað
þríleiknum sínum um Sturlungaöld.
Bálkurinn hófst með Óvinafögnuði, vel
heppnaðri sögulegri skáldsögu um bar-
dagana sem geisuðu á Íslandi mest alla
13. öld, Sturlungaöldina. Framhaldið,
Ofsi, var meira af því sama, bardögum
og hugrenningum löngu liðinna manna.
Ekki alveg jafn góð og sú fyrri. Saman
eru þær þó skemmtilegir reyfarar um
bardaga Íslendinga á söguöld. Nútíma
Íslendingasögur.
Nú lokar Einar bálknum með allt
öðruvísi bók. Ekki beinlínis sögulegri
skáldsögu, frekar sögulegri skáldævi-
sögu. Bókin er þó byggð eins og þær
fyrri þannig að lesandinn fær söguna
frá mörgum hliðum í stuttum köflum.
Bókin fjallar um ævi skáldsins Sturlu
Þórðarsonar (1214 - 1284) sem var einn
af hinum kolvitlausu Sturlungunum.
Hann lifði svo gott sem alla þessa
vígaöld. Þetta er því skemmtileg nálgun
til að gera upp þessa tíma og nota
þennan eina mann sem viðmið. Bókin
er í rauninni hálfgerður eftirmáli hinna
tveggja. Uppgjör skáldsins við þessa
róstursömu tíma sem og þrautagönguna
við að koma sögunni á skinn. Hvernig
menn sem dragast óviljandi og nánast
út af engu inn í atburði sem leiða til
allra þeirra voðaverka sem unnin voru á
þessu tímabili.
Aðdáun Einars Kárasonar á skáldinu
leynir sér ekki og þótt sannað þyki að
Sturla hafi skrifað stóran hluta Sturl-
ungu og að margra mati þann merkasta,
virðist Kárason sannfærður um að hann
sé einnig höfundur sjálfrar Brennu-
Njálssögu. Sem er skemmtileg tilgáta
og sjálfsagt margt til í henni.
Sagan flakkar fram og til baka í ævi
þessa merka skálds og eins og áður
segir fær lesandinn mörg sjónarhorn
á lífshlaup Sturlu og því kemur í ljós
mjög sterk mynd af þessum manni. Þó
er hann langt því frá upphafinn sem
manneskja en sem skáld er hann settur
í flokk útvaldra.
Einari Kárasyni virðist það einmitt
sérstaklega tamt að gæða persónurnar
í bókum sínum lífi og nær að skila
þessum fornmönnum og forfeðrum
þannig að við sjáum þá ljóslifandi fyrir
okkur. Fólk með breyskleika og húmor.
Einfaldlega venjulegt fólk en ekki
ósnertanlegir postular sögualdarinnar.
Í einum kaflanum er Sturla kófdrukkinn
og býðst af alúð aftur og aftur til þess
að slá færeyskan gestgjafa sinn utan
undir. Eitthvað sem allir hafa séð fulla
frændann í partíinu gera en ekki jafn
margir hefðu trúað upp á virt skáld frá
12 hundruð og eitthvað.
Bókina las ég sum sé og hafði gaman
af og hafði lesturinn þau áhrif á lífið á
mínu heimili að ek byrjaði að tala sem
fornmaður væri og var hornauga litinn
þær stundir sem það lifði. Svona svipað
og þegar ég skrepp norður í Þingeyjar-
sýslurnar og byrja að tala með allt of
þykkum norðlenskum hreim. Það skal
þó koma fram í þessari rýni að ég er
meiri svona „bíða eftir myndinni“ maður
en „bókin var betri“ maður og ég sé ljós-
lifandi fyrir mér að samstarf milli þeirra
Einars og meistara Hrafns Gunnlaugs-
sonar myndi skila stórgóðri ræmu.
Íslendingasaga fyrir byrjendur
Kristín Marja Baldursdóttir hefur um langt skeið verið
meðal vinsælustu rithöfunda landsins. Það ætti því að vera
aðdáendum hennar fagnaðarefni að hún var að senda frá
sér nýja bók. Sú kallast Kantata og er lýst sem margradda
fjölskyldusögu þar sem þræðir fléttast, spinnast, vindast
og rakna.
Kristín Marja er fædd 1949 og starfaði sem kennari og
blaðamaður áður en hún helgaði líf sitt ritstörfum. Fyrsta
bók Kristínar Marju var Mávahlátur sem sló rækilega í
gegn og var síðar kvikmynduð. Stórvirki Kristínar Marju
er tveggja binda skáldsagan Karitas án titils og Óreiða
á striga sem segir ævisögu listakonunnar Karitasar og
spannar alla tuttugustu öldina. Þær seldust samanlagt í yfir tuttugu
þúsund eintökum og eru enn að seljast. Karlsvagninn naut sömuleiðis
mikilla vinsælda og seldist í yfir tíu þúsund eintökum. Kristín Marja er
leikhússkáld Borgarleikhússins um þessar mundir.
Margradda fjölskyldusaga Kristínar Marju
Kristín
Marja
Baldurs-
dóttir.
Skáld
Einar Kárason
Mál og menning, 235 síður.
2012.
Haraldur Jónasson
hari@ frettatiminn.is
metsölu-
bækur
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
1.
sæti
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
5.
sæti
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
6. sæti
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
7. sæti
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
2.
sæti
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
4. sæti
kiljur 7.–20.10.2012
Félag íslenskra bókaútgeFenda
3.
sæti