Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 20
www.netto.is
Mjódd · Salavegur · Hverafold
Höfn · Grindavík · Reykjanesbær
Borgarnes · Egilsstaðir
Selfoss · Akureyri
bækur
Ævintýrabækur
Yndislegar bækur
Til
bo
ði
n
gi
ld
a
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
|
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g
m
yn
da
ví
xl
|
V
ör
uú
rv
al
g
et
ur
ve
rið
b
re
yt
ile
gt
m
illi
ve
rs
la
na
.
Tilboðin gilda 29. nóv - 2. desember
Risabókin um Risa
3.244 kR
dRekaR
og RiddaRaR eða
ævintýRalandið
2.679 kR
litla
bókasafnið
mitt
890 kRpk
890 kRstk
fyir börn á aldrinum 4 - 8
fyrir yngstu kynslóðina
eða Jólasveina!
dýRin
hvolpaR
S enn líður að því að aðvent-an gangi í garð. Tími sem margir hlakka til.
Tími þar sem fjölskyldan
fer í jólagjafaleiðangur
og sest inn á kaffi-
hús og fær sér heitt
kakó. Gleðin ein ríkir
á þessum tíma hjá
flestum, en því miður
ekki öllum, hvorki fólki
né dýrum.
Stjórn Kattavinafélags
Íslands hefur verulegar
áhyggjur af öllum þeim
kisum sem við höfum
fundið á vergangi og á þessu
ári höfum við aldrei fengið jafn
marga ketti í þetta eina dýraat-
hvarf Íslands.
Mig langar því að beina orð-
um mínum til allra sem láta sér
hag dýra varða. Biðja ykkur að
hafa augun opin fyrir því hvort
þið sjáið kisur sem greinilega
eiga ekki heimili, gefa þeim mat
og athuga aftur daginn eftir og
daginn þar á eftir og svo fram-
vegis ef tök eru á. Kisur sem
eiga hvergi heima leita alltaf
aftur á þann stað sem þær hafa
fengið mat á. Ég bið ykkur að til-
kynna strax í Kattholt, sími 567
2909 eða í neyðarsímann 699 40
30, þar sem er svarað eftir lokun
Kattholts frá kl. 17-22 á kvöldin
og frá kl. 13 og fram eftir degi á
laugardögum og sunnudögum.
Að öðrum kosti að hringja í lög-
regluna á því svæði sem kisa
finnst. Ef hún er slösuð, hringja
strax á lögreglu sem kemur
henni undir læknis-
hendur og ekki hafa
áhyggjur af að kostn-
aður lendi á ykkur.
Hér koma nokkrir
staðir sem við höf-
um mikið orðið vör
við kisur á flakki,
margar horaðar,
sumar slasaðar:
Miðbær og við
Laugaveg og þar í
kring, á Teigunum,
við Sundahöfn og
Fiskislóð. Mikils-
vert er einnig að
hafa augun opin fyrir kisum við
Hrafnistuhraun og Hvaleyrar-
holt í Hafnarfirði.
Hestafólk fær sér oft kisur
til að hafa í hesthúsum og er
það gott og vel. Hins vegar má
ekki gleyma því að gefa þeim
mat og vatn eins og heimilis-
köttum. Við höfum orðið vör við
ketti í Almannadal (Fjárborgir),
Reykjavík þar sem er fjöldi katta
og hafa læður sést með litla kett-
linga húkandi undir timburstöfl-
um og gámum.
Á svæði Sörla í Hafnarfirði
er aragrúi katta, hungraðir og
illa til reika, og þeir leita mikið
í nálægar mannabyggðir og fá
misjafnar móttökur þar.
Svæði Gusts í Kópavogi:
Hestamenn sögðu okkur að
þar væri mikið um ketti, sumir
veikir og ekki væri verið að
sinna þeim sérstaklega og þeir
fjölguðu sér takmarkalaust.
Í Hesthúsahverfinu við Akur-
eyri, Breiðholti, er urmull katta,
margir hverjir illa á sig komnir
og margir heimiliskettir sem
hent hefur verið út. Slíkt á
sjálfsagt við um fleiri hesthúsa-
hverfi.
Kattavinafélag Íslands treystir
á að samborgarar þessa lands
hjálpi til við að koma þessum
kisum í skjól, gefa þeim mat
nokkra daga í röð og láta Katt-
holt eða lögreglu vita. Nú er
frost dag eftir dag og það er
sorglegt að sjá þessa litlu mál-
leysingja ráfa um götur og sund
í leit að æti. Stöndum saman og
virðum rétt þeirra til góðs lífs,
heimilis og matar.
Í 9. gr.núverandi dýralaga
stendur:
„Verði maður var við að dýr sé
sjúkt, lemstrað eða bjargarlaust
að öðru leyti ber honum að veita
því umönnun eftir föngum. Gera
skal lögreglu eða dýralækni við-
vart eins fljótt og unnt er.“
Þessi grein segir einfaldlega
að við erum öll ábyrg. Sam-
félagsleg ábyrgð þarf að komast
til skila svo kisur jafnt sem aðrir
eigi gleðileg jól.
Það að bjarga varnarlausu
dýri, gefur manni svo mikið að
þannig finnur maður hinn sanna
jólaanda; því get ég lofað ykkur.
Kattavinafélagið treystir á
ykkur og óskar ykkur gleði-
legrar aðventu og gleðiríkrar
jólahátíðar.
F.h. stjórnar Kattavinafélags
Íslands
Samábyrgð á hugruðum köttum á vergangi
Það eiga ekki allir gleðileg jól
Anna Kristine
Magnúsdóttir
formaður Kattavinafé-
lags Íslands
Kamilla og vinir hennar þurfa að kljást við
kexvitlausan vísindamann, fluggáfaðan úlf og
sína eigin foreldra í þessari þrælfyndnu bók.
Sérlegir
sérfræðingar í barn
a-
og unglingabókum
Rækilega fyndin
og spennandi!
„frábær
húmor
...einstaklega
vönduð“
Edda Björgvins
leikkona
fyrir
ára
7-12
„Bull-
fyndin
bók“
Rökkvi 10 ára
Vorið 2012
hlaut Bókabeitan
Vorvinda IBBY fyrir framlag
sitt til barnamenningar
6.
sæti
yfir mest
seldu barna- og
unglingabækur*
*
M
et
sö
lu
lis
ti
E
ym
un
ds
so
n
vi
k
un
a
1
4
.-2
1
.
nó
v.
20 viðhorf Helgin 30. nóvember-2. desember 2012