Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 3
María Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
Fer tómhent heim frá mataraðstoðinni
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
GLÆSILEG JÓLALJÓS
Frá Svíþjóð
Opið kl. 11 - 16 laugardag
Opið kl. 13 - 15 sunnudag
Frá í j
Mikið úrval samtengjanlegra útisería
Allt að 1.040 ljós við einn straumbreytiÉ g er búin að vera með meira-prófið í þrjátíu ár en þurfti nú að fara í hæfnispróf og það var
ekkert mál,“ segir Björn Hafsteinsson,
fyrrverandi strætóbílstjóri, en nítjánda
ágúst 2005 missti hann báða fæturna
í alvarlegu bílslysi á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Suðurlands-
brautar.
„Það keyrði vörubíll yfir á rauðu ljósi
og beint á mig. Ég flaug út úr vagnin-
um og lenti undir vörubílnum,“ útskýr-
ir Björn af miklu æðruleysi. Fjórum
mánuðum síðar fékk hann gervifætur
hjá Össuri („hann er svo helvíti góður
hann Össur,“ segir Björn) og það tók
hann aðeins sex mánuði að læra á nýju
ganglimina.
Björn segist að eðlisfari vera mjög
jákvæður og hann er þakklátur fyrir
allan stuðninginn sem hann fékk frá
eiginkonunni, fjölskyldu og vinum.
Það voru tíu manns í strætisvagni
Björns þegar slysið átti sér stað en
Björn var sá eini sem slasaðist alvar-
lega. Í fjölmiðlum sagði hann strax eft-
ir slysið að hann hefði setið á götunni
með „stúfinn í hendinni“ og hugsaði
um það helst hvort hann ætti að fá sér
smók. Hann vildi ekki að fólk væri að
bogra yfir sér heldur var honum fyrst
og síðast umhugað að það væri í lagi
með alla farþegana.
Að sögn er Björn ekkert ákveðinn
hvað hann geri nú þegar meiraprófið
er aftur í höfn. Hann vildi bara alls
ekki missa það og segist allt eins geta
keyrt strætó. „Ég geri auðvitað eitt-
hvað sniðugt þegar fram líða stundir.
Ég hef sagt það áður að það þýðir ekk-
ert að leggjast upp í sófa með tærnar
upp í loft því það eru engar tær!“ segir
Björn.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Hörn Heiðarsdóttir er metnaðarfull og hlakkar til fram-
tíðarinnar. Hana langar að vinna að einhvers konar
nýsköpun. Ljósmynd/Hari
NíuNda koNaN iNspector í 160 ára sögu Mr
Fékk símtal frá SUS eftir kosninguna
„Ég er mjög ákveðin og stefni á starf
þar sem ég hef engan yfirmann,“
segir Hörn Heiðarsdóttir. Hún er
níunda konan til að gegna embætti
inspectors scholae í 160 ára sögu
Menntaskólans í Reykjavík. Hún er
á eðlisfræðibraut og segir að leiðin
liggi síðar í verkfræði. „Ég er samt
að spá í að taka mér árs pásu á milli
og læra frönsku í París.“
Inspectorar MR hafa raðað sér
á topp samfélagsins í gegnum árin
og jafnan komist hratt til metorða
eftir að menntaskólanum lýkur. Þar
má meðal annarra nefna, Hannes
Hafstein, fyrsta ráðherrann, Ásgeir
Ásgeirsson, forseta Íslands, Davíð
Stefánsson skáld, Einar Olgeirs-
son, alþingismann og forystumann
sósíalista á 20. öld, Markús Örn Ant-
onsson borgarstjóra, Davíð Odds-
son, ritstjóra, fyrrverandi borgar-
stjóra og forsætisráðherra og Dag B.
Eggertsson, lækni, forseta borgar-
stjórnar og varaformann Samfylk-
ingarinnar.
Hörn segir að álagið hafi byrjað
að segja til sín strax í fyrstu vikunni
eftir kosningarnar. „Ég fékk til
dæmis símtal frá SUS en þar vildu
menn fá mig til að koma á einhvern
fund. “ Hörn segist hafa afþakkað
boðið en bætir við að hin ýmsu
fyrirtæki reyni einnig að fá hana til
samstarfs. „Það vilja allir eiga smá í
inspectornum,“ segir hún og hlær.
