Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 86
dans stóra systir er hörku þjálfari
Berglind Ýr hjálpar litla
bróður í nútímadansinum
Birkir og Helga Kristín vöktu verðskuldaða athygli í fyrsta þætti Dans, dans, dans um síðustu
helgi. Þau njóta leiðsagnar sigurvegara fyrstu þáttaraðarinnar, Berglindar Ýrar, en hún er eldri
systir Birkis.
Birkir Karlsson er nýorðinn sextán ára, er á fyrsta ári í Verzlunarskólanum og dansar með jafnöldru sinni, Helgu Kristínu, í
Dans, dans, dans. Ljósmynd/Hari
d ansparið unga, Birkir Karlsson og Helga Kristín, dönsuðu sig með glæsibrag í gegnum fyrsta þátt
Dans, dans, dans á laugardagskvöld. Þau
eru aðeins sextán ára gömul og rétt sleppa
þannig í gegnum aldurstakmark þáttarins
sem er sextán ár.
Birkir er litli bróðir sigurvegarans í
Dans, dans, dans frá því í fyrra og nýtur að
sjálfsögðu reynslu og ráða stóru systur.
„Ég er búinn að æfa samkvæmisdansa
síðan ég var níu ára en það eru ekki nema
um það bil tveir mánuðir síðan ég byrjaði að
æfa nútímadans og ballet í Listdansskólan-
um,“ segir Birkir sem tók þetta stóra hliðar-
spor sérstaklega með Dans, dans, dans í
huga. „Við Helga Kristín keppum í nútíma-
dansi þannig að ég er að fara dálítið langt út
fyrir þægindarammann.“
Birkir gat ekki tekið þátt í Dans, dans,
dans í fyrra vegna ungs aldurs en hann
fylgdist spenntur með stóru systur sinni.
„Ég fór alltaf til þess að horfa á hana,“ segir
dansarinn ungi sem er hæst ánægður með
að geta verið með að þessu sinni. „Þetta
er mjög gaman og alveg ofboðslega mikil
reynsla sem við fáum út úr þessu.“
Birkir og Helga Kristín semja dansatriði
sitt saman en njóta leiðsagnar og
dyggilegs stuðnings Berglindar
Ýrar sem er sjö árum eldri en
þau. „Systir mín hjálpar okkur
og við erum að gera þetta
í sameiningu með henni.
Hún er hörkuþjálfari,“ segir
Birkir um stóru systur.
Ég er að
fara dálítið
langt út
fyrir þæg-
indaram-
mann.
Berglind Ýr, sigur-
vegari Dans, dans,
dans í fyrra, Birkir
og Helga Kristín
hafa undirbúið sig
af kappi.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
prjónarar arne & Carlos heimsækja Ísland og prjóna jólakúlur
Ánægjulegt að strákar séu farnir að prjóna
V ið ætlum að kenna fólki að prjóna jólakúlur og vonandi
að koma því í hátíðarskap!“ segir
Carlos Zachrison, annar helmingur
hönnunartvíeykisins Arne & Carlos
sem væntanlegt er hingað til lands í
næstu viku.
Arne & Carlos eru þekktir hönn-
uðir sem búa og vinna og saman í
Noregi. Þeir slógu í gegn með bók-
inni Jólakúlur þar í landi árið 2010.
Bókin hefur selst í um 60 þúsund
eintökum og hefur síðan verið gefin
út á tíu tungumálum. Heimsókn
þeirra hingað er í tengslum við út-
gáfu bókarinnar.
Hannyrðir hafa alltaf notið vin-
sælda á Íslandi en eftir efnahags-
hrunið hefur orðið einhvers konar
prjóna-sprengja. Er þetta heppileg
iðja þegar erfiðleikar steðja að? Eða
er þetta kannski hobbí fyrir fátækt
fólk?
„Mér finnst prjónaskapur ekki
vera áhugamál fátæks fólks og ég
held að efnahagsþrengingar eigi
ekki bara sök á þessum vinsældum,“
segir Carlos, fremur ósáttur við
spurninguna. Hann segir að netið
skýri auknar vinsældir prjónaskapar.
