Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 84

Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 84
 Í takt við tÍmann anna Garðarsdóttir knattspyrnukona Væri til í að vera í íþróttafötum allan daginn Anna Garðarsdóttir er 24 ára knattspyrnukona sem nýverið sagði skilið við KR og ætlar að leika með Selfossi á næstu leiktíð. Anna lauk BS-námi í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík í fyrra og starfar í Landsbankanum. Hún hefur vakið athygli fyrir umfjöllun um enska boltann á vefsíðunni Sport.is. Staðalbúnaður Ég hef aldrei fylgst mikið með tískunni en ég á nokkrar góðar vinkonur sem hjálpa mér að klæða mig þegar ég þarf að vera fín. Fatastíllinn minn er frekar einfaldur, ég er mjög mikið í buxum og kannski skyrtu við eða flottum bol og peysu. Ég væri samt til í að vera í íþróttafötum allan daginn en þar sem það er ekki í boði þar sem ég vinn reyni ég að vera í einhverju þægilegu en ágætlega snyrtilegu. Ég geng oftast með úr og hálsmen eða eyrnalokka. Ég hugsa að ég hafi svona þrisvar sinnum keypt mér flík á Íslandi, ég kaupi allt erlendis í búðum eins og H&M, Monki, Ginu Tricot og Mango. Hugbúnaður Skemmtanalífið mótast algjörlega af því hvort keppnistímabilið er í gangi eða ekki. Á haustin þegar mótið er búið og æfingarnar eru ekki komnar á fullt reyni ég að gera hluti sem eru ekki í boði á sumrin. Til dæmis að fá mér 1-2 rauðvíns- glös með vinkonunum og kíkja á staði niðri í bæ. Þá förum við oft á Vegamót, b5 eða Næsta bar. Ég prófaði að fara á Kaffi- barinn í fyrsta skipti um daginn og hann var ágætur, kom mér á óvart. Ég panta mér yfirleitt bjór þegar ég fer á barinn. Á meðan á tímabilinu stendur er ég mikill aðdáandi þess að slappa af heima við, horfa á bíómynd eða hitta vinkonurnar. Ég horfi alltaf á íþróttir þegar þær eru í boði, ég get horft á hvaða íþróttagrein sem er en horfi mest á enska boltann. Það er engin tilviljun að ég er oftast með 6-8 leiki rétta um hverja helgi. Vélbúnaður Ég á gamla Dell-fartölvu og samlokusíma frá Nokia svo ég gæti verið betur uppfærð í þeim málum. Ég get samt ekki staðið í þessum samlokusíma lengur og er mjög nálægt því að henda mér á iPhone. Ég er virk bæði á Facebook og Twitter og líður illa ef ég fer ekki þar inn reglulega. Ég er nettur netfíkill. Það ótrúlega er að ég get farið á netið í samlokusímanum og svalað þessari þörf og fylgst með úrslitum í leikjum í leiðinni. Aukabúnaður Ég borða oftast í mötuneytinu í vinnunni en einstaka sinnum fer ég og fæ mér hollan skyndibita, til dæmis á Serrano, Nings eða Saffran. Ég set yfirleitt púður og maskara á mig áður en ég fer út en það er ekki mikið meira en það. Ég keyri um á bláum Toyota Yaris. Hann er mjög flottur og þægilegur að keyra hér innanbæjar. Ég gæti samt þurft að uppfæra hann nú þegar ég fer að keyra mikið á Selfoss. Það er ekki alltaf gott veður á heiðinni. Anna Garðarsdóttir fór í fyrsta skipti á Kaffibarinn á dögunum og líkaði vel. Ljósmynd/Hari Þ etta er eins og að bera saman svarthvítt sjónvarp við flatskjá,“ segir Gunnar Lárus Hjálmars-son, Dr. Gunni, þegar hann er beðinn að bera saman nýja bók sína, Stuð vors lands, við þá fyrri sem kom út fyrir rúmum áratug. Dr. Gunni er einn helsti poppfræðingur þjóðarinnar. Árið 2001 gaf hann út bókina Eru ekki allir í stuði? sem var skilgreind sem saga rokktónlistar á Íslandi. Nýja bókin er mun umfangsmeiri; saga dægurtónlistar á Íslandi frá upp- hafi til dagsins í dag. „Ég get ekki lengur skýlt mér á bak við það að Mezzoforte eða Ríó tríó séu ekki rokksveitir,“ segir Gunni og glottir. Til samanburð- ar má nefna að nýja bókin, sem er hönnuð eins og vínilplata og er einstaklega glæsileg, vegur þrjú og hálft kíló en hin fyrri vóg eitt og hálf kíló. Hún mun kosta í kringum fimmtán þúsund krónur út úr búð. „Ég sé ekki af hverju myndir af jöklum ættu að vera dýrari en poppsagan,“ segir höfundurinn. Stuð vors lands er byggð á fyrri bókinni en Gunni eyddi um einu ári í skrifin, auk þess að sjá um að afla mynda. Upphafið að vinnunni má rekja til þess að hann heimsótti gamlan einbúa í Ísafjarðardjúpi en sá átti allar 78 snúninga plötur sem komu út á Íslandi, tæplega 800 talsins. „Hann hleypti mér inn og byrjaði að spila fyrir mig plötur sem ég hafði aldrei heyrt um,“ segir Gunni. Eftir allar rannsóknirnar hefur Gunni komist að því að einn áratugur stendur öðrum að baki í tónlistinni. „Næntísið er mesta ruglið, þó að Björk hafi slegið í gegn þá. Þetta er slappasti áratugurinn frá því að rokk- öldin hófst,“ segir hann og bætir við að núna séum við að ganga í gegnum mjög gott tímabil í íslenskri tónlist. Bókin kemur út eftir helgi en næsta föstudag, 2. nóvember, verður útgáfunni fagnað í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. „Þar munu nokkrir þekktustu popparar landsins leika sín bestu lög við undirleik hljómsveitar Dr. Gunna. Það verður aldrei endurtekið.“ -hdm  dr. Gunni Gefur út stuð vors lands Dr. Gunni í vinnuherberg- inu á Hjarðar- haganum, þar sem Stuð vors lands varð til. Ljósmynd/Hari Versta tónlistin á tíunda áratugnum 76 dægurmál Helgin 26.-28. október 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.