„Já það er óneitanlega pressa að
vera inspector það er til margs ætl-
ast af manni og innan skólans ríkja
allar þessar gömlu hefðir í félagslíf-
inu, svo það hafa allir miklar skoð-
anir á því sem ég geri og ég er stöð-
ugt undir eftirliti.“ Hörn segir það
þó ekki hafa teljandi áhrif því sjálf sé
hún skipulögð, „og mjög ákveðin.“
FrÉttir BjörN HaFsteiNssoN strætóBílstjóri Missti FæturNa 2005
Það þýðir ekk-
ert að leggjast
upp í sófa með
tærnar upp í
loft því það
eru engar tær!
Missti fæturna og aftur
kominn með meirapróf
Á dögunum fékk Björn Hafsteinsson að halda meiraprófinu eftir að hafa þreytt hæfnispróf. Hann
missti báða fætur í alvarlegu slysi fyrir nokkrum árum og gat ekki hugsað ég sér að missa meira-
prófið eftir að hafa haft það í þrjátíu ár.
Björn Hafsteinsson þurfti að fara í hæfnispróf til að halda meiraprófinu sem hann hefur haft í yfir þrjátíu ár. Hann missti
nefnilega fæturna fyrir nokkrum árum og hæfnisprófið tók sex mánuði með öllu. Sem er jafn langur tími og það tók Björn að
læra á nýju fæturna. Ljósmynd/Hari
Mikil ásókn er í
matargjafir hjá
Fjölskylduhjálp
Íslands. Ljós-
mynd/Hari
Öll skíðasvæði lands-
ins opin um helgina
Bláfjöll opna um helgina
Gert er ráð fyrir því að skíðasvæðin í
Bláfjöllum, Siglufirði, Sauðárkróki og
Ísafirði verði opnuð í fyrsta sinn á þessum
vetri um helgina. Í Bláfjöllum hefur nú
verið komið upp svokölluðu töfrateppi
fyrir yngstu börnin, sem er færiband
sem þau stíga upp á og flytur þau upp
barnabrekkuna.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri
hefur einnig verið opnað, sem og á Dalvík
og Ólafsfirði. Þá er komin snjófram-
leiðsluvél í Ártúnsbrekkur í Reykjavík sem
notuð verður til þess að framleiða snjó í
skíðalyftuna þar en það er að sjálfsögðu
eingöngu hægt í frosti. -sda
Mikil aðsókn er í úthlutanir á vegum Mæðrastyrksnefndar og
Fjölskylduhjálpar Íslands og dæmi er um að fólk þurfi frá að
hverfa vegna langra biðraða. Kona sem hafði samband við
Fréttatímann segir að klukkan fjögur í gær hafi um hundrað
manns verið sendir heim með
tómar hendur við úthlutun hjá
Fjölskylduhjálpinni. Svipað
hafi verið uppi á teningnum
hjá Mæðrastyrksnefnd en þar
hafi einnig hafi verið farið að
þynnast töluvert í pokum við
úthlutunina í gær. Samkvæmt
starfsmanni hjá Mæðrastyrks-
nefnd er þó engum úthýst og
allir fara heim með eitthvað en vissulega klárist eitt og annað.
Hún segir að vandinn sé að stækka og að greina megi mikla
aukningu á meðal fólks sem sækir sér aðstoðar í fyrsta skipti.
Starfsmaður Mæðrastyrksnefndar segist vera farinn að finna
verulega fyrir jólakvíða hjá fólkinu sem þangað sækir en
samtökin hafa byrjað að taka pantanir fyrir jólin. Ekki náðist í
starfsfólk Fjölskylduhjálpar. -mlþ
Dagur íslenskrar
tónlistar í dag
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverð-
launanna 2012 verða kynntar í dag, föstudag,
á Degi íslenskrar tónlistar. Alls voru 120
plötur skráðar til þátttöku í Íslensku tón-
listarverðlaununum í ár en í fyrra voru þær
114. Athöfn verður í Hörpu milli klukkan 11-12
þar sem léttar veitingar verða í boði og allir
eru velkomnir. Endurtekin verður söng-
skemmtun frá í fyrra þegar allar útvarps-
stöðvar landsins léku sömu þrjú lögin og fólk
var hvatt til að syngja með. Nú verða lögin
þrjú flutt af Kór Kársnesskóla og Megasi
ásamt áhorfendum í Hörpu. Hefst söngurinn
klukkan 11.15.
Unnur Ösp verðlaunahafi
Í umfjöllun blaðsins á dögunum um heiðurs-
verðlaun leiklistarinnar, Stefaníustjakann,
láðist að nefna Unni Ösp Stefánsdóttur
leikkonu en hún er meðal verðlaunahafa.
Beðist er velvirðingar á mistökunum og
óskar Fréttatíminn henni til hamingju með
heiðurinn.
fréttir 3 Helgin 30. nóvember-2. desember 2012