„Í dag er stanslaust verið að fóðra
okkur á upplýsingum svo það verður
sífellt vinsælla að leita í einfaldari
hluti. Í matargeiranum er „slow fo-
od“-hreyfingin mjög vinsæl, að borða
mat úr nærumhverfinu sem eldaður
er upp á gamla mátann. Og af sömu
sökum eru sífellt fleiri farnir að
prjóna – meira að segja börn. Þeim
finnst það framandi og njóta þess að
vinna með höndunum. Bæði strákar
og stelpur prjóna í dag, þetta er ekki
bara fyrir kvenfólk lengur. Og það er
ánægjulegt.“
Carlos segir að hann og Arne hafi
heimsótt Ísland árið 2007. Þeir hafa
því þegar kynnt sér íslenska prjóna-
hefð: „Við keyptum gullfallega bók
með íslenskum mynstrum og svo
pöntuðum við okkur aðra bók með
fleiri mynstrum svo við erum þegar
undir áhrifum af ykkar frábæru
prjónahefð.“
Carlos og Arne koma til lands-
ins næsta föstudag og koma fram
á prjónakaffi í Norræna húsinu
sunnudaginn 4. nóvember klukkan
14. Þeir vonast til að geta skoðað sig
um meðan á heimsókninni stendur.
„Kannski getum við baðað okkur í
einni af sundlaugunum í Reykjavík
eða Bláa lóninu.“ -hdm Arne Nerjordet and Carlos Zachrison
ætla að kenna Íslendingum að prjóna
jólakúlur.
Ra
f-
og
hl
jóð
bó
k
Fifty Shades Trilogy
· Fifty Shades of Grey · Fifty Shades Darker · Fifty Shades Freed
eftir E L James
Allar
þrjár
saman!
Einar í Turninn
Athafnamaðurinn Einar Bárðarson
er kominn á fullt eftir brotthvarf
frá útvarpsstöðinni Kananum.
Einar sótti um stöðu bæjarstjóra
í Garði en fékk ekki. Þess í stað
ákvað hann að snúa sér að sérsviði
sínu, tónleikahaldi og almanna-
tengslum. Einar skipuleggur
stórtónleikana Hátt í Höllinni
í desember og hefur stofnað
almannatengslafyrirtækið Meðbyr.
Hefur hann komið sér fyrir í Turn-
inum á Smáratorgi en þar er fyrir
á fleti annar almannatengill, Jón
Geirdal með sitt Ysland.
Gulldrengurinn
kominn í gull
Ótrúleg velgengni tónlistarmannsins
Ásgeirs Trausta Einarssonar heldur
áfram. Plata hans, Dýrð í dauðaþögn, var
vinsælasta plata landsins enn eina vikuna
á Tónlistanum sem kynntur var í vikunni. Á
sunnudaginn fyrir rúmri viku höfðu 4.511
eintök selst af plötu hans og á þeim tæpu
tveim vikum sem síðan eru liðnar er Ásgeir
skriðinn yfir fimm þúsund seld eintök og
reyndar vel það. Það tók þennan tvítuga
tónlistarmann því ekki nema sex vikur að
ná gullsölu. Það er árangur sem margir
reyndari og stærri listamenn myndu vera
stoltir af.
Bráðkvödd bíómynd
Íslenska hasar- og spennumyndin
Blóðhefnd, eftir Ingó Ingólfsson,
staldraði svo stutt við í kvikmynda-
húsum í Reykjavík að furðu sætir.
Jafnvel þótt fyrstu dómar um hana
hafi verið átakanlega neikvæðir þá
má segja að myndin hafi orðið bráð-
kvödd. Myndin hvarf úr sýningu fimm
dögum, eða svo, eftir frumsýningu
sem er einsdæmi fyrir íslenska mynd
en fregnir herma að kvikmyndahúsin
hafi ekki séð tilgang með því að bíða
eftir að bíógestir tækju við sér þar
sem aðeins 56 manns sáu Blóðhefnd
yfir frumsýningarhelgina.
78 dægurmál Helgin 26.-28. október 